Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 19
EI^TIT
r
Ovœntir gestir
Framhald af bls. 10.
tólc andköf af dragsúg og
kastaði fölum bjarma um hið
frumstæða umhverfi.
Þá var barið í gluggann
þrjú högg, svo að allir gætu
vitað, að ekki væru draugar
á ferð eða óheillavænlegar
andasendingar, sem oft áttu
að fara á undan slíkum veðr-
um að næturlagi. Höggin
þrjú, tákn hinnar heilögu þre-
nningar, voru trygging fyrir
því, að óhætt væri að ljúka
upp.
„En hvaða mennskur mað-
ur getur verið á ferð í slíku
veðri?“ sagði móðir mín,
ineðan pabbi fór fram göng-
in og lauk upp í hálfa gátt,
því að stormurinn ætlaði að
rífa af honum hurðina.
Holdvotur miðaldra mað-
ur, ljóshærður og bláeygur,
með gúmmíflibba um hálsinn,
í dökkum fötum og svörtum
frakka, með loðhúfu á höfði
kom út úr náttmyrkrinu.
Hann bar stóran, leyndar-
dómsfullan poka á baki, og
minnti hann mig að lögun
helzt á meðalstórt koffort.
„Þú verður auðvitað hér í
nótt, Sigurgeir“, sagði pabbi.
„Mikið, að þú komst áfram í
slíku veðri“.
„Já, hann hefur verið hvass
á köflum“, svaraði Sigurgeir.
„Eg var næstum því búinn að
tapa stefnunni, en áttaði mig
svo eftir ljósinu í bænum
ykkar og áriðinum, — en
verst er þetta veður fyrir
nótnabækurnar mínar og
hljóðfærið", svaraði hann,
rrieðan hann gekk inn göngin
og hafði á sér borgarbúasnið,
þótt haltur væri. í augunum
var fjai’lægðarglampi, sprott-
inn af að ganga um endalaus-
ar sveitir hins strjálbýla
lands sem farandkennari á
myndarheimilum hreppstj óra
og annarra héraðshöfðingja.
í kvöld hafði hann ekki náð
lengra en í litla bæinn okkar.
Er vosklæðin voru af honum
dregin og hann hafði klæðzt
þurrum fötum og matazt,
leysti hann frá hinum leynd-
ardómsfulla, ferniseraða poka
og dró fram lítið orgel, ó-
skernmt þrátt fyrir rigning-
una, setti á það handsveif,
stillti upp nótnabók og tók
að spila. Hann söng undir af
öllum mætti, svo sem væri
hann í kappsöng við storm-
inn og regnið.
„Það er mikið, að þér
getið ferðazt með orgelið“,
sagði móðir mín, sem þéraði
hann, af því að hún hafði
heyrt, að hann teldi sig í
heldri manna röð.
„Hljóðfærið verður að
fylgja mér“, sagði hann, því
ég kenni börnum söng ásamt
landafræði og öðrum almenn-
urn námsgreinum“, svaraði
hann.
Þá var vikið að almæltum
tíðindum.
„Nú berjast Tyrkir og
Búlgarar fyrir utan Kon-
stantinopel og það er sagt, að
valkestirnir séu svo stórir, að
menn hafi ekki við að grafa
hina föllnu, en verði að hella
yfir þá steinolíu og bi'enna
síðan á báli“.
„Já, mikil ósköp er að
hugsa sér þessi stríð“, svar-
aði mamma. „Hvenær verða
mennirnir svo vitrir að hætta
styrjöldum?“
„Það getur aðeíns hugsazt
með aðstoð gerðardóma í
milliríkjamálum“, svaraði
hann. „Þeir tala líka um það,
sem þeir kalla jafnaðarstefnu
í útlöndum, en samfara heyrir
maður talað um verkföll og
óeirðir. — Já, guði sé lof
fyrir landið olckar, blessaða
friðsama hóhnann“, bætti
hann við.
„Hvað er jafnaðarstefna?“
spurði ég.
„Þú átt ekki að vera svona
framhleypinn, drengur miim,
þegar fullorðið fólk talar“,
sagði pabbi og leit á mig með
ávítunarsvip.
Svo kom ógurlegur þrumu-
gnýr, sem el^ið væri hundrað
hervögnum um himingeiminn
og baðstofan hristist sem í
jarðskjálfta.
„Þetta kemur af rafmagni í
skýjunum sagði gesturinn og
tók að spila á ný. Nú lék
hann með báðum höndum og
knúði sveifina með fótafjöl
líkt og spunarokk.
-----Kvöldið leið. Ljósið
á litla olíulampanum var
slökkt og koldimm vetrar-
nóttin varð einvöld í bað-
stofumii.
1
Raflagningaefni
ávaHt fyrirliggjandi.
Rafmagnsmótorár 1
af ýmsum stærðum,
Raflagnir
í verksmiðjur og nýbyggingar.
VOihaU
á öllum rafmagnstækjum og raflögnum.
Breytingar
á eldri tækjum og raflögnum.
Finnur B. Kristjánsson
löggiltur rafmagnsvirki.
Nökkvavogi 60
Súni 7358.
„SCANDIA" kolaeldavélarnar frá firmanu L. Lange &
Co. Svenborg, Danmörku, hafa þegar öðlast miklar vin.
sældir hér á landi. Þær eru framleiddar í ýmsum stærð-
um, með eldhólfi hægra og vinstra megin, reykrör tengt
í topp- eða bakplötu og hægt er að fá sérstaka viðauka
plötu, sem hylur reykrörið, þegar það er tengt aftan í
vélina, Flestar stærðir eru með innbyggðum vatns-
hitara. Bökunarofninn er mjög góður. Vélarnar eru
sparneytnar og gefa mikinn hita.
Frá sama firma er þvottapotturinn hér til hægri. Hann er rúmgóður,
fæst í ýmsum stærðum, sem gela tekið frá 60—110 lítxa. Hann er með
loki og er granít.emaleraður. Hægt er að fá sérstakan frárennsliskrana á
þvottapottinn. Mjög mikið hefur verið keypt af þessari tegund þvotta-
potla og hafa þeir liíkað ágætlfega.
Vinsamlega liafið samband við næsta kaupfélag sem
getur gefið ýtarlegri upplýsingar um þessi vinsælu tæki.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFELAGA
Iimflutningsdeild — Byggingavörur
JÓLAHELGIN