Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 5
Vilhjálmur £rá Skáholti:
Hugsað
á jólum 1943
O, Jesú minn, jní gafst þeim eitt sinn orSið,
sem ennþá finnur stað,
þótt gullið. vín og gæs og jólaborðið
oft gleðji meir en það.
Sjá, enn í nótt fer unaðskennd um hjartað
af anda hínum gjörð,
og tánaregn, sem hýr í björtmn óði,
er boðar frið á jörð,
en jafnframt verður, Jesú góði,
jörðin okkar rauð af blóði.
Hví skyldi einhvern undra þótt að riði
sú andans draumahöU,
er hjartað skóp svo lireina í ást og friði,
og hér er sagan öll:
Við heyjmu stríð ef höldum það sé gróði
hve hart, sem það er sótt.
Sjá, enn er barizt, blóðið hJjóðkítt hnígur
af hönd og síðti í nótt. —
Sem fyrr ci jörðu, Jesií góði,
er jörðin okkar rauð af blóði.
Og enn í nótt mig giúpur gamla sagan
um góða drenginn þann,
sem ekki vildi arka í stríð og deyja
og ekki drepa mann.
Þeir hengdu lumn á einu augabragði
sem erkifant síns Jands.
Og móðir Jums, sem mætti þar, hún sagði:
Eg minnist ekJd hans. —
Sjá, jafnveJ 'móðir, Jesú góði,
Jét jörðu okkar roðna af blóði.
Og æ má sjá hvar seytlar bJóðið rauða
iir sári á myrkva grund.
0, hvílík sorg að syngja Jjóð í dauða
á svona heJgri stund.
Við höggvum mann, ef höJdum það sé gróði,
því hjartað þráir guJl.
Sjá, ágirndin er okkar dýrsta droitning,
við drekkum hennar fuli,
en játum Jng — ó, Jesú góði —
og jörðin verður rauð af Móði.
hét Jespersen. Nefndi hann
hótel sitt eftir Alexöndru
dóttur Kristjáns konungs IX,
þeirri er gefin var Játvarði
VII. Bretakonungi. Að lokum
hélt Revkjavikurklúbburinn
samkomur sínar að Hótel
Reykjavík og Hótel ísland.
Einu sinni á vetri var hald-
inn grímudansleikur, en har.n
var ekkert bundinn við jól
eða áramót. Venjulega var
hann ekki haldinn fyrr en
síðar um veturinn og fór bá
fram í veitingahúsi uppi við
Skólavörðustíg, sem nefnt
var Geysir. Þar var og
síúlknabaílið haldið, en það
var árleg samkoma, sem
kennd var við þjónustustúlk-
umar í heenum.
A gamlaárskvöld voru engin
sérstök hátíðahöld, önnur en
þau, að efnt var til brennu,
maðurinn þar var danskur og
legast íyrir þeim, en verzl-
arirnar lögðu til kassa, tunn-
ur og annað eldsneyti í
brennuköstinn. A heimilun-
um gerði fólk sér að vísu
einnig dagamun eins og á jól-
unum. Þá var og aftansöngur
í Dómkirkjunni. og aðalmál-
tíðin borðuð áður en farið
var í kirkju. En síðar um
kvöldið var svo borið fram
hangikjöt með grænum baun-
um, og fólk skemmti sér við
eitt og annað fram yfir mið-
nættið. Safnazt var saman við
píanóið og sungnir sálmar og
ættjarðarlög, og loks var spil-
að á spil, og eins og áður
einkum „Púkk“ og „Hálf-
tólf“, en einnig „Lauma“,
„Svarti Pétur“ og sitthvað
fleira.
Á þrettándanum var álfa-
dans og blysför, og voru það
skólapiltar Lærða skólans,
sem stóðu fyrir því. Ég tók
þátt í álfadansinum þegar ég
var í 1. bekk, en þá var ég
aðeins fjórtán ára, smávaxinn
og renglulegur, og sumir af
bekkjarbræðrum minum voru
heldur engir risar, enda hlut-
um við hjá þeim eldri og
burðugri í skólanum sam-
heitið: kettlmgamir. Nú, en
kettlingarnii' þóttust svo sem
menn eins og hinir og hugð-
ust ekki láta sinn hlut eftir
Iiggja í blysförinni og álfa-
dansinum.
Það var venja, að safnazt
væri saman uppi við skóla, og
þar kveikt á kyndlunum, cn
síðan var gengið niður áð
Tjöm og álfadansinn stiginn
við Tjamarhólmann, þegar ís
var á Tjörninni. Reyndu
menn að tína saman litsterka
búninga til þess að klæðast
við álfadansinn, en venjulega
voru þetta þó fatagarmar, sem
ekkert gerði til þótt skemmd-
ust, enda vildi það bera við,
að brunagöt kæmu á fötin af
blysunum, og sótblettir sett-
ust á þau. Þá báru menn og
grímur fyrir andliti, en eins
og lög gera ráð fyrir voru álfa-
drottning og álfakóngur búin
sérstökum skartklæðum,
báru kórönur á höfði,. en
voru grímulaus., Fyrir álfa-
kóng óg drottningu voru
valdir tveir af föngulegustu
og álitlegustu piltunum úr
efri bekkjum skólans, sem
jafnfrarnt voru söngmenn
góðir, en „álfadrcttningin“
var auðvitað strákur, því að
engar stúlkur voru í skólan-
um.
Þegar gengið hafði verið
frá skólanum niður að Tjörn
með blysin á Lofti, skiptist
hópunnn í tvær fylkingar.
Hélt önnur suður með Tjörn-
inni að austanverðu, en hin
vestur með Tjöminni ofan
við Tjamarbrekkuna, og vor-
JÓLAHELGIN
um við kettlingarnir úr 1.
bekk í þeim hópi.
Þá voru engin hús komin
undir Tjarnarbrekkunni cg
var hún grasi vaxin ofan frá
brún og fram á Tjarnarbakka,
Er hún ein af hinum fögru
stöðum gamla bæjarins, sem
ég sakna, en brekkan hefur
verið eyðilögð með bygging-
um og öðru umróti. Brekkan
var undurfögur af náttúrunn-
ar hendi, og minnisstæð er
mér spegilmynd hennar í
lognværri Tjörninni margt
sumarkvöldi.ð. A veturna var
hún leikvangur barnanna lílct
og Tjörnin sjálf, en þá skefldi
tíðum í brekkuna svo að þar
myndaðist hið ákjósaniegasta
sleðafæri og renndu strákarn-
ir sér á sleðum alla leið ofan
frá myllunni á Hólavelli og
niður á Tjörn. Stundum
mynduðust snjóhengjur, þar
sem brekkan var bröttust —
og svo var í þetta skipti er
við skólapiltar gengum með
blysin á lofti suður brekku-
brúnina. En nú var eins og
snjóhengjan væri einmitt tiL
þess gerð að kollvarpa reisn
minni og myndugleik í blys-
förinni, því auðvitað var það
metnaður okkar kettlinganna
og busanna að halda okkar
hlysum ekki v.err á loft en
hetjurnar úr efri bekkjunum
í fylkingunni austan við
Tjör;nna. En svo ólánlega
tókst til fyrir mér, að ég sté
fram af snjóhengju í brekku-
brúninni og steyptist á bóla-
kaf í skaflinn fyrir neðan með
blysið í hendinni. Ég brölti
þarna um í snjónum stundar-
korn með augu, eyru og nef
fuii af snjó; slokknað hafði á
blysinu mínu og þótti mér
þetta illur endi á minni fyrstu
blysför.
En áfram var þó haldið suð-
ur fyrir brekkuna, en þaðan
hélt hópurinn út á Tjörn, og
mættust fylkingarnar við
hólmann, þar sem álfadans-
inn var stiginn og álfalög
sungin af miklu fjöri og
þrótti. Álfadansinn þótti
mikil tilbreytni í bæjarlífinu,
og þyrptust bæjarbúar nið'ur
á Tjörn á þrettándanum til
þess að horfa á dansinn.
I.þá daga var ísinn á Tjörn-
inni oftast glær, svo að það
sást til botns. Þá var Tjöxnin
miklu vatnsmeiri og tærari en
nú, og sjaldan brást það að
mannheldur ís væri á henrii
mestallan veturinn, enda
voru frost þá meiri og t.íðari-,
en verið hafa síðari árin og
staðviðri meiri.
Það var því oft margt urn
manninn á ísnum. Aldrei man
ég þó eftir jafmniklu fjöl-
menni þar og írostaveturimi
mikla 1881 er „Phönbc-menn'1
voru þar með „hringekjiuia"
sína. Þa»n vetur strandaði
póstskipið „Phönix“ vestur
við Skógames á Snæfellsnesi,
en skipshöfnin bjargaðist öll,
að undanteknum matsveinin-
um. Var skipshöfnin mjög
hrakin og margir lágu í kal-
sárum, lengi eftir að þeir
komu til Reykjavíkur. En
þeir af skipshöfninni, sem
rólfærir voru lífguðu hér upp
bæjarlífið með allnýstárleg-
um hætti. Tóku þeir sig til og
settu upp hringekju á Tjörn-
inni, og var þetta bæði gert í
fj áröfl u narsky ni fyrir þá
sjálfa og til skemmtunar bæj-
arbúum.
Þá víu: Tjörnin botnfrosin
og hjuggu Phönix-menn holu
gegnum ísinn, en ráku síðan
langan staur iiiður í botn
Tjarnarinnar. Á þennan staur
smíðuðu þeir hjól með nokkr-
um örmum á. en á armana
eftir svellinu, og voru sæti á
sleðunum. Einhvers staðar
höfðu þeir uppi á lýrukassa,
og stóð einn við hann og spil-
aði í sífellu, meðan aði'ir
gengu á álmur hringekjunn-
ar og hlupu á harðaspretti
kringmu staurinn. Fólkið,
sem sat á sleðunum, hafði af
þessu hina beztu skemmtun,
og mun ekki hafa séð eftir
aurunum, sem hringekju-
stjórarnir settu upp fyrir
ferðalagið í þessu óvenjulega
farartæki. Nokkuð var það
víst, að bæjarbúar þustu út á
Tjörn í hvert sinn er Phönix-
menn hófu að spila á lýru-
kassann og snúa hringekjr
.unni. og mun þetta hafa
orðið þeim nokkur fjárhags-
styrkur, því að auðvitað töp-
uðu þeir öllu sínu í strand-
inu.
Löngu eftir að ísinn Leysti
af Tjörninni stóð staurinn
upp úi' henni, eins. og minnis-
varði um hringekju þeirra
Phönix-manna.
Já, Tjömin hefur löngum
vqrið leikvangur Reykvík-
inga, —- ekki sízt í gamla
daga. þegar skemmtanalífið
var íábreyttara en nú. Þá
voru skcutaferðir aðalvetrar-
íþrótt bæjarbúa, bæði eldra
og yngra fólks. Þá voru aðal-
lega notaðir tréskautar með
jámi neðan í, og náðu menn
ótrúlegri leikni á þessum
skautum. Stálskautar flutt-
ast ekki úm fyrr en síðar.
Ég iðkaði töluvert skauta-
hlaup, þegar ég var drengur
og raunar nokkuð fram ef+ir
aldri. Minnisstæðust verður
mér þó alltaf fyrsta skauta-
ferðin mín, en hana fór ég út
í kálgarðinn bak við hús for-
eldra minna í Austurstræti.
I rigningum komu oft stórir
pollar í garðinn og myndaðist
þar svell þegar frysti. Svo
kom að því, að mér voru
gefnir skautar, og þurfti ég
voru festir sleðar er runnu
auðvitað strax að reyna þá.
En þegar ég sté út á svellið
féll ég beint á hrammana, rak
nefið niður í klakann og
hlaut fossandi blóðnasir.
Þannig var mín fyrsía
ganga á skaut.um. En ég gafst
ekki upp fyrir þetta, heldur
reyndi aftur, og gekk þá bet-
ur, og leið ekki á löngu, unz.
ég fór að sækja TjÖrnina eins
og aði*ir, sem nokkuð þóttust
kunna fyrir sér í þessari
íþrótt.
Mestu skautasnillingamiv*
sem ég minnist frá þessum ár-
um, voru þeir Sveinbjöm
Egilsson, síðar ritstjóri, og
Qlafur Rósinkranz fimleika-
kennari, en þeir voru báðir
hin mestu lipurmenni og léku
alls konar listir á skautunum.
Ymsir fleiri' voru að vlsu
ágætir skautamenn, þó að
þessir tveir bæm af, og
reyndum við. strákamir auð-
vitað að feta í fótspor „meist-
aranna“, með mismunandi
góðum árangri.
Þá þótti það hin mesía
skemmtun að nota skauta-
segl, og sigla Tjömina enda
milli, en þá náði hun allt frá
Dómkirkjunni suður undiv
Vatnsmýri.
Skautaseglin voru búin til
5