Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 31
Landnám nútímans
■:
■;
■
■:
•:
■:
íslenzka þjóðin hefur á síðustu áratugum verið að
nema land sitt að nýju. Hún hefur eignazt kaupskip og
verksmiðjur, gerbreytt verzlunarkerfi sínu, eignazt full-
kominn húsakost og breytt órækt í græn tún. Árangurinn
er betri lífskjör en nokkru sinni fyrr, — betri lífskjör en
flestar þjóðir heims njóta.
Samvinnufélögin hafa verið virkur þátltakandi í
þessu landnámi nútímans. Þau hafa tryggt landsfólkinu
hagkvæma verzlun og ýmist skilað tekjuafganginum
aftur eða notað hann með samþykki félagsfólksins til
að byggja ný atvinnutæki, ný mannvirki, nýjar stoðir
undir hin bættu lífskjör.
Víðs vegar um landið er leitað til kaupfélaganna,
þegar þörf er nýrra framkvæmda, nýrra verksmiðja til að
auka atvinnu og framleiðslu þjóðarinnar. Þannig hefur
þúsundum landsmanna verið tryggð lífvænleg atvinna
og þjóðinni hafa bætzt dýrmæt tæki, sem eru eign fólks-
ins sjálfs.
í samvinnufélögunum er það maðurinn, sem ræður,
en e/(/(/ fjármagnið. Þau eru byggð upp af fólkinu sjálfu,
eru undir þess stjórn og starfa fyrir það. Þróttur, stór-
hugur og vilji fólksins speglast í starfi samvinnufélag-
anna /— og þess .végna' eru þau stór þátttakandi, oft
brautryðjandi, í hinu nýja landnámi. Árangurinn er full-
komnari og hagkvæmari vörudreifing, meiri og betri
framleiðsla úr íslenzkum afurðum, meiri atvinna. Með
öðrum orðum: Árangur samvinnustarfsins er meiri
þjóðartekjur, meiri velmegun.
\'C.
’-V
Qíekfeg. fó(!
Samband ísl. samvinnufélaga