Alþýðublaðið - 24.12.1954, Qupperneq 31

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Qupperneq 31
 Landnám nútímans ■: ■; ■ ■: •: ■: íslenzka þjóðin hefur á síðustu áratugum verið að nema land sitt að nýju. Hún hefur eignazt kaupskip og verksmiðjur, gerbreytt verzlunarkerfi sínu, eignazt full- kominn húsakost og breytt órækt í græn tún. Árangurinn er betri lífskjör en nokkru sinni fyrr, — betri lífskjör en flestar þjóðir heims njóta. Samvinnufélögin hafa verið virkur þátltakandi í þessu landnámi nútímans. Þau hafa tryggt landsfólkinu hagkvæma verzlun og ýmist skilað tekjuafganginum aftur eða notað hann með samþykki félagsfólksins til að byggja ný atvinnutæki, ný mannvirki, nýjar stoðir undir hin bættu lífskjör. Víðs vegar um landið er leitað til kaupfélaganna, þegar þörf er nýrra framkvæmda, nýrra verksmiðja til að auka atvinnu og framleiðslu þjóðarinnar. Þannig hefur þúsundum landsmanna verið tryggð lífvænleg atvinna og þjóðinni hafa bætzt dýrmæt tæki, sem eru eign fólks- ins sjálfs. í samvinnufélögunum er það maðurinn, sem ræður, en e/(/(/ fjármagnið. Þau eru byggð upp af fólkinu sjálfu, eru undir þess stjórn og starfa fyrir það. Þróttur, stór- hugur og vilji fólksins speglast í starfi samvinnufélag- anna /— og þess .végna' eru þau stór þátttakandi, oft brautryðjandi, í hinu nýja landnámi. Árangurinn er full- komnari og hagkvæmari vörudreifing, meiri og betri framleiðsla úr íslenzkum afurðum, meiri atvinna. Með öðrum orðum: Árangur samvinnustarfsins er meiri þjóðartekjur, meiri velmegun. \'C. ’-V Qíekfeg. fó(! Samband ísl. samvinnufélaga

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.