Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 24.12.1954, Blaðsíða 7
fáfkostihn og sá staurana, leiðslumar og farangurinn, fannst mér eins og við vær- um að leggja af stað í slcemmtisiglingu. Fjörðurinn var spegilsléttur, fjöllin stigu inn í bláan himinninn og loft- ið var m-ilt eins og á vordegi. Svartir og hvítir æðarfuglar flugu yfir bátinn. Eftir að við höfðum róið í klukkutíma fór heldur að kólna í veðri og um leið kom dálítil gola svo að við gátum sett upp segl. Samt sem áður sóttist okkur nú hægar en áður, því að á leið okkar varð rekís,. sem sumstaðar var ein samsett hella. Settum við því mann framá og hafði sá exi í hendi, sem hann hjó sundur ísinn með. Þetta varð okkur bara til skemmtunar, enda sáum við að það gerði sjó- ferðina sögulegri. Og allt gekk eins og í sög'u. Við brut- umst gegnum ísinn og héld- um, sem leið lá inn Kolla- fjörð, en hann gengur inn úr Faxaflóa. Klukkan tæplega eitt um daginn komum við í fjöruna íramundan bænum Mógilsá, en bann stendur fyrir botni Kollafjai'ðar. Þegar ég nefni Mógilsá bæ, þá má það ekki blekkja ykkur. Þegar ég kalla þetta bæ, þá á ég ekki við danskan bóndabæ og heldur ekki neinn annan bóndabæ hvar sem vera kynni í heiminum. Eg skal því reyna að gera svolitla grein fyrir myndinni eins ,og hún blasir við okkur og vona ég að á eftir getið þið gert ykkur nokkra grein fyrir bænum. Fyrst sjáum við fimm eða sex burstir, sem standa hver við hliðina á annari. Að framan eru þær klæddar borðum, en að neðan torfi og þá kémur í ljós, að hér er um að ræða jáfnmörg smáhýsi, sem ,,klínt“ er hverju utan í annað. Þarna sjáum við lágar dyr og þarna örfáa glugga. Þetta eru eins og spilahús, en öll eru þau þakin torfi. Og' þar með hef ég naestum því lokið við að lýsa ytra útliti bæjarins. Við skulum hugsa okkur að niaður standi fyrir framan bæinn, og þið þurfið alls ekki að gera ráð fyrir því að hann verði endilega að vera leikfimimaður til þess að geta hoppað af jafnsléttu uppá þökin. Þá koma nokkur koldymm göng, svona eins og greýfingjar og moldvörpur búa til. Maður gætir þess að ganga hálfboginn. Maður fálmar sig áfram, og allt í einu birtist svolítið herbergi — svona eins og greyfingja eða moldvörpuhola og það er sannarlega ekki fýsilegt á að líta. Þetta er „baðstofan“, þar sem íbúarnir hafast við að mestu leyti. Þar er annað hvort gólf eða ekkert gólf, rg húsgögnin eru breið flet, sem standa meðfram veggjunum, og smáborð sem stendur und- ir g'lugganum. Nei, ég hef alls ekki gleymt ofninum. Hann fyrirfinnst ekki. Þar er ekkert hitunartæki. HJiðar- göng leiða okkur inn í javð- hús og þar eru hló.ðir tilbún- ar úr grjóti. Og þar er reykur og myrkur. Þetta er éldh-úsið, á dönsku: Kokkhúsið, reyk- háfur fyrirfinnst enginn, en það er gat efst uppi og í gat- inu er botnlaus síldartunná. Þannig er reykháfurinn. Hin smáhýsin eru skemma, búr, skúr, fjós og einstaka sinnum smiðja og gestaherbergi. Og svo set ég skít og óþverra á víð og dreif og þar með hef ég lokið' við að gera myndina af íslenzka bænum. Ef þið JÓLAHELGIN spýrjið mig um þægindin, þá get ég því miður ekki látið þau í té því að þau fyrirfinn- ast heldur ekki. Ég hef ekki lýst öðru en því, sem ég hef séð — og þannig eru íslenzk- ir bóndabæir yfirleitt. Og í sannleika sagt, ef ég ætti að velja milli þessara lélegu húsakynna og frumstæðustu húsakynna, sem ég hef kyniist annars staðar, tjalda Lapp- anna, þá mundi ég velja hin síðartöldu. Og ef íslendingar þekktu þau, þá mundu þeir, að vísu eftir nokkra umhugs- un, einnig velja þau í stað bæjanna sinna. Ég sagði að svona væri ís- lenzkir bæir yfirleitt, en það er ekki alveg rétt, sumir eru betri, stærri og bjartari, en sumir eru líka enn verri. Réttara mun vera að segja að svona séu flestir íslenzkir bæir til sveita, og margir jafn vel í kauptúnum. Mó- gilsá er í raun og veru hvorki betri né verri. Húsakynnin eru meira að segja sæmileg þegar tekið er tillit til húsa- kynna Islendinga. Gestaher- bergið vai' mjög lítið, fjpgur skref á hverja hlið og jafn hátt. Við fengum það til um- ráða og þar áttum við að mat- ast, sofa og hafast við. Bónd- inn og kona hans gerðu líka allt, sem í þeirra valdi stóð til þess að það gæti orðið það, sem því bar að vera. Það var að eins eitt, sem þau gátu ekki bætt úr — og það var fjárans ofnleysið. Bóndinn á Mógilsá. ég held að hann heiti Sigurður, var, þegar við komum, eins og vera ber á Islandi, ákaflega daufur, þvermóðskufullur og þögull, ogv einnig eins og venja er á Islandi, með báðar hendur á kafi í buxnavösun- um. Fyrst í stað kvaðst hann ekkert vita hvort hann gæti veitt okkur húsaskjól, eða orðið okkur til hjálpar á einn eða annan hátt. En smátt og smátt, eins og líka er siður íslenzkra bænda, varð hann skrafhreifnari og upplits- djai'fari og um leið tók hann hendurnar úr buxnavösun- um. Og það leið ekki á löngu áður en okkur varð ljóst, að hann var dugnaðarmaður, ráðagóður og hinn ágætasti. Urðum við glaðir við og fannst, að við hefðum varia getað fengið betri ráðgjafa. Kona hans reyndist eins, hún beið eftir því að hann gerðist viðvikaliðugur vio okkur, og þegar hún sá, hvernig hann brást við, vildi hún allt fyrir okkur gera, enda leitaði hún eftir því að uppfylla þarfir okl :ar af fremsta megni. Við höfðum tekið með okk- ur danskan fána. Við reistum nú flaggstöng á túninvi og ch'ógum ílaggið að hún. Það var merki þess að rannsókn- arstöðin var komin upp. Að því loknu var farangurinn léistur upp og niðursuðudós- um, flöskum og matarpinkl- um raðað á litla borðið, kommóðuna og kisturnar. Við ætluðum að byrja með þyí ,tð borða okkur sadda, en hvern- ig áttum við að fara að því að semja lyrsta matseðilinn? Og hver átti að vera mat- sveinn? Við ákváðum með f ormlegr i alkvæðagreiðslu, að við skyldum hafa lamba- kjöt og grænar baunir til mat- ar, en erfiðlegar gekk að komast að niðurstöðu .um stöðu matsveinsins. Tveir umsækjendur voru um stöð- una: Alexandra og' Mist.e.r Plumbudding. Sá fyrrtaldi hélt því fram, að hann v'ævi frægur fyrir veislur sínar, en hinn kvaðst hafa verið mat- sveinn á stórskipi á Indlands- hafi. Og þar, sem okkur tókst ekki að komast að neinni nið- urstöðu, þegar um svo frá- bær meðmæli var að ræða, leystum við vandann með því að fela þeim báðum matseld- ina. Þeir sömdu svo sín á milli um verkaskiftinguna og undu báðir úrslitunum, end.a hreyknir af að hafa verið fal- ið svo vandasamt óg virðu- legt starf í þessum merkilega og' söguríka rannsóknarleið- angri. Við mötuðumst að skammri stundu liðinni, en samt höfðu grænu baunirnar spillst mjög í eldhúsreyknum. Við settum það þó ekki fyrir okkur, en vorura vonglaðir og fannst að svo vel hefði allt gengið til þessa, að við gætum gert okkur vonir um'að' rannsókn- arleiðangurinn myndi lánast uppá það allra bezta. Eftir að skipshöfnin á róðr- arbátnum hafði borðað, en því miður gat. ég eliki séð hvað þeir settu í svanginn, var hún send á nági'annabæ- ina til þess að smala saman karlmönnum til þess að að- stoða okkur við efnisflutn- ingana ujsp á fjallið. Og þetta tókst sæmilega. Þennan fyrsta dag leiðangursins tókst að fara með tíu staura upp í fimmtán hundrað feta hæð. Það voru skipverjarnir og nokkrir menn með þeim, sem gerðu það. Esja rís svo að segja af hlaðinu á Mógilsá, og brekk- an er af jafnsléttu næstum því jöfn að stíganda alla leið- iiía upp á hæsta tindinn. Síð- ari hluta dagsins höfðum við dálitla æfingu í klifri. Við fórum upp í átta hundruð feta hæð. Við sem vorum dá- lítið vanir því að ganga á fjöll runnum þetta nokkurn veginn auðveldlega, en hinir kvörtuðu dálítið, Esja var fögur á að líta. Þegar við lit- ura upp fyrir okkur sáum við hæðsta hnúk hennar baðað- an í kvöldsólinni. Hins vegar þótti okkur efri hluti hennar ískyggilega brattur á að líta, en fagur var næstúrn því lóð- réttur veggurinn. Og þegar við litum yfir undirlendið o‘g út á fjörðinn, blasti við okk- ur ógTeymanleg sjón. Eyjarn- ar voru eins og dökkir eðal- steinar á hvítum brjóstum sævarins og umhverfi Reykjavíkur og bakgrunnur- inn undurfagur í hálfrökkr- inu. Okkur gekk ekki eins vel að fara niður og okkur hafði gengið að fara upp, því að á einum stað var snjóskafl og meðan við dvöldum efra hafði hann frosið svo að hann var orðinn ískyggilega sleipur. Við urðum því að skríða yfil' skaflinn á fjórum fótum, og verð ég að segja, að lyfsalinn var heldur skrítinn á að lít.a, klæddur í hreindýraskinns- kápu mína, með Lappaskó á fótum og fjallgöngustaf eins og notaður er í Alpafjöllum. Lengi þennan dag höfðum við veitt athygli þungbúnum skýjum í suðurátt. Þegar kvölda tók snyrti enn meira að og kolsvartur skýjabakk- inn færðist yfir æ stærri hluta af himinhvolfinu. Ég get ekki neitað því að við fór- um að verða vondaufir um góðan árangur af ferðinni. Og loftvogin var á sömu skoðun og við. Við ræddum um útlitið um kvöldið, en reyndum að hressa upp á skapið með því að spila whist. Að lokum lögðumst við þó til hvíldar á sameigin- legum beði, í hey, sem borið hafði verið inn á gólfið. Og þarna sváfum við allir tví- fætlingarnir, að viðbættum ferfætlingunum báðum, og líkast til heilum grúa af sex- fætlingum. En allt fór betur en á horfð- ist. Næsti dagur rann upp heiður og klár og svo leit út, sem hann yrði ekki síðri að fegurð og þokka en fyrsti dagur ferðarinnar. Ég réði nú yfir sextán mönnum. Klukk- an 6 um morguninn hófust þeir handa og fluttu farang- ur upp fjallið. Klukkan 9 tóku þeir það síðasta úr skip- inu og þá fylgdumst við með þeim upp í hæðirnar. Nú setti ég í fyrsta sinn upp íslenzka leðurskó og tók mér íslenzk- an broddstaf í hönd. Mér fannst að hvorttveggja væri ómissandi í svona ferðalag. Til að byrja með finnst manni, að íslenzkir leðurskór séu furðuleg uppfynding, svona álíka líklegir til nyt- semdar op hið undarlega pott- lok með skotti, sem íslenzkt kvenfólk hefur oft á höfðinu, og festir í hárið með öryggis- nælum. Skórnir eru dálítil skinnpjatla, sem fest er við fæturna með þvengjum. Að sjálfsögðu eru þeir, sem þann- ig eru búnir allt af blautir t.il fótanna, það er að seg'ja ef nokkur væta er, en Islend- inguin virðist standa alveg á sama, því að þeir eru vanir þessu. En hinir miklu kostir slíks fótabúnaðar eru, að þeir laga sig og falla við allar breytingar fótvöðvanna, eru rúmir svo að fæturnir eru frjálsir svo að maður jafnvel gleymir því að maður sé með skó á iotunum. Þegar maður, sem er óvánur að ganga á svona skóm, gengur á grýttri jörð kveinkar hann sér, að nvnnsta kcsti til að byrja með, dn þetta kemur líka upp í vana. Þegar göngumað- ur fer um hálku eða ísi lögð vöt.n bindui' hann undir yl sér járnplötu með hvössum gödd- um og' er þetta ágætt til þess að gera hann stöðugri og ör- uggari á göngunni. íslenzki broddstafurinn er hið mesta þarfaþing hvort sem maður þarf að fara yiir á eða vatn, eða á ís til þess að kanna íyrir sér, eða fara Kollafjörðiir. á fjöll að vetri til. Broddstaf- urinn er venjulega eins og kústskaft og í enda hans er márgra tomma langur brodd- ur. Hann er sjálfsagður föru- nautur íslendinga á ferðalög- um að minnsta kosti að vetri til. Við þræddum vesturbakka lítils læks, sem steypist niður af fjallinu og myndar smá- fossa við og við. Á víð og dreií eru grasflákar, en ann- ars er jarðvegurinn malbor- inn og sumstaðar stórgrýti. Fjallið er ekki bratt, að minnsta kosti ekki til að byrja með, en einstaka sinn- um rekumst við þó á allbratta bakka, og þá verðum við að taka á öilu, sem við eigum til ,uppgangan reynir þá mjög á fæturna og' lungun og svit- inn drýpur af okkur. Það var mikill hugur í Skotunum og voru þeir allt af dálítinn spöl á undan okk- ur. Mister Plumbudding kvað þetta hreinan barnaleik á móts við það að klýfa Chim- bcrazo. Lyfsalinn lá heldur ekki á liði sínu, enda hafði hann ekki enn fundið til svimans, sem hann hafði á- kveðið ger-t ráð fyrir að hann mundi fá, heldur ekki hafði hann horft niður í neitt hyi- dýpi og ekki séð neitt hengi- flug. Annars hafði hann líka, svona til vonar og vara, feng- ið sér fylgdarmann, sem átti að hafa það hlutverk að leiða hann og styðja ef að sviminn kæmi yfir hann. Gestgjaíinn á hótel Alexandra vildi allt af vera að hvíla sig, og það gat ekki dulist okkur, að hann var farinn að sjá eftir því að hafa tekið þátt í þessu fííl- djarfa flani. En í hvert sinn, sem hann hafði hvílt sig í nokkrar mínútur reis hann aftur á fætur og héit af stað, en hann gekk aldrei lengur í einu en sem svaraði síðasta hvíldartíma þangað til hann þurfti aftur að hvíla sig. Brátt virtist hann vera orðinn svo- aðframkominn, að hann yrði að lengja hvíldartímana um helming, og varð ég þá að til- kynna honum, að við gætum ekki látið hann hefta svona för okkar — og yrðum við því að yfirgeía hann þar sem hann væri kominn þó að okk- ur þætti það mjög miður. Hann sagði okkur að fara fjandans til, hann skyldi sýna okkur hvort hann kæmist ekki aila leið upp alveg eins og við hinir. Og svo gengum við, klifi'- uðum og skriðum hægt og bítandi upp fjallið. Leiðin upp í tvö þúsund feta - hæð var hvergi mjög brött eða hættuleg. Við þurítum .heid- ur ekki að sjá um flutmng á öðru en sjálfum okkur. Öðru máli gengdi um verkamenn- ina rnína, sem báru þungar byrðar. Samt sem áður gat ég ekki annað séð en að förin væri þeim barnaleikur einn. Þeir voru glaðir og kátir, sí- fellt hlæjandi og með gaman- yrði á vörum. Það var unun að fylgjast með þessum mönn- um. Siðustu 500—600 fetin upp á hæðsta tindinn voru erfið og jafnvel hættuieg. Þar er fjallið snarbratt og snjórinn beinfreðinn og háll. Við út- lendingarnir liefðum alls ekki komist þennan spotta, hefð’u íslendingarnir ekki yerið búnir að fara á undan og höggvið tröppur eða spor i klakann. En við urðum að fara varlega, imitmiða hvert spor, því að ef fótur skrýppi úr spori, þá var voðinn vís og maður mundi stevpast nið- ur snarbrattann. Hvað eftii' 7

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.