Tíminn - 21.01.1965, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 21. janúar 1965
TÍMINW
irm rc í iMm
Páll Zóphóníasson
- Kveðja frá Austurlandi
Páll Zóphóníasson fyrrum al-
þingismaður lézt í Borgarsjúkra-
húsinu í R-vík 1. desember s. 1.
Með honum er horfinn af sviðinu
einn sérstæðasti persónuleiki og
mannvinur meðal vor íslendinga.
Páll var okkur Austfirðingum
að góðu kunnur og sat á alþingi
fyrir Norður-Múlasýslu sam-
fleytt í 25. ár.
Vinsældir hans voru miklar,
enda lagði hann sig allan fram í
starfi fyrir fólkið, sem trúði hon
um fyrir umboði sínu. Hann not-
aði hverja stund í lífi sínu til að
vinna að velferðarmálum og var
ráðhollur og traustur í öllum sín-
um störfum. Páll var ráðunautur
Búnaðarfélags íslands um langt
skeið og ferðaðist um landið allt
og var því þrautkunnugur bænd
um og búaliði, og þekkti hver að-
staða þeirra var. I-Iann mætti hér
á búnaðarnámskeiðum og hélt sýn-
ingu í nautgripa- og sauðfjárrækt,
enda einn af brautryðjendum
slíkra sýninga hér í landi.
Páll var sérlega laginn leiðbein-
andi og sá fyrir í því starfi.
Enda tilhlökkun margra að mæta
á sýningunum og heyra Pál út-
skýra búfjárrækt og sjá hann um-
gangast skepnurnar.
Páll kom alls staðar fram sem
félagi og jafningi meðal fólksins
og taldi að honum bæri að verja
þau vé sem honum var trúað fyr-
ir.
Þess vegna var hann ekki myrk
ur í máli, ef hann sá, að verið
var að spilla málum eða samstarfi,
sem hann taldi nauðsynlegt.
Það fer því ekki hjá því, að
margir staldri við í þessu landi
við lát Páls Zóphóníassonar og
minnist mannkosta hans. Slíkar
minningar er gott að geyma með
sér og verður mörgum drýgra
veganesti en auður og völd geta
veitt.
Umhyggja Páls Zóphóníasson-
ar og velvild til íslenzkra sveita
og fólksins þar, var einlæg og
fölskvalaus, enda var hans lifs-
starf að vinna fyrir landbúnað-
inn í einni eða annarri mynd.
Eg átti þess kost að kynnast
Páli allnáið á vegferð okkar í líf-
inu.
Hann kom til föður míns á ferð
um sínum um Héraðið. Hann
gleymdi ekki okkur krökkunum,
talaði hlýlega til okkar og klapp-
aði okkur á kollinn í kveðjuskyni.
Þannig var velvild hans og við-
mót til allra manna og hjálpsem-
in sjálfsögð. ef unnt var að veita
hana.
Páll Zóphóníasson skrifaði
mörgu fólki bréf í landinu og
hafði þannig lífrænt samband vítt
um landið.
Ég veit að þau bréf skipta senni
lega þúsundum og að enginn mað-
ur hafi haft jafn náið samband
við jafn margt fólk og Páll Zóphón
íasson.
Bréf Páls eru að sjálfsögðu
varðveitt og bréf til hans. Það
mun vera mikið verk að vinna
úr þeim og raða beim upp eftir
efni og aldri.
Fyrirgreiðsla Páls var einstæð.
Það var eins og hann gæti alltaf
haft tíma til að leysa úr öllum
vanda.
Þannig er þegar mannkostir.
mannþekking, velvildin og þjón-
ustusemin eiga samleið. Páll hafði
þetta allt í ríkum mæli
pál) átti bæði unga og gamla
að vinum sínum, karla og konur. í
Hann átti því samleið með mörgu
fólki, sem nú að leiðarlokutn
hugsar hlýtt til hans og með
innilegu þakklæti.
Störf Páls Zóphóníassonar voru
mikil fyrir Norð-Mýlinga og
marga aðra hér á Austurlandi.
Um leið og Páll kom hér til
okkar vissu allir um hann og
vildu margir ná fundi hans bæði
samherjar Páls í stjórnmálum og
þeir, sem studdu aðra flokka.
Ég var aldrei samherji Páls í
stjórnmálum, en hafði samt mik-
ið dálæti á honum, og fann hlýj-
una streyma frá honum um mann
lífið.
Það eru slíkir mannkostir, sem
rnestu skipta um framvindu mann-
kynsins á þessari jörð og sterk-
asta aflið til góðra verka, þó það
sé ekki sýnilegt öllum mönnum.
Á ferðum mínum til R.víkur
kom ég oft á heimili Páls og Guð-
rúnar Hannesdóttur konu hans,
sem lézt í fyrra.
Ég átti marga ánægjulega stund
hjá þeim á heimili þeirra á Sóleyj
argötu 7, og fann hinn ferska
anda og velvild, sem var með
þeim hætti að öllum leið vel í
návist þeirra. Heimili þeirra Páls
og Guðrúnar var sannkallað „Unu
hús“ fólksins.
Ég vil af heilum hug þakka
þeim hjónum innilega fyrir við-
kynninguna og þá velvild sem þau
sýndu mér og mínu fólki alla tíð.
Sagt er að dauðinn nálgist og
maðúrinn deyi, þegar hann skil-
ur við jarðvist sína.
Það er hugtak sem við jarðar-
innar börn höfum. Ekki er
vist að það sé rétt, enda ekki gott
að skilgreina hvað gerist.
Lífið og tilveran birtist okkur
í ýmsum myndum meðal annars
er við endum lífið hér í þessari
mynd. sem við blasir. Ég held,
að það sé enginn dauði til, nema
sem áfangi á langri leið i eilífri
hringrás viðburðarásarinnar. sem
engan enda hefur.
Mér er þetta sérlega hugstætt
við andlát Páls Zóphónías-
sonar og veit ^ð hann var æðru-
laus i sinni síðustu för sem á ann-
! arri vegferð sinni i lífinu.
Verkin hans, góðvildin, mann
úðin, hinn ferski andi og mann-
vit. leikur um strönd og dal og
mun vp' ðfc bað egaresi sem vel
i hefur dugað mörgum og margir
munu varðveita í sjálfum sér ekki
sízt á þessum róstursömu og
óráðnu tímum. Til að auka sam-
starf og skilning og nota hið
stutta líf, sem hver kynslóð hefur
til góðra verka.
Þannig varðveitum við og laun-
um Páli Zóphóníassyni hans
mikla framlag, sem er einstætt
í sinni röð í þessu landi.
Ég þakka þér, kæri vinur, það
sem þú varst mér og mínurn og
þá hjálpfýsi, sem þú sýndir fólk-
inu í sveitunum, sem bjó við ein-
angrun í samgöngum og síma-
leysi, menðan það var viðvarandi.
Landbúnaðarmenn íslands
minnast þín bezt með því að
halda vel vöku sinni og vinna að
bættum hag og uppbyggingu svo
ungir íslendingar megi taka við
og halda uppi reisn landbúnaðar-
ins sem aflgjafa í atvinnu og
menningarlífi og uppeldi þjóðar-
innar í nútíð og framtíð.
Þér þótti vænt um Fljótsdals-
hérað og fólkið í austfirzkum
byggðum. Víst er að það ber til
því hlýjan hug og inilegt þakk-
læti. Þó það sé ekki í letur fært.
Með þessum orðum kveð ég þig
hinztu kveðju. Með þökk fyrir
allt.
Eg sendi börnum Páls Zóphón-
íasarsonar, barnabörnum og öðru
venzlafólki mínar innilegustu sam
úðarkveðjur og óska þeim vel-
famaðar og blessunar á komándi
tíð.
Skrifað á jólum 1964.
Einar Ó. Björnsson.
Mýnesi.
Látið okkur stilla og herða
upp nýju bifreiðina. Fylgizt
vel raeð bifreiðinni.
BlLASKOÐUN
Skúlagötu 32 - sími 13-100
Bændur
K. N. Z. saltsteinninn
er nauðsynlegur búfé yðar.
Fæst i kaupfélögum um
land allt.
HJOLBAKDA VIOtiERÐlK
Opið alla daga
<lfka laugardaga og
mnnudaga
frá kl 7.30 til 22
GUMMÍVINNUSTOFAN n t
Skipholtl 35 Revkjavik
úml 18955
VERZLUNARSTÖRF
Afgreiðslumaður óskast í vélaverzlun.
== HÉÐINN =
Vélaverzlun
Seljavegi 2, sími 2 42 €0
Rafmagnsvörur í bíla
ÍVIPAS
Kramlugtarspeglar 1 brezka
bíla hásDennukefli stefnu
IjósalugtiT og biikkarar
WIPAC aieðslutæki, hand-
hæg og ódVr
SMYRILL
Laugavegi 170
Sími 1-22-60.
Sendill
óskast strax, vinnutími fyrir hádegi,
Bankastræti 7, sími 12323
PILTAR.
EFÞIOEICID UNNUSTUNA
ÞÁ Á ÉS HRINMNfl /
LAUGAVEGI 90-Q2
Stærsta úrval bifreiða á
| einum stað. Salan er örugg
| hjá okkur.
fögfr.skrifstofan
Iðnaðarbankahúsinu
IV hæS.
Tómas Arnason og
Vilhjálmur Arnason
TftÚLDFUNAR
HRINGIR
AMTMANNSSTIG 2
HALLDÖR KRISTINSSON
gullsmiður — Sími 16979
ÞAKKARÁVÖRP
Þakka innilega öllum, sem á einn eða annan hátt
glöddu mig á áttræðisafmæli mínu II. jan s.l.
Guð gefi ykkur gleðilegt ár og farsæla framtíð.
Sigurður Einarsson
frá Vogi.
Útför mannsins míns
Sveins Sveinssonar
frá Fossi,
fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 23. jan. kl .10,30 f.h.
Bióm vinsamlegast afþökkuö, þeim sem vildu minnast hins látna
er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Athöfninni verður útvarpað.
Jóhanna Sigurðardóttir
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
frú Signý V. Magnúsdóttir,
Bakkavelli,
sem lézt í Landspítalanum 11. þ. m. verður jarðsungin að Breiða-
bólstað, Fljótshlíð laugardagtnn 23. þ. m.
Húskveðja verður að heimili hinnar látun kl. 13 sama dag. Blóm
eru vinsamlegast afþökkuð, en þelm sem vlldu helðra mlnningu
hennar er bent á líknarstofnanir.
Hörður Sigurjónsson,
Jónina G. Slgurjónsdóttir,
Magnús Sigurjónsson,
Vlktoría Þoraldsdóttlr
og barnabörn.