Tíminn - 21.01.1965, Side 12
12
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 21. janúar 1965
ÞAU SVARA HUGH
TREVOR ROPER!
Hr. ritstjóri.
Prófessor Trevor-Roper hefur
sjálfur gert tilraun til morðs —
mannorðsmorðs gagnvart Warren
nefndinni. Það er réttlætanlegt að
nota svo sterk orð, af því að það,
sem hann kallar „þunga-
miðju staðreyndanna" er í raun-
inni múrsteinar gerðir úr hálmi.
Það finnast gallar á Warren-
skýrslunni, en þær ásakanir Trev
or-Ropers, að nefndin hafi „hald-
ið leyndum og eyðilagt" mikilvæg
sönnunargögn standast ekki nán-
ari athugun. Þeir, sem áður voru
í tengslum við Warren-nefndina,
hafa neitað að láta í ljós skoðan-
ir sínar á árás hans, af því að
þeir líta svo á, að hún sé ekki
skólamannsleg könnun málsins,
sem verðskuldi opinber mótmæli.
Sú staðhæfing hans, að pokinn,
sem Oswald flutti riffilinn í, hafi
verið eyðilagður og eftirlíking ver
ið látin koma í staðinn, var að
engu gerð í grein John Sparrows
á sunnudaginn.Pokinn er enn til.
Það er einnig röng sú staðhæf-
ing, að „læknirinn var talinn á að
breyta læknisskýrslu sinni,“ eins
og Sparrow sýnir fram á með því
að vitna í Warren-skýrsluna.
Hann segir, að það „geti ekki
verið satt,“ að Dallas-lögreglan
hafi ekki haldið neinar bækur um
yfirheyrzlurnar yfir Oswald og
slíkar skýrslur „sé gerðar sjálf-
krafa í hinum lítilvægustu mál-
um.“ Samkvæmt áliti sérfræðinga,
sem kunnugir eru starfsaðferðum
lögreglunnar hér í landi, eru slík
samtöl sjaldnast skrásett nema
frá þeim tíma, þegar hinn grun-
aði viðurkennir sekt sína að ein-
hverju leyti eða gerir játningu.
Oswald játaði aldrei neitt. Hvað
snertir F.B.Í. (Federal Bureau og
Investigation eða ríkisleynilög-
reglan), þá eru það gildandi fyrir
mæli, að lögreglumenn eiga að
eyðileggja minnisblöð sín, þegar
þeir hafa skrifað skýrslu sína Ein
af ástæðunum fyrir þessu
er hæstarréttarúrskurður, sem
heimilar verjanda að krefjast þess
að fá aðgang að slíkum uppruna-
legum minnisblöðum. Slíkar starfs
aðferðir kunna að vera miður góð
ar, en svo virðist að það sé al-
gild regla hér.
Ástæðan fyrir því, að sagt er,
að frásögn Brennans hafi „að öll-
um líkindum“ verið grundvöllur-
inn fyrir lýsingu þeirri á Oswald,
sem lögreglan útvarpaði, var
óþörf gætni þeirra, sem sömdu
hana. Þeir, sem kunnugir eru
samningi skýrslunnar, segja að
frásögn Brennans hafi raunar ver
ið eina undirstaðan Tevor-Rop-
er skjátlast, þegar hann segir, að
„hver lögreglulýsing, sem leiði
til handtökutilraunar, hljóti að
að hafa verið byggð á ein-
hverri ákveðinni sönnun“. Tippit
var ekki að reyna .íandtöku,
hann var aðeins að framkvæma
venjulega rannsókn, sem gat
snert hvaða borgara ' sem var.
Hvað Oswald snerti, þá hafi
þetta getað leitt til handtöku if
því að hann bar byssu.
Það er rétt, að lögreglumenn-
irnir þrír skýrðu ekki í nokkra
daga frá játningu Rubys á því,
hvað hann hefði komizt inn í lög-
reglubygginguna. Dallas-lögregl-
an verðskuldar ekki, að húr. sé
varin, en Ruby kann að hafa játað
síðar, að hann hafi komið inn
um aðalinnkeyrsluna. af því að
hann vildi ekki gera iögreglunni
óleik, því að hann var í vinsam-
legu sambandi við hana. Og ig-
regluþjónarnir þrír kunna ai hafa
hikað við að gefa smá upplýsing-
ar, af því að þeir vildu ekki koma
sjálfum sér í vanda. En þessi
framburður er ekki „þúnga miðja
staðreyndanna," sem sannar neitt
mikilvægt.
Það er að sjálfsgðu satt, að
enginn sá Oswald raunverulega
bera byssuna inn í bókageymslu-
bygginguna eða sá hann raun-
verulega skjóta. En vandlega sam
antekin gögn, sem byrja á kaup-
um á byssunni allt til þeirra
sönnunargagna, sem saman var
safnað eftir morðið, gera að verk-
um, að Oswald einn hefur getað
verið morðinginn. Efasemdimar
stafa af klaufagkap Dallas-lög-
reglunnar og sumra þeirra gagna,
sem vantar og ógerningur er að
grafa upp.
Henry Brandon, ‘
Wasíhington.
NB: Henry Brandon hefur árurn
saman verið fréttaritari The Sun-
day Times í Washington.
Auðvitað er Oswald sekur.
eftir Rebecca West, skáldkonuna
frægu.
Ekki er langt um liðið síðan
það sýndi sig, að jafnvel vel viti-
borið fólk gat lesið út úr Warren-
skýrslunni um morðið á Kennedy
forseta eitthvað, sem ekki stend-
ur í henni. En jafn satt er þaö,
að fólk hefur ekki lesið út úr
'henni það; sem stendur þar skýr-
um stöfum-
Sú ályktun, að Oswald sé ekki
maðurinn, sem grandaði Kenne-
dy forseta, hefði verið umhugsun-
arverð, þótt fyrir hendi væru mikl
ar líkindasannanir, ef hann hefði
verið manngerð, sem ólíkleg var
til að fremja slíkan glæp, og ef
hugarfar hans 'hefði mótazt af
hlutleysi um það leyti, sem morð-
ið var framið. En Warren-skýrsl-
an sannar, að hann var hinn dæmi
gerði vitfirringur, sem drepur
þjóðarleiðtoga, og hann var í
klóm kringumstæðna og ömur-
I legra örlaga, sem þvinguðu hann
I til ódæðisverksins.
Þessi ólánsmaður átti einskis
úrkosta. Tveim mánuðum áður en
drengurinn fæddist dó faðir hans,
og móðurinni gekk illa að horf-
ast í augu við við eiginmanr.smiss-
inn og fátæktina, sem af honum
leiddi. Drengurinn var á þvælingi
milli munaðarleysingjahæla, tók
ástfóstri við stjúpföður. sem móð-
ir hans síðan skildi við. Þegar
hann skrópaði frá skóla, va hon-
um komið fyrir á „uppeldishæli"
fyrir ungmenni innan um barna-
morðingja og eiturlyfjaneytendur,
sem honum stóð óskaplegur stugg-
ur af.
Sem fulltíða maður hafði hann
til að bera óvenjulega eðlisgreind,
en var dómgreindarlaus og hafði
enga hæfileika til að notfæra sér
menntun eða þjálfun. Hanr var
nokkuð slyngur, en afar kjánaleg-
ur og sérlega þrætugjarn. Per-
sónuleg tengsl hans við annað
fólk urðu að engu. Hann reyndi
að finna ópersónulega móður með
því að hlaupast á brott til Sovét-
ríkjanna, en sneri þaðan aftur
enn meir villuráfandi og hatramm
ari en nokkru sinni fyrr.
Þá lenti hann í annarlegu ólám.
Fjórum mánuðum eftii að hann
kom aftur frá Sovétríkjunum i
október 1962 missti Oswald starf
sem iðnverkamaður í plötusmiðju.
I Fór hann þá til vinnumiðlunar-
; skrifstofunnar í Dallas og sagði
embættismönnunum þai. að hann
i vildi ekki halda áfram að starfa
sem iðnverkamaður í verksmiðju,
en lét í ljós, að hann óskaði að
stunda ritstörf. Starfsráðunautur
játaði fyrir Warren nefndinni, að
hann hefði tekið gildar óskir Os-
walds, vegna þess, að við hæfnis-
próf hefði „munnlegur" og „skrif-
legur“ árangur hans reynzt fram-
úrskarandi.
Starfsráðunautunum yfirsást í
einu atriði. Oswald þjáðist að veru
legu leyti af eðlislægri veilu, sem
hindraði hann í að hafa vald á
réttri stafsetningu, þótt hann gæti
lesið reiprennandi og til nokkurs
gagns.
Þessum ógæfumanni var kom-
ið fyrir sem lærlingi hjá verzlun-
arauglýsinga myndastofu. Þótt
hann legði töluvert að sér við hið
nýja viðfangsefni, er ekki að
undra, að í aprílmánuði 1963 var
hann aftur kominn í vinnu við
að smyrja kaffivinnsluvélar. Hann
hlýtur að hafa verið altekinn af
beiskju og vonsvikinn af því að
hafa ekki getað bætt aðstöðu sína,
ekki hvað sízt þar sem hann hafði
fengið byr undir vængi hjá opin-
berum aðilum.
Eftir þetta urðu persónuleg
samskipti hans við aðra enn erf-
iðari. Hann varð byltingasinnað-
ur og vildi blanda sér í alheims-
mál. Hann hélt uppi trylltum
áróðri fyrir Kúbu og reyndi að
komast aftur til Sovétríkjanna, en
báðar þessar tilraunir hans voru
að engy. gerðar. Það er ekki hót
að undra, þó að hann skyti að
Kén'nfedy forseta 22. nóvember
1963. Og þar sem hann hafði feng-
ið þjálfun í skotfimi í landgöngu-
liði sjóhersins, er heldur ekki að
furða þótt honum tækist að skjóta
forsetann til bana.
í sannleika er ekkert til að
furða sig á frá byrjun til enda
í frásögninni um Oswald sem
manngerð, er gat verið líkleg til
að myrða Kennedy forseta. En
það væri undrunarefni, ef einhver
hópur valdamanna til vinstri eða
hægri bæri ábyrgð á morðinu.
Þeir hefðu getað beitt hundrað
liprari og áhættuminni aðferðum
við hermdarverkið.
í áróðrinum fyrir sakleysi Os-
walds vantar helztu atriðin til að
gera hann trúlegan, og hann get-
ur aðeins haft áhrif á móðursjúk-
ar og auðtrúa manneskjur. En án
allrar aðdáunar verður að viður-
kennast, að þessi áróður er rek-
inn af óvenjulegu kappi og þraut
seigju. Eitthvað vakir fyrir áróð-
ursmönnunum — en hvað?
B.S.R.B.
Framhald af 1. síðu.
i
! synjunar". Mun því fara fram
j slík atkvæðagreiðsla um ákvörð
un stjórnarinnar.
Atkvæðisrétt eiga allir ríkis
starfsmenn innan B.S.R.B. og
: einnig þeir fastráðnir ríkisstarfs-
j menn, sem ekki eru félagsbundn
j ir í B.S.R.B. Yfirkjörstjórn B.S.
j R.B. hefur ákveðið eftirfarandi fyr
irkomulag á atkvæðagreiðslunni:
Laugardaginn 13. febrúar og
sunnudaginn 14. febrúar verða
greidd atkvæði á þessum kjör-
svæðum: Reykjavík (þar með
Kópavogur og Seltjarnarnes).
1 Akranesi. ísafirði, Siglufirði, Ak-
ureyri, Vestmannaeyjum. Selfossi.
Keflavík (þar með Narðvíkur
og Keflavíkurflugvöllur) oe Hafn
arfirði (þar með Garðahreppur).
Verður nánar tilkynnt síðar hvar
kjörskrá liggur frammi, kjörstaði
og hve lengi atkvæðagreiðslan
stendur.
Utankjörstaðagögn til allra rík-
i isstarfsmanna, sem starfa utan
Frumsýning í kvöld
í kvöld verSur frumsýning á Litla-
sviðinu í Lindarbæ á einþáttungun-
um Sköllótta söngkonan, eftir
Ionesco og Nöldri eftir Gustaf Wied.
Leikstjóri er Benedikt Árnason, en
leiktjöld eru gerð af Lárusi Ingólfs
syni. Leikendur eru: Valur Gísla-
son, Gunnar Eyjólfsson, Árni
Tryggvason, Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir, Herdís Þorvaldsdóttir, Nína
Sveinsdóttir, Brynja Benediktsdóttir,
og Kristbjörg Kjeld. Þýðandi er
Bjarni Benediktsson.
Myndin er af Guðbjörgu og Brynju
í hlutverkum sínum í Nöldri.
þeirra svæða, sem hér eru tal-
in, hafa þegar verið póstlögð og
þurfa þeir að kjósa strax og
kjörgögnin berast þeim í hend-
ur svo að atkvæðin komizt í
hendur yfirkjörstjórnar fyrir
febrúarlok. Ef kjörseðill hefur
ekki borizt ríkisstarfsmanni í
febrúarbyrjun, þá er viðkomandi
beðinn að tilkynna það til skrif
stofu B.S.R.B., Bræðraborgarstíg
9, símar 13009 og 22877.
Athygli skal vakin á því, að
kjörskrá hvers svæðis er miðuð
við vinnustað, en ekki heimilis-
fang. Þannig er t. d. Reykvíking
ur, sem starfar á Keflavíkurflug-
velli, settur á kjörskrá í Kefl'avík.
Þó getur hann kosið utan kjör-
staðar á kjördegi í Reykjavík, ef
honum hentar það betur.
Allar undirkjörstjórnir hafa
fengið senda kjörseðla fyrir utan
kjörstaðaatkvæðagreiðslu og geta
þeir, sem eru á kjörskrá í öðru
kjörsvæði, hagnýtt sér það. Þeir
sem eru á kjörskrá í Reykjavík
en verða fjarverandi 14. og 15.
febrúar, geta greitt atkvæði utan
kjörstaðar á skrifstofu B.S.R.B.
SVARTAR FJAÐRIR
FramhaJd al ois ib
spurningum um ástina, teygðu
þær sig eftir honum og sulgu
í sig Svartar fjaðrir hans og
fengu þá samhljóm við til-
finningarnar — kannski að-
eins þá. Á tímabili var það
óskadraumur svo margra ís-
! lenzkra kvenna að fá að sjá
í Davíð skáld frá Fagraskógi,
eina manninn — að þeirra
! hyggju — sem kunni að virða
; það, sem var öll tilvera beirra
j ljóðin hans sögðu þeim . .“
Ragnar Jónsson forstjóri
Helgafells sagði fréttamönnum
í dag, að áformað hefði verið
að gefa einnig út heildarút-
gáfu á ritum Davíðs nú á sjö-
tugsafmæli skáldsins, sem lézt
fyrir tæpu ári, en sú útgáfa
varð síðbúin og kemur út í
maí. Fyrsti útgefandi Davíðs
var Þorsteinn M. Jónsson á
Akureyri, en síðan Helgafell
tók við útgáfu rita skáldisins
hefur ritsafn hans komið ut
tvívegis og er énn orðið ófá-
anlegt fyrir nokkru, en forlag-
ið gefur nú Svartar fjaðrir út
i fjórða sinn síðan Davíð
k'arð Helgafells-höfundur.
ERLENT YFIRLIT
Framnald ai o. síðu.
Bliss er fremur hár maður
og þéttvaxinn (5-feet, 9 inchis,
175 pound, segja amerísku
blöðin!). Hann er sagður
þægilegur í viðmóti og koma
vel fram á fundum, þótt hann
sé í eðli sínu hlédrægur.
Tilnefning hans í embætti
framkvæmdastjórans þýðir
síður en svo, að deilunni í
flokki republikana sé lokið eða
að Goldwater hafi beðið telj
andi ósigur. Að sumu leyti er
það til léttis fyrir Goldwater
að þurfa ekki að berjast fyrir
því, að Burch héldi áfram.
Hann getur nú beint kröftum
sínum betur að öðrum við-
fangsefnum. Bliss mun líka
gæta þess að vinna ekki gegn
honum. Útnefning Bliss mun
hins vegar þýða það, að kapp
samlega verður unnið að því
að bæta flokksvélina hvað
sem ágreiningnum í flokknum
líður. Jafnframt mun verða
reynt að vinna þannig, að
ágreinings í flokknum gæti
minna út á við en áður, en
reynt í staðinn að velja vin-
sæl baráttumál, er flokkurinn
getur staðið saman um.
Útnefning Bliss þýðir, að
breytt verður um starfsaðferð
ir fremur en stefnu. Þ.Þ.
VÍÐAVANGUR
Framh. af bls. 3.
„Nei, góðir hálsar. Það
þarf engan að undra það þó
við fulltrúar verkamanna á síð
asta Alþýðusambandsþingi
gleyptum ekki við því að taka
fulltrúa íhalds og Krata í
stjóm Alþýðusambandsins. Við
þekkjum okkar heimafólk bet
ur en svo, að við treystum
þeim mönnum, sem búið hafa
að okkur á síðustu árum eins
og raun ber vitni, til þess að
fara með okkar mál.“
Þarna kemur viðhorf verka
manna umbúðalaust fram,
hvað sem kommúnistaforingj
ar í Reykjavík hafa viljað. Og
raunar virðist þeim rétt sneið
in.
4uglýsið i límanum