Tíminn - 21.01.1965, Síða 16
'jr. ■ . #
15. tbl. — Fimmtudagur 21. janúar 1965 — 49. árg
MINNISVARÐI
í FAGRASKÓGI
HS—Afeureyri, miðvikudag.
„Hvar sem ég er staddur á hnett
inum er skammt heim í Fagra-
skóg“. Þessi orð lét Davíð Stefáns
son skáld frá Fagraskógi eitt sinn
falla. Hann hefði orðið sjötugur
á fimmtudag, og hún hafa nokk-
ur samtök í Eyjafirði ákveðið
að reisa honum minnisvarða í
Fagraskógi.
f fréttatilkynningu um þetta
mál segir svo: „Eins og kunnugt
er samþykkti Ungmennasamhand
Eyjafjarðar á síðasta ársþingi sínu
í aprfl, 1964, áskorun til félagssam
taka í héraðinu um að reisa Davið
Stefánssyni, skáldi frá Fagraskógi,
Mjólkur-
flutningar
falla niöur
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Tíminn hafði í dag tal af Ólafi
Ólafssyni kaupfélagsstjóra í Króks
fjarðamesi, spurði hann frétta úr
byggðarlaginu. Ólafui sagði að
hríðarveður hefði verið flesta daga
síðan um hátíðar, væri mikill
snjór kominn á láglendið, og all-
ir vegir ófærir smærri bifreiðum
Þó hefur verið fært fyrir jeppa
í Reykhólasveit og Geiradal. Veg-
urinn fyrir Gilsfjörð hefur verið
lokaður síðan um áramót o;. hafa
því mjólkurflutningar 'austur-
hluta Barðastrandarsýslu til mjólk-
urbúsins í Búðardal fallið alveg
niður um sinn. _
Rekís kvað Óafur töluverðan á
innfjörðum Breiðafjarðar, og hef-
ur flóabáturinn Guðmundur góði
því ekki getað losað vörur til
hafna á innanverðum Breiðafirði.
Framih. á bls. 14.
minnisvarða á æskustöðvum hans
að Fagraskógi. Nú hafa Ungmenna
samband Eyjafjarðar, Búnaðarsam
band Eyiafjarðar og Samband ey-
firzkra kvenna tekið höndum sam
an og ákveðið að beita sér fyrir
því að þessi hugmynd nái fram að
ganga.
Ekki hefur enn verið tekin á-
kvörðun um gerð minnisvarðans,
en hann verður reistur á bezta
fáanlegum stað í Fagraskógi og
væntanlega komið upp trjálundi
við hann. Þau samtök, sem hafa
forgöngu í máli þessu munu snúa
sér til hinna ýmsu félaga og sveit
arstjórna í héraðinu um fjárfram
lög. Einnig vænta þau þess, að
önnur félög, einstaklingar, unnend
ur sfcáldsins, leggi málinu lið með
frjálsum framlögum, án þess að
til þeirra verði formlega leitað, og
stuðli þannig að því að þjóðskáld-
inu verði reistur sem veglegastur
minnisvarði í Fagraskógi, þeim
stað, sem fóstraði það og var í
vitund þess helgur staður til
hinztu stundar.
Spilakvöld Fram-
sóknarfélaganna
Framsóknar-
félögin í Reykja-
vík efna til kvöld
skemmtunar í
Súlnasai Hótel
Sögu, fimmtudag-
inn 4. febrúar
næstfcomandi.
Spiluð verður
framsóknarvist
og glæsileg verðlaun veitt. Bjöm
Pálson bóndi og alþingismaður að
Löngumýri flytur stutta ræðu og
að lokum verður stiginn dans til
kl. 1 eftir miðnætti. Boðsmiðar að
skemmtuninni verða afhentir í
skrifstofu Framsófcnarflokksins að
Tjamargötu 26. Miðapantanir em
í síma 15564 og 16066.
Stjómir Framsóknarfélaganna í
Reyfcjavík.
SVARTAR
FJAÐRIR
í 7. SINN
GB-Reykjavík, miðvikudag.
f tilefni morgundagsins, sem
er sjötugasti afmælisdagur Da-
víðs Stefánssonar frá Fagra-
skógi, gefur Helgafell út fyrstu
ijóðabók skáldsins, .Svartar
fjaðrir,“ sem kom fyrst út
1919, og er þetta sjöundo út-
gáfa bókarinnar, sem hefur þá
komið oftar út en nokkur önn
ur ljóðabók á þessari öld.
Þessi útgáfa bókarinnar er
í líkingu við fyrstu útgáfuna
að broti og prentun, mjög
fallega úr garði gerð. Kápu-
umslag hefur teiknað Tómas
Tómasson (skálds Guðmunds-
sonar), en formála ritar Stein-
grímur Sigurðsson, sem kemst
m.a. svo að orði:
„Konur geymdu hann undir
svæflinum, og þegar þær
þurftu á svari að halda við
Framhald á 12. síðu
GRÆÐA I SKJOLI
KAUPHÆKKUNAR
MB-Reykjavík, miðvikudag.
Að minnsta kosti sum hinna svo
kölluðu vinlausu veitingahúsa í
Reykjavík hafa stórhækkað verð á
aðgöngumiðum og fóðra þá hækk-
un með þeirri hækkun, sem um
var samið hjá hljóðfæraieikurum.
sum þesara húsa hafa einnig
hækkað verð á veitingum og kost-
ar flaskan af gosdrykkjum nú
sums staðar orðið 30 krónur.
Eins og sagt hefur verið frá hér
í blaðinu fengu hljóðfæraleikar-
ar talverða hækkun hlutfallslega
með hinum nýju samningum mið-
að við hina eldri og hafa þó menn
nákunnugir þessum málum látið
þá skoðun opinberlega í ljós, að
hinir nýju samningar væru nán-
ast staðfesting á því ástandi, sem
ríkt hefði í þessu máli.
Samkvæmt samningnum hækkar
kaup hljóðfæraleikara úr kr.
122.50 á klukkustund í 145 krón-
ur. Þá bætist einnig við vinnu-
stundir, þannig að á laugardags-
kvöldið þurfa veitingahúsaeigend-
ur til dæmis að borga hljóðfæra-
leikurum frá klukkan 20 í stað
21 áður, einnig þurfa þeir nú að
greiða tvöfalt kaup fyrir tímann
milli klukkan 1 o» 2 eftir mið-
nætti í stað síðasta hálftímans
áður. Lætur því nærri, að sam-
kvæmt samningum hækki kaup sex
manna hljómsveitar á laugardags-
kvöldi með tveimur söngvurum úr
5.700 krónum í 8.600 krónur. Hins
vegar hafa að minnsta kosti sum
veitingahúsin hækkað aðgöngu-
miða sína á laugardagskvöldum úr
80 krónum í 100 krónur. Hækkun-
in á hinu umsamda kaupi hljóð-
færaleikara er því nálægt þrem
þúsundum, en heildarhækkun að-
göngumiðaverðs á laugardags-
kvöldi hjá veitingahúsi, sem tek-
ur 300 manns, er um sex þúsund
eða helmingi meiri en sú kaup-
hækkun, sem notuð er sem skálka-
skjól.
Verð aðgöngumiða cnnur kvöld
en laugardagskvöld hefur einnig
STR0KKASMJ0R VEGNA
SAMGÖNGUERFIÐLEIKA NNA
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Mjólkurframleiðendur Mý-
vatnssveit og Bárðardal hafa
ekki getað komiii frá sér
mjólk nú um lengri tíma
vegna snjóþyngsla. Er mjólk-
in því skilin og smjörstrokk-
urinn í fullum gangi á þessum
stöðum.
Mjólkurflutningar úr Mý-
vatnssveit hafa gengið erfið-
lega frá áramótum vegna snjó-
þyngsla á vegum. Snjór er þó
ekki mikill í sjálfri sveitinni
heldur er færðin hvað verst
í Reykjadal og Aðaldal. Strokk
amir koma bví í góðar þarfir
núna, þar sem hægt er að
koma mjólkinni í verðmæti
með því að skilja hana og búa
til smjör. Jón Illugason útibús
stjóri K.Þ. í Reykjahlíð í Mý
vatnssveit tjáði blaðinu í dag,
að á morgun væri von á snjo
bíl kaupfélagsins frá Húsavík
og myndi hann taka smiörið
úr sveitinni til mjólkurbúsins,
og koma með vörur til útibús
ins. Bíllinn »etur þó ekki flutt
mikið i hverri ferð, því hann
ber aðeins lVá tonn. Tryggvi
Helgason flugmaður lenti á
flugvellinum við Reykjahlíð í
gær, og flutti farþega til Ak-
ureyrar.
Þá höfðum við samband við
Harald Gíslason mjólkurbús-
stjóra á Húsavík og spurðum
hann hvernig gengi að flytja
mjólk til búsins. Haraldui
sagði, _að það gengi hálf brösu
lega. í gær komu mjólkurbíl-
ar úr Kinn og Reykjadal og
voru 12-14 tíma að fara leið
sem er um klukkustundar akst
ur á sumardegi. Fóru þeir svo
aftur heim ? leið í dag. f Mý-
vatnssveit og Bárðardal kvað
hann bændur skilja mjólkina
og búa til smjör, sem svo snjó-
bíll sækti einu sinni í viku.
Væru þetta um 200-300 kíló
af smjöri, sem síðan væri selt
sem heimasmjör. Verst er færð
in í Aðaldalshrauninu, en úr
Aðaldalnum er reynt að flytja
mjólkina daglega. Annars stað
ar frá er reynt að brjótast
annan hvern dag, nema bar
sem strokkarnir eru í notkur.
hækkað á sömu veitingahúsum úr
70 krónum í 80 krónur.
Þá hafa að minnsta kosti sum
veitingahús hækkað verð á gos-
drykkjum sínum, væntanlega á
sömu forsendu. Til dæmis kostar
gosdrykkjarflaskan í Þórskaffi nú
orðið 30 krónur. Kostaði gosið
áður á flestum veitingastöðum 25
krónur og mun það hafa verið
ánlægt 1000% álagning og þótti
flestum nóg um.
8. TÓN-
LEIKARNIR
KJ—Reykjavík, miðvifcudag-
Áttundu tónleifcar Sinfóníu-
hljóm'sveitar íslands verða í Há-
skólabíói á fimmtudag.
Einleikari með hljómsveitinni
að þessu sinni er brezki klarinettu
leikarinn Bernard Walton, og
stjórnandi Igor Buketoff, sem
stjórnað hefur Sinfóníuhljómsvei)
inni að undanförnu en er á föl
um til Bandaríkjanna. Á efnis
skránni er sinfónía nr. 83 eftií
Haydn, 3 tónsmíðar fyrir strengi
og píanó eftir japanska tónskáldið
Mayuzumi, klarinettukonsert í A-
dúr eftir Mozart og prelúdía og
fúga eftir Hovhaness.
Bernard Walton