Vísir - 20.06.1935, Blaðsíða 14

Vísir - 20.06.1935, Blaðsíða 14
i4 y ísir Verksmiðjusfmi 3125. - Skrifstofuslmi 3126. - Heiinasími 4125. J. B. Pétursson hefir ásamt Kristni bróður sínum rekið blikksmiðju í Reykjavík síðan 1908, og tóku þeir bræður við þeirri starfsemi af föður sínum, Pétri Jónssyni, er lést það ár. Þessi verksmiðja er löngu landskunn orðin og hefir hún selt allskonar blikkvörur, svo sem þakrenn- ur, þakglugga, vegg- og loftrör, lifrarbræðsluáhöld alls- konar, olíugeyma og Ijósker handa skipum, niðursuðu- dósir o. fl. — í marsmánuði 1934 keyptu þeir bræður vélar til stál- Iýsistunnugerðar og hófu þá starfsemi í þeirri grein. Er hér um algert brautryðjandastarf að ræða, því að þessi iðnaður hefir aldrei verið stundaður áður hér á landi, en sakir þess að vér Íslendiítgar erum mikil fiskveiðaþjóð, er þörf vor mikil í þessum efnum, og sýna verslunarskýrsl- ur vorar, að fluttar hafa verið hingað frá útlöndum 21— 23 þúsund stállýsistunnur á ári hverju. Er Stállýsis- tunnugerð þeirra bræðra tilraun til að flytja þennan iðn- að inn í landið og gera þannig hvorttveggja í senn, að spara kaup á útlendri valútu og auka vinnu hér heima fyrir. Má geta þess, að við þessa starfsemi hafa nú þegar 12 menn fengið stöðuga atvinnu. Hafa íslenskir útgerð- armenn þegar brugðist vel við þessu nýja fyrirtæki og þykir auðsýnt, að þegar á næsta ári verði engar stáltunn- ur keyptar frá útlöndum, og er það tvímælalaust vel farið. Verksmiðja þessi vinnur eingöngu úr 1. flokks efni og með nýtísku áhöldum, og eru tunnur hennar að verði og gæðum algerlega samkepnisfærar við útlendar tunnur. Skal þess ennfremur getið, að verksmiðjan hefir full- komna aðstöðu til að fullnægja notkunarþörf Islendinga á þessu sviði og það þó að eftirspurnin aukist að miklum mun. —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.