Vísir - 20.06.1935, Síða 40

Vísir - 20.06.1935, Síða 40
40 VÍSIR Austan Þvergötu í Reykjavík, þar sem fyrir rúmu ári síðan gat að líta grýtt liolt, er nú risið stórhýsi, 450 fer- metrar að flatarmáli. f þessu húsi tók til slarfa um síð- ustu áramót verksmiðja, sem nefnist Hampiðjan h/f, og hýr hún til vörpugarn og bindigarn úr Manila- og Sisal- hampi, sem fluttur er hingað til lands algerlega óunninn, í stað þess að áður voru þær vörur, sem Hampiðjan býr til, fluttar inn unnar af erlendum verksmiðjum, einkum breskum. Það dylst engum, sem skoðar þessa nýju verksmiðju, að þar er um stórmyndarlegt fyrirtæki að ræða. Þegar komið er inn í hinn geysimikla vélasal, þar sem naumast heyrist mannsins mál fyrir háreysti, blasa við 8 vélar, sem á skammri stund breyta hampinum í þær vörur, sem að ofan greinir. Hin stórfelda starfsemi Hampiðjunnar er eins konar stækkuð mynd af íslenskri tóvinnu. Fyrst er hampurinn kembdur átta sinnum, áður en hamplopinn þykir spunahæfur. En þvínæst fer liann í spunavélina, sem breytir honum i gam. f þessari spunavél eru 18 snældur, sem snúast með 2300 snúninga hraða á minútu. Úr spunavélinni fara spólurnar síðan í tvinningarvélarn- ar, sem eru 6 að tölu, og tvinna þær garnið. Siðan fer hið tvinnaða gam í lóskurðarvél, sem fágar það og gerir það snögt og útlitsfallegt. Og að lokum er það sett i vél, sem vindur það í linykla (rúllur) af ákveðinni þyngd, og eru því næst 10 hnyklar settir í poka saman, og þannig er þessi vara seld. Eins og sjá má af þvi, sem nú hefir verið sagt, byggir verksmiðja þessi starfsemi sína á þörfum íslenskra út- gerðarmanna, einkum botnvörpuútgerðar vorrar, þvi að vörpugamið er aðal-framleiðsluvara Hampiðjunnar. H/F Hampiðjan var stofnuð í aprílmánuði 1934 fyrir forgöngu Guðmundar S. Guðmundssonar (áður verk- stjóra hjá vélsmiðjunni „Héðni“ i Reykjavík). Hafði Guðmundur áður kynt sér þessa iðju rækilega erlendis, og er hann þóltist hafa gengið úr skugga um, að þess hátt- ar fyrirtæki ætti sér framlíð hér á landi, fékk hann í lið með sér nokkra menn, og stofnuðu þeir siðan Hamp- iðjuna. Hampiðján hefir Jægar náð miklum viðskiftum hér og hefir hvarvetna átt skilningi að mæta. Starfsemi henn- ar vex nú hröðum skrefum, enda hafa vörur hennar lík- að ágætlega. Standa þær síst að baki erlendum vörum af sömu tegund og eru um verð fyllilega samkepnisfærar við þær. í verksmiðjunni starfa nú 10 manns, og með auknum viðskiftum við íslenska útgerðarmenn, er auð- sýnt, að hið unga fyrirtæki á fyrir sér að auka starfslið sitt að mikliim mun. Verkstjóri hjá Hampiðjunni er Jón Guðlaugsson vélsmiður, sem einnig er meðeigandi í fyr- irtækinu. Það er auðsýnt, að starfsemi Hampiðjunnar sparai kaup á erlendum gjaldejæi i allstórum stíl. Mun láta nærri, að hráefnin til þessarar iðju, nemi helmingi af verðmæti þeirrar vöru sem hún framleiðir, en þau eru það eina, sem lcaupa þarf frá útlöndum. Hefir gjaldeyris- nefnd og sýnt hinn mesta skilning á þessu máli og jafn- an vikist vel við umleitunum Hampiðjunnar.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.