Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 3

Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 3
Æaða, Vér fögnum hækkandi sól og vaxandi veldi dagsins, sem jóla- tíminn boðar. Oss þykir yndi að mörgum þjóðlegum minning- um, sem við þessa miðsvetrar- hátíð eru tengdar frá fomu fari. En kristnum mönnum eru þau ljóss og sólarhátíð í vetrar- myrkri, vegna þess að þau boða ódauðlegum, ljósþyrstum mannssálum fögnuðinn mikla. Eg boða yður mikinn fögnuð! Þetta segja oss jólafrásögur, jólasálmar og hljómar jóla- klukkna, er berast út yfir bæ og bygð og „kalla þjóð Iírists í tjöld“. Vér víkjum því til hliðar öllu, sem á undanförnum dög- um hefir verið sett í samband við jólin. Hið ytra jólahald verður aukaatriði. Vér fögnum lúnni bestu, hinni einu og sönnu jólagjöf Guðs. Nú er oss fædd- ur frelsarinn. Og hver einasta jólahátið kallar krislinn lýð til þess að íhuga gildi þeirrar gjaf- ar, og þakka Honum, sem gjöf- ina gaf. Eg á sjálfur að þakka þessa gjöf af öllu mínu hjarta, gjöf, sem verður mér því dýrmætari, sem eg á liana lengur. En eg á lika af minum veika mætti að henda öðrum á þessa gjöf, sem öllum er ætlað að eiga og njóta með mér. Eg á að segja frá því sem eg veit um frelsishetjuna og friðargjafann, sem jólin eru helguð. Og eg má ekki fremur þegja um þetta, þótl nú virðist svo, sem mennirnir meti annað meir en frelsið og friðinn, sem þeim er boðinn í honum. Ef Kristur hefir verið og er mér ástvinur sálar minnar, svo að þökk og lofgjörð er í lijarta mínu, má eg ekki gleyma því, að alt liið besta og göfgasta í sálum allra annara manna þráir hann og ekkert annað en hann. Og ef eg veit um þyrstar og þreyttar sálir, sem þarfnast hans, þá má eg ekki gleyma því, sem af mér er krafist: „Seg þeim, hvað þú sjálfur reyndir, sjálfur veizt og þreifar á. Um hans kærleik, um hans dæini, um hans lífgun dauðum frá.“ Jólahugleiðing eftir ÁrnaSigurðsson frlkirkjuprest. 1S| É£t „Og engillinn sagði við þá: Verið óliræddir, því sjá, eg boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðn- um; því að yður er í dag frelsari fæddur". (Lúk. 2, 10). Það skiftir minna í þessu sambandi, þótt einhverjir skilji og skýri eðli hans og veru að einhverju leyti öðruvísi en eg. Þess get eg ekki krafist, að allir hugsi eins og eg. En hitt veit eg, að allir þurfa að sjá hann, eiga liann að frelsara og leiðtoga ekki síður en eg. Það er því aðalatriðið, að eg segi frá því, sem eg liefi fengið að vita um hann. Mér ber að fara að likt og sagt er um hirð- ana í framhaldi jólaguðspjalls- ins, að „þeir skýrðu frá því, sem talað hafði verið við þá um barn þetta.“ t Hann var í uppliafi hjá guði. Hann tók á sig læging mann- legra kjara mönnum til hjálpar, „gjörðist vor vegna fátækur, svo að vér auðguðumst af fá^ tækt hans.“ Meðal mannanna lifði hann stutta mannsævi. En nógu langa til þess, að hann skín nú við augum ólíkustu manna, sem ímynd æðstu and- ans tignar og máttar. Þótt mennirnir horfi á hann gegn um marglit sjónargler mismun- andi skoðana, sjá þeir allir frá- bæra yfirburði hans. Af verkum hans ljómaði líkn og mildi. Og af orðum hans slíkt hið sama, er hann kallaði til sín alla, sem erviðuðu og voru hlaðnir þunga, til þess að veita þeim hvíld. En samt var ekkert ókarlmannlegt, veiklegt eða kveifarlegt við hann. í orðum og athöfnum var liann ímynd allrar hreinskilni og hugdirfðar. Hann var þeim vísdómi gæddur, sem oft var eins og hulinn spekingum og hyggindamönnum heimsins, en reyndist þó augljós og opinber börnum og smælingjum. Gæsk- an, mátturinn og spekin, sem birtist í lífi hans, helgar honum það nafn sem hverju nafni er æðra: Guðs sonur. Þegar hann lét blinda sjá, læknaði sjúka,.og gaf látnum líf, kom það í ljós, að hann, sem fæddur var við fá- tækleg kjör, var óendanlega miklu máttkari öllum, sem fyrr eða síðar hófust til auðs og valda. Eins og hann sjálfur sagði, átti hann hvergi höfði sínu að að halla. En samt leit- uðu mennirnir hælis hjá hon- um, og vildu halla þreyttu höfði að ástríku bróðurhjarta hans. Frá þessu segja guðspjöllin. Frá þessu segir 19 alda saga mannkynsins. Og fná þessu seg- ir saga vorra tíma um öll heims- ins lönd. Enn í dag vígir liann sér votta og postula í austri og vestri, menn, sem votta trúna á liann svo öfluglega og dásam- lega í orði og verki, að vér les- um það og heyrum, lirifin af undrun og þökk. Mörgum þykir dimt yfir, og veður öll válynd í mannheimi á þessum tímum. Ekki skortir þó mennina vísindaþekkingu né vald það, sem hún veitir. En það sem brestur, eru sannir vitsmunir, sem stýrt er af kær- leik og góðum vilja, svo að allri annarri þekkingu mannanna og getu verði til gæfn stýrt, en ekki ógæfu. Og ekki mun neinn treystast til að andmæla því í einlægni og sannleika, að alt þetta mundi fást, ef mennirnir gerðu Ivrist að frelsara sínum, og létu ljós orða hans og eftir- dæmis lýsa sér. En það hvíla einnig aðrir skuggar yfir lífi margra. Skugg- ar sjúkdóma, skuggar sorgar og sársauka, er dauðinn veldur. Þeir skuggar hvíla yfir mörg- um um þessi jól. Eins til þeirra, og til hins stríðandi mannkyns um lieim allan berst nú engil- kveðjan himneska: „Verið óhræddir, því sjá eg boða yður mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðnum; þvi að yður er i dag frelsari fæddur,“ frelsari frá synd og sorg og dauða, frelsari, sem býður hjálp sína þeim „bjargarlausu og snauðu, þeim breyzku, særðu, föllnu, týndu og dauðu,“ öllum, er boð- inu vilja taka, hjálpina þiggja. Hans jólagjöf, Guðs jólagjöf í honum, er Friður Guðs og velþóknun öll- um mönnum og öllum heimi. Hver er sá, sem ekki vill þiggja þá gjöf? Gleðileg jól í Jesú nafni. m m m m m m Éit m m m m Éé m m áífe m m m m m m m Ét m m m m m m m m m zAm m M m m m

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.