Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 21

Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 21
VÍSIR 21 Jólakveöj 111» sjómanna. FB. 23. des. Óskum vinum og ættingjum gleðilegra jóla og góðs og far- sæls nýárs. Vellíðan. Kveðjur. Skipshöfnin á Venusi. Óskum vinum og vanda- mönnum gleðilegra jóla og far- sæls nýárs með þökk fyrir það liðna. Skipshöfnin á Sindra. Konum, börnum, foreldrum, systkinum og öðrum velunnur- um óskum við gleðilegra jóla og góðs nýárs. Skipverjar. á Sviða. Gleðileg jól. Bestu kveðjur. Skipverjar á Karlsefni. Skipulags-^ breytingai* í landher Bpeta , London, 23. desember. Hermálaráðuneytið tilkynnir, að átta riddaraliðsherdeildir verði lagðar niður, en í þeirra stað verða stofnaðar jafnmarg- ar herdeildir útbúnar nýtísku liergögnum, svo sem skriðdrek- um o. s. frv. Skipulagi þrettán fótgönguliðslierdeilda verður ennfremur breytt á sama hátt. (United Press. - FB). Fjögur ríki heita Bretum aðstoð, ef ítalir ráðast á breska flotann á Miðjarðarhafi. t Osló, 23. desember. Bresk blöð hirta fregnir um það, að Tyrkland, Grikkland, Rúmenía og Júgóslavía hafi svarað játandi fyrirspurn Bretastjórnar um aðstoð, ef til þess kæmi, að Italir réðust á Breta á Miðjarðarhafi, vegna ref siaðgerðanna. (NRP. - FB.).. Loftárásir ítala. Italir hafa gert loftárásir á tjaldbúðir Abessiníumanna fyrir sunnan Makale. Loft- árásirnar stóðu yfir í sam- fleytt 10 klukkustundir. i Osló, 23. desember. Italskir flugmenn liafa gerl loftárásir á tjaldhúðir abess- inskra hermanna fyrir sunnan Makale. Loftárásirnar stóðu yfir í 10 klukkustundir. (NRP. - FB.). Sjö klukkustunda orusta hjá Tembien. ítalir segjast hafa hrakið 5000 Abessiníumenn á flótta. Rómaborg, 23. des. .Samkvæmt opinberri tilkynn- ingu frá herstjórninni hröktu It- alir 5000 manna lið Abessiníu- manna á flótta fyrir norðaustan Tembien, að afstaðinni sjö klukkustunda orustu síðastlið- inn sunnudag. (United Press. - FB.). London 23. des. FÚ. Samkvæmt ítalskri fregn, iiefir orðið liroðaleg orusta í nágrenni við Makale i dag. Fimm þúsund abessinskir her- menn réðust á ítölsku herlín- una í nágrenni við Addi Addi, Er landslag þarna Abessiniu- mönnum i vil. ítalir höfðu hæði stórskotalið og flugvélar og brutust áfram til norðurs. til aðstoðar fótgönguliði sínu, en brátt lenti þarna i höggor- ustu. Badoglio telur, í tilkynn- ingu sinni, að Abessiníumenn hafi loks verið reknir á flótta. Ekkert er getið um mannfall á hvoruga hlið. Frá Abessiníumönnum eru enn engar fregnir komnar um þessa orustu, þvi að fréttir eru svo lengi á leiðinni til Addis Abeba. Cjleðilegra jóla óshar V/sir öllum les- öndum sínum. Næsta blað Vísis kemur út föstudaginn 27. þ. m. (þriðja í jólum). Jólamessur: I dómkirkjunni: Aðfanga- dagskveld kl. 6, dr. tlieol. Jón hiskup Ilelgason. — Á jóladag: Kl. 11 síra Bjarni Jónsson. — Kl. 2 dönsk messa, dr. theol. Jón bisku]) Helgason. — Á annan dag jóla: Kl. 11, síra Bjarni Jónsson. —- KI. 5 e. li. próf. Magnús Jónsson. , I fríkirkjunni: Aðfangadags- kveld ld. 6: Sr. Árni Sigurðsson. — Jóladaginn kl. 2: Sr. Árni Sigurðsson. — Annan dag jóla: Kl. 5, sr. Árni Sigurðsson. 'ék GLEÐILEG JÓL! m n Verslunin Baldursbrá. ^M^. ^Mfc. jMfe góí. ^M/j. ^M/í. vM^. ^M4j. .$»&. GLEÐILEG JÓL! & Verslun % Sigurðar Halldórssonar. Verkfallið. Vísir átti tal við vörubíla- stöðina „Þrótt“ í gærkveldi og spurðist fyrir um það, hvort nokkrar sáttaumleitanir væri hyrjaðar, en fékk þær upplýs- ingar, að svo væri ekki. — Ilinsvegar mun ekki loku fyr- ir j)að skotið, að einhverjar umræður fari fram bráðlega, um deiluna, en ekkert ákveðið varð sagt um þetta í gærkveldi. Verkfallsmenn liafa áfram varðlið á sömu stöðum og verið . hefir, siðan er verkfallið hófst. £ GLEÐILEG JÓL! Verslun Davíðs Iíristjánssonar, Skólavörðuslíg. Seinlæti í fréttaflutningi útvarpsins. Um kvöldmatarleyti á sunnu- daginn vildi svo til, að eg var að leita fyrir mér á útvarps- tæki minu, hvort eg lieyrði nokkuð nýtilegt. Lcnti eg þá á enskri stöð, sem lieyrðist mjög greinilega til, og var þá verið að segja þar frá skipun Anthony Edens í utanríkis- málaráðlierr aemhættið ensk a. Mér þótti fregnin stórmerk, og þar sem eg heyrði liana ekki alla, en þetta var góðri stuiid áður en erlendar fréttir átti að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.