Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 17

Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 17
y ísir 17 Dagstund hjá Thorvaldsen. (Ferðaminning frá 1930). Eftir prófessor Richard Beck. ---o--- Kaupmannahöfn er f jölskrúð- ug miðstöð menningar; auðug af fögrum og sögufrægum stór- hýsum og margskonar stofnun- um, sem draga að sér athygli eftirtektarsamra ferðamanna og fróðleikshneigðra. Listunnandi Islendingum verður að vonum hvað starsýnast á Thorvaldsens- safnið (Thorvaldsens Museum), enda stingur það mjög í stúf við önnur stórhýsi borgarinnar, að svip og sniði. Þar er eigi að- eins að finna á einum stað lista- verk hins mikla snillings, sem hjó í steininn „sinn himneska draum“; heldur gerir það safnið ennþá einstæðara, að það er jafnframt grafhýsi meistarans, þvi að leiði Thorvaldsens er í garðinum bak við framhluta safnhússins. Fer sannariega vel á því, að honum var búin hinsta hvila, dyrnar, en bak við þær er neglt fyrir .með svörtu, svo þær njóta sin ekki, nema að einhverju leyti nú, þegar skammdegið er svo dimmt. En þegar búið er að taka hurtu það sem bak við þær er, og ljósið er komið fyrir inn- an sýnist svo, sem þar verði einhver liinn hálíðlegasti inn- gangur, sem völ er á. Sá sem fer í leikhúsið getur ekki byrjað betur, en ef hann fsér liátíðleg- an geðblæ á huga sinn, þegar hann kemur þar. Þegar kemur inn í áhorfenda- salinn, þá er hann uppi hvelfd- ur saman úr stuðlabergi — á- Iiorfandinn er í helli. Yfir miðju éhorfendaplássinu er sporöskju- lagaður flötur. Stuðlabergið verður gullausið, en flöturinn sjálfur verður ljósblár (ekki hvítur) og táknar heiðan himin- inn. Þar sér áhorfandinn upp í gegnum hellisþakið. Margir af okkur hafa komið í Surtshelli og séð þaðan af gólfinu upp í heiðan himin. Uppi í kringum hinn bláa himinflöt verða raf- Ijós sem kasta birtunni á bláníi- an og þaðan aftur niður fyrir sig. Ekki mun það furðu sæta, þótt bæjarmenn, og ýmsir sem hingað koma óski þess, að fá leikhúsið upp og hlalcki til að fá það upp albúið. Indr. Einarsson. umkringdum óvið j af nanlegum snildarverkum sínum, sem svala ríkulega hverjum fegurðar- þyrstum vegfaranda, sem þang- að leggur leið sína. Með hug- kvæmni og smekkvísi hefir byggingarmeistari safnsins leyst af hendi hlutverk sitt, svo að það er livorutveggja í senn hæft umhverfi lislaverkum snillings- ins og viðeigandi hvílustaður sjálfum honum. Er safnhúsið með sniði forn-egiptskra og griskra grafhýsa, tigið ásýnd- um, þvi að þau voru jafnframt með miklum musterisblæ. Ýms- um, sem þangað koma, mun einnig finnast sem standi þeir á helgum stað; svo friðsælt er innan veggja þess og hátíðlegt um að Iítast. v Thorvaldsen var sann-klass- iskur í myndagerð sinni; trúr fylgjandi listastefnu hinna fornu grisku meistara, þó verk hans séu jafnframt tjáning ein- staklingseðlis hans og beri ríkan svip stórfeldrar snilligáfu hans, víðfleygs og djúpsæs skapandi anda. Eðlilega sækir liann því tíðum viðfangsefni sín í forngrískar og fomrómverskar hetju- og goðasagnir. Fyrsta stórvirki hans var höggmyndin mikilúð- Iega af Jason, hetjunni forn- grísku, sem varð að vinna það til að eignast konungsríki föður síns, að sækja gullreifið fræga í hendur hins grimmasta dreka. 'Myndhöggvarinn sýnir oss Ja- son sigri hrósandi þegar hann er nýbúinn áð vinna á drekan- um; verður mynd þessi því jafnframt táknmynd af mætti mannsins til að sigrast á andvíg- um öflum og erfiðleikum. Efniviðinn í margar ágætis- myndir sínar sótti Thorvaldsen í frásagnirnar um Trójustríðið, sem Hómer skáld hefir ódauð- legar gert i Ilions-kviðu og Odysseifs-kviðu, og Sveinbjöm Egilsson sneri af alkunnri snild á íslenska tungu. Sérstaldega hrífandi er lágmynd (relief) snillingsins af skilnaði þeirra Hektors, höfuð-hetju Trjóu- manna, og smásveinsins sonar lians. Sem góðum föður sæmir, er hermaðurinn, þó hraustur væri, hrærður mjög á skilnaðar stundinni; en að baki honum stendur Andromakka kona hans sorgmædd á svip. B. Cohen, Woollen Merchant, 11 & 15 Trinity-House Lane, HULL, ENGLAND óskar öllum vinum sínum og viðskiftamönnum, gleðilegra jóla og góðs nýárs. Ennfremur tilkynnist, að eg mun hafa sérstaka útsölu fyrir viðskiftamenn rnína á Islandi í janúar og febrúar 1936, og allar vörur mínar munu verða seldar þar við mikið lægra verði en áður. ^Uc. ^Uc, jVÞ. j$lfe jjtfe J^'Þ. j^jÞ. -j&fe J^/i- J^/i. 'ájfc J*/c- J*/c. .glfe. Æt M GLEÐILEG JÓL! H H j&k. VEIiSL. BREIÐABLIK. jjfc ^l/>. ysi^. ^M^ ^M/^ ^M/^ J^U-i. .vM/j. m GLEÐILEG JÓL OG GOTT NÝTT ÁR! w? J^/c. J^/í. m Ék Þakka viðskifiin. M Jf!fc m M M AMA TÖR VERSLUNIN. m n Þ. ÞORLEIFSSON. M M yi-, ^ ^ ^ ^M^.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.