Vísir - 24.12.1935, Blaðsíða 11
VÍSIR
11
p.OJUL Jcomlc ddd.
Andrés litli vaknaði við það
sjálfan jóladagsmorguninn, að
hjónin — hann Grímur og hún
Kristbjörg — voru að jagast
í rúminu á móti honum. Þau
höfðu líka verið að jagast
kveldinu áður og honum þótti
það ákaflega skrítið. — Hann
hafði nú átt heima á þremur
bæjum, sem hann mundi eftir,
og þar höfðu allir verið glaðir
og góðir og hreinir i framan á
aðfangadagskveld og jóladag.
— En hér var alt af verið að
jagast og rífast. — Og hvorugt
hjónanna hafði þvegið sér í
framan á aðfangadagskveldið.
— Þau voru alveg eins og alla
aðra daga — óhrein og ógreidd
og i vondu skapi. — Þau nefndu
hvorki guð né Jesúm Krist á
nafn, buðu ekki gleðileg jól og
lásu engan húslestur.
Það var víst ekki við þvi að
búast, að jólin kæmi á slíkan
bæ.
Andrés var munaðarlaus
smælingi, niu ára gamall. Hann
átti engan að — nema guð og
hreppsnefndina. Og hrepps-
nefndin hafði liaft hann á und-
irboði síðustu vorin. Þessvegna
fékk liann nldrei að vera kyr á
sama heimilinu ári lengur. Og
alt af var hann látinn til þess
hóndans, sem minsta heimtaði
meðgjöfina.
Síðasta vorið hafði Grímur á
Bala boðið lægst af öllum. —
Grímur var fátækur maður
og heimilisfólkið á Bala var
ekki annað en hjónin og dreng-
urinn. Þau voru ekki vond
við Drésa litla, Balahjón-
in. Fjarri því. Og nóg hafði
hann að borða. En honum hafði
verið snúið fjarska mikið um
sumarið. Hann þurfti að sitja
yfir ánum fyrst í stað eftir frá-
færurnar, og smala þeim til
mjalta þegar frá leið, reka
kýrnar í haga og sækja þær á
kveldin, ef þær komu ekki
sjálfar, sækja Kross og flytja,
bera inn eldivið, sækja vatn og
hjálpa til við heyslcapinn, ef
timi var afgangs frá öðrum
störfum.
i Hann hafði oft verið þreytt-
ur — fjarska — fjarska þreytt-
ur — og oltið út af steinsofandi
á hverju kveldi. — En það inátti
Kristbjörg eiga, að hún var ekki
alt af að reka hann til að þvo
sér. — Hún sagði: Nú held eg
að þú sért orðinn þrevttur,
auminginn, og blessaður flýttu
þér nú i rúmið. — Henni fanst
nóg að hann gutlaði framan úr
sér á helgum og það fanst Drésa
lika. —
En drengnum þótti leiðinlegt,
að hjónin skyldu alt af vera að
nudda og jagast og rifast. Þau
voru aldrei glöð og aldrei
þokkalega til fara. Og væri þau
ekki að vonskast eitthvað
hvort við annað, þá gat Grímur
haft það til, að steinþegja fpá
morgni til kvelds. Hann gleypti
í sig matinn og mælti ekki orð
frá vörum. Næsta athöfnin var
sú, að stanga úr tönnum sér.
Hann þefaði ávalt af því, sem á
tannstöngulinn kom og þurkaði
svo á buxunum sínum — oftast
á stóru, mórauðu bótina á
liægra hnénu. Þá stakk hann
tannstönglinum í vestisvasann.
Svo tólc hann í nefið, fleygði sér
aftur á bak og breiddi tóbaks-
klútinn yfir andlitið. Og sam-
stundis var , hann farinn að
hrjóta.
. En hann svaf ekki lengi. Eftir
fáeinar mínútur settist hann
upp, snýtti sér og tók aftur i
nefið. — Því næst reis hann á
fætur, ólc sér kannske dálítið og
labbaði svo út úr bænum. —
Þá gat viljað til að Kristbjörg
segði: Viltu að eg lielli upp á?
— En Grimur ansaði því engu
og fór leiðar sinnar. Og konan
sagði: Jæja — farðu i rass og
rófu, gamli fýluraftur' Svo fékk
hún sér kaffitár og drakk aldrei
minna en fjóra bolla. — Eg
drelck fyrir okkur bæði, Drési
minn, og það ætla eg að vona,
að þú verðir ekki svona durtur
við konuna þína á síðan. — Eg
gef þér ekki kaffi, barninu, en
hérna hefirðu mola í ginið. Og
farðu nú út á tún og vertu dug-
legur.------
Og nú var jólanóttin liðin.
Það var dimt í baðstofunni og
hjónin voru að smá-kýta í
rúminu. Kristbjörg vildi að þau
færi til ldrkjunnar öll þrjú, en
Grímur var þvi algerlega mót-
fallinn. — Mér finst nú satt að
segja að manni veiti ekki af því,
sagði konan, þegar aldrei er far-
ið með gott orð á heimilinu og
fengin guðsorðabókin er til. Eg
vissi þó ekki betur en að eg
kæmi hingað með Hugvekjur
og Passiusálma, en þú gerðir
þér það til sóma, Grímur minn,
að láta guðsorðið upp í bola-
toll til hans Sveins í Haga. —
Annars dettur mér ekki i hug
að fara að rífast við þig núna.
— Það er best að lofa þér að
GLEÐILEG JÓL!
Bifreiðastöðin Hekla,
Lækjargötu 4.
M GLEÐILEG JÓLI
Bókaverslun Guðm. Gamalíelssonar. M
GLEÐILEG JÓLl
Ásgeir Ásgeirsson, Versl. Þingholtsstr. 21.
*M GLEÐILEG JÓL!
§
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
m
m m
-jfe á^ ^ ájfe ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^ ^
H
II
m
GLEÐILEG JÓL!
Tóbaksverslunin London.
jgj^ ^ ^j^ ^ ^ ^j^ gj^ ^j^ ^ ^jfc
n
m
m
M
m
M GLEÐILEG JÓL!
VERSL. HAMBORG. |j§
m m m m m mmmm mmmmmmmm
j&b.
Jgg?
GLEÐILE G JÓLl
KOLASALAN S.F.
Éb