Vísir - 24.12.1956, Side 1

Vísir - 24.12.1956, Side 1
Jéiablað 1956 ígj lÞrói\ lluffn ús 3.iíír JLtíruss&n Ofarlega er ávarp þetta í huga mér, nú er líður að’ jólum. Er það af vana, að óskað er gleðilegra jóla, eða eða er ávarp þetta í huga mannsins raun- veruleg ósk, sem felur í sér míklar og göfugar hug- sjónir? Er litið erá allan jólaundirbúninginn, þá sést, að sterkar venjur hafa skapazt um gleðskap og til- breytni í hinu daglega lífi. Miklum f jölda manna eru jólin mesta tilbreytni og stærsti fagnaðartími árs- ins. Þá eru keyptar gjafir, oft um efni fram, handa vinum og vandamönnum, náskyldum og fjarskyld- um. Húsmæðurnar eiga þá annríkast á árinu að undirbúa heimili sín, svo að þar verði fágað og prýtt og gleðskapur geti ríkt í mat og drykk. Það er svo, áð jólin eru orðin mesta gleði- og fagnaðarhátíð árs- ins. Hitt er svo það, áð spyrja mætti, hví fögnuður- inn væri svo mikill. Er það vegha þess, að nú er jólaleyfi? Er það vegna umsetningarinnar í verzlun- um? Er það vegna þess, að jólin eru haldin á dimmasta tíma skammdegisins og menn þrá þá birtu og yl sterkast og reyna að veita sér þau með fagnað- inum og birtu jólanna? En hætt er við, að jólin verði ekki alls staðar haldin í þeirri mynd, er við þekkjum frá síðari ár- um hér á íslandi. Og það er spurning, hvort jól í þeim mynd munu vera alis kostar heppileg til lengdar. Heimurinn er orðinn allmiklu minni, en hann áður var. Nú eru heimsviðburðirnir orðnir kunnir öllum meginhluta mannkyns strax og þeir hafa átt séi stað. Hvort sem mönnum er það nauðugt eða viljugt, þá má segja, að viðburðirnir eða vitneskjan um þá eru fluttir samtímis inn í dagstofúna með útvarps og blaðafréttum. Hvert sem maöurinn fer, verður hann ekki laus við að fá vitneskju um aðalviðburð- ina í einhverri mynd, réttri eða rangri. Og þáð er jafnvel svo, að honum kann að þykja nóg urn allan austurinn. Sú saga er sögð af bönda einum, sem var and- snúinn því, að sími væri lagður um sveit hans, sem er í nokkurri fjarlægð frá Reykjavík, að' til hans hafi komið maður og sagt honum frá bruna miklum, sem orðið hafði í hofuðstaðnum dagihn áður. Þá varð bónda að orði: „Og gátuð þið nokkuð hjálpað?“ Þetta tilsvar var auðvitað sprottið af kaldhæðni. Samt er það athyglisvert. Fréttirnar berast um slys og hrakfarir, stríð og dauða. Hefur það nokkra þýð- ingu að veita þeim viðtöku? Er þetta ekki aðeins að auka óróa og kvíða lífsins, sem eru nú orðnir nógu þungbærir fyrir mannkynið? Og hvað koma fréttir jólunum við? Á jólunum linnir þó fréttaflutn- ingi útvarps og blaða. Og þó snertir þetta jólin, því ekkert mannlegt er jólunum óviðkomandi. Og jafnvel hin fyrstu jól yoru boðuð sem frétt, því var ekki sagt: „Sjá, yður er í dag frelsari fæddur.“ Hér höldum við jól, sem mest líkjast heiðinni fórn- arhátíð. Vér bjóðum mönnum gleðileg jól, án þess að hyggja, að í ávarpinu felist annað meira en það að fá nógu mikið af hangikjöti og aðrar góðgerðir, er tíðkast í gleðskap. En hvernig skilja menn kveðj- una gleðileg jól, þar sem kúgun og ofsókn, stríð og dauði ráða? Er kveðjan þar ósk um að fá að setjast einhvern tíma að kjötkötlunum soðheitum aftur og gera sér glaðan dag? Eða er þaö svo, að kveðjuávarp- ið hjá oss er orðið að tömum vana og misskilningi? Nýverið hafa borizt hinar öhugnanlegustu fréttir utan úr heimi. Fréttir, sem æpa til himins um rán og rangsleitni, kúgun og píslir. Hér er sagan forna um Kaín og Abel í nýrri mynd. Hví þurfti þetta að verða? Það er von, að svo verði spurt, er fréttirnar berast og flytja skelfingarnar heim í dagstofuna. Er hvergi undankomu auðið? Og það má bregða fyrir sig tilsvari bóndans: „Og gátuð þið nokkuð hjálpað?“ Það er víst, að menn hafa fyllzt hjálparþrá og það er víst, að mikil og ósérplægin hjálp hefur verið auð- sýnd. Fjársafnanir, matvælasendingar, lyf og hjúkr- un, ati't hefur þetta verið boðið fram af fúsum vilja einstaklinga. Það getur farið svo, að menn velti fyrir sér spurn ■ ingunni um það, hvort. heimurinn sé nú Vérri eða betri en áður var. Eru morð nútímans meiri og þyngri á metunum en kunnáttan til lækninga? Er hið sið- lausa dýrseðli rikísins meira en siðferðisviðleitni einstaklinganna? Þetta eru hinar mikilvægustu spurningar nútímans, en svarið við þeim fær ekki lífgað milljónirnar, sem faiizt hafa síðustu áratugi. Það er því raunalegra, sem svarið hlýtur að vera á þá leið, að aldrei hefur mannkynið lifað við betri skilyrði til betra íífs. Hinar miklu uppgötvánir hafa gert mögulegar svo stórfelldar framfarir, að aldrei hefur annað eins átt sér stað. Og þekking manna er mun miklu meiri og menntun almennari, þótt enn megi við bæta. En gleymzt hafa gömul og sönn sannindi. Hjá oss á íslandi skortir skilning á réttu eðli jólaávarpsins og svo mun víða vera með þeim þjóðum, er telja sig kristnar. Aðrar þjóðir hafa lagt niður, eða eru 'í Framhald á næstu síðu. gp oLoÍ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.