Vísir - 24.12.1956, Síða 10

Vísir - 24.12.1956, Síða 10
Jft JÓLABLAÐ VÍSIS Skömmu fyrir aldamótin síð- xistu var ég staddur í Flatey á Breiðafirði, og þurfti að fá ferð upp yfir sundin að Brjáns- læk á Barðaströnd. Þetta var í kauptíðinni. Allt iðaði af h'fi og fjöri í eyjunum á þessum árstíma. Döggin glitraði á hverjum blómknappi, því þetta var árla morguns; sól skein í heiði og hvergi sá ský á lofti. Morgunreykirnir stigu upp úr hverjum reykháfi í kaupstaðn- um og karlmenn gengnir að slætti fyrir stundu. Stúlkurnar flekkjuðu og rifjuðu, sumar, aðrar sátu við að hreinsa dún eða gegna öðrum heimilis- störfum, og árvakra húsfreyj- an gekk hvikum skrefum milli búrs og eldhús og leit eftir öllu úti og inni. Og þarna úti á sundunum voru fiskibátar að koma að landi, það blikaði á vot árablöðin við hvert áratog, og senn renndu þeir upp í fjöruna innan við „Silfurgarð- inn“, og óðar. en kendi grunns stukku hálsmennirnir fyrir borð og brýndu bétnum lítið eitt. Húsfreyjumar höfðu veð- ur af þessu og komu óðara að fá sér glöenýjan fisk í soðið. Inni á sundunum voru bátar landbændanna að koma, hlaðn- ir af ull og annari sumarvöru í kaupstaðinn, og rendu nú hver af öðrum út í Hafnar- sundið og lentu í „þýzkuvör" rétí niður af verzlunarhúsjnu. Drengírnir þyrptust fram á’ bakkana við sundið og skýrðu toátana um leið og þeir runnu framhjá í logninu, svo heyra mátti orð eins og þessi: „Þorsk- fírðingar á „Gesti.“ „Þetta er Jón Þórðarson á Skálmarnes- múla“ og „þarna inn á sundinu er „Vagninn“ frá Reykhólum, og við stýri er Bjarni á Reyk- hólum“. Þetta og annað eins mátti heyra til drengjanna. Á stakkstæðunum fyrir inn- an verzlunarhúsin voru geysi- stórir flekkir af saltfiski, og fólk að breiða hann til þerris. Því alstaðar var önn og starf. —r Ég leit inn í búðirnar. Þar var blindös af fólki og allir vildu komast að sem fyrst. Búðarþjónarnir voru á þönum aftur og fram við afgreiðsluna, seildust í stranga upp í hill- linni, vörpuðu þeim á borðið og sögðu við blómarósirnar: „Hvernig líkar yður þetta efni. Þetta er nú nýtízku kjólaefni“ og svo tóku þeir að mæla „kramvörurnar", eins og það var kallað. í Flatey var þá engin sérverzlun, heldur varð verzlunin að hafa til allt sem viðskiptamennina vanhagaði um, allt frá saumnál og fing- urbjörg, alla leið að trjá- og borðvið til húsabóta. Allt þetta þurftu menn að geta fengið hjá sínum kaupmanni, svo að vel væri; en út af þessu bar nú '.oft, og urðu rnenn þá að leita annað, og þá oft í fjarlæga verzlunarstaði. Ég sá að hér var mér ofauk- ið að þessu sinni, og var lika annað í hug. Ég gekk því suður á eyjuna í nánd við kirkjuna þeirra Vestureyinga sem þar hefur nú staðið um aldaraðir. Er þaðan útsýni mikið og fag- urt, og vítt til veggja alla vegu í góðu veðri. í austri er Gils- fjöi'ður, Skarðsströnd í suð- austri. Helgafell í suðri, og pnæfellsnes með jöklinum, yzt í suðvestri, og þá hið mikla hlið 1 fjarðarins allt að Siglu- nesi í vestri og.loks hin sólríka Barðaströnd. Innsveitirnar sá- ust óglöggt í blárna fjarlægð- arinnar. Hér, þar sem kirkjan strendur, er frjálslegast útsýni til alira átta í góðu veðri. Hallar hér eyjunni suður að sundinu, og þar stendur bær- inn Hólsbúð, þg,r sem hinn milili héraoshöfðingi Ólafur Sivertsen prófastur bjó (um miðja 19. öld) rausnarbúi að/ þeirra tíðarhætti, og var um i margt á undan samtíð sinni. I Hér fyrir austan kirkjuna er lítið hús í 19. aldarstíJ og er hér bókasafn evjarmanna sem Olafur prófastur var forustu- maður um að stofna á sinni tíð, og á það ýmsar fágætar bækur. Voru þá og.ýmsh' merkir m.enn í Fla.te.y í þann mund, svo sem þeir Brynjólfur Benediktsen kaupmaður, Sigurður Johnsen kaupmaður, Gísli ságnritari Konráðsson, Eiríkur Kúld, og svo Jón Thoroddsen skáld, sem þá bjó i Haga, en var tíður gestur þeirra Flateyinga. Mun honum þá þegar hafa verið farið að þykja vænt um ef rýmkað var um svartan flösku- háls, og þá fer Matthías að syngja um velmegun og fegurð þessarar yndislegu eyjapara- dísar- Björt á firði breiðum brosir Flatey við eins og á eyöiheiðum inndælt hagasvið; þar var glatt á góðri tíð, flytur gleði, fjör og arð fjaðrasveitin blíð. Þá var blómlegt athafnalíf í eyjunum og dugandi forustu- menn um fjörðinn, bæði á landi og í eyjum.------- En þarna rennur bátur inn með Hafnarkletti. Það freyðir hvítu löðrinu um stefnið og mennirnir falla fast á árarnar og var auðséð að fast var sóttur róðurinn. Þetta mundi þó aldréi vera Snæbjörn í Hergilsey? Ég hætti að láta mig dreyma um löngu liðnar hetjur Breiða- fjarðar, og gekk í skyndi niður til strandar, og þarna birtist þá víkingurinn í Hergilsey, og menn hans. Ég sagði honum þegar frá áformi mínu. En hann kvað velkomið far með sér ef ég vildi þekkjast það, en gat þess um leið að hann mundi eigi geta greitt för mína sam- dægurs og lét ég það gott heita. Eftir skamma viðdvöl í Flat- ey var Snæbjörn búinn að ljúka erindum sínum,.og sigldum við nú léttan byr til Hergilseyjar í glaða sólskini og bezta verði. Þegar þar kom var fólk bónda á vellmum að þurrka töðuna, og önn mikil sem vænta mátti. Þá var í kaupavinnu hjá Snæ- birni læknanemi Sigurður Pálsson, síðar bóndi á Auðs- haugí á Hjarðarnesi. Hann sló á vellinum rösklega en kvartaði um að illa biti á í þurrkinum. Snæbjörn brosti við og tók í orfið, og kvað eigi nýlundu, því nú væri æ&ar- sandurinn sem gler fyrir egg- inni er svo væri þurrt. Snæbjörn gekk til bæjar og bauð þegar til stofu, og var okkur þegar unninn beini. — Kona bónda gekk um beina, en hún var Guðrún Hafliðadóttir frá Svefneyjum, mesta mynd- arkona eins og hún átti kyn til, því föðurafi hennar var Eyjólfur Einarsson dannebrogs- maður í Svefneyjum. Dóttir þeirra Hergilseyjarhjóna, Ólína, var þá heimasæta for- kunnar fríð og myndarleg. Um hana mátti kveða það s'em ort var um aðra breiðfirzka stúlki á díkum aldri: „Há og grönn og hýr á brá horskum mönnum vekur þrá bein sem hvönn af hvirfli að tá hrein sem fönn af nýjum snjá.“ Æskan sér ávallt æskuna — gegnum gler — gegnurn gler sinna fegurð^.-drauma. Ólína varð síðar kona séra Jóns Þor- valdssonar á Stað á Reykja- nesi, mesta mætiskona í sjón og raun. Verkhög og vel mennt á allt kvenlegt handbragð. Eftir veitingar heima á bæn- um skipaði bóndi fyrir verkum. Vár fiirt mikil taða um kvöld- ið enda var hinn bezti þerrir. Bað ég Snæbjörn að fá mér verk að vinna, en hann kvað það ekki vanda sinn, að íá gestum verk að vinna þótt þeir dveldu stund úr degi. „Nú fer ég heim til bæjar og geri að seglum mínum í kvöld því nú er þurrt og gott, og skulum við nú ræðast við meðan ég bæti seglin; en fyrst ætla ég að sýna þér það sem hér er að sjá markvert á eynni og eru menjaí frá söguöld.“ Leiddi hann mig suður fyrir bæinn, og sýndi mér stað þann sem fylgsni Gísla Súrssonar var til E N B II M M I N N I N G FR/l forna, er hann dvaldi í skjóli Ingjaldar. Kvaðst hann hafa grafið þar til og fundið hleðsluna á byrgi Gísla. Gerði Snæbjörn það upp og var sem ávalur grasbali utan að sjá, en inn mátti skríða þar sem lítið bar á. Þaðan gengum við suð- ur á Vaðsteinabjarg og sýndi Snæbjörn mér dæld þá sem sagt er að fíflið Ingjalds væri geymt í, sem segir í sögn Gísla Súrssonar. Ber Vaðsteinabjarg hátt yfir, og er þaðan víðsýnt til allra átta í björtu veðri, og nú glóðu sundin í sólskininu þar sem þeir Ingjaldur og Gísli voru á veiðum á tveimur bát- um, en í sögu Gísla segir svo: „Nú sér Ingjaldur, að skip sigl- ir sunnan og mælti: Skíp siglir þar og hygg ég að þar muni vera Börkur hinn digri.“ „HvacS er þá til ráða takandi“, sagði Gísli. „Ég vil vita hvort þú! c-rt svo hygginn sem þú ert drengur góður.“ „Skjótt er til ráða að taka“ sagði Ingjaldur>: „Þó ég sé enginn vitur leik- maður: Róum sem ákafast til eyjarinnar, og göngum upp á Vaðsteinabjarg og verjumst. þaðan meðan vér megum uppi standa.“ „Nú fór sem mig varði“, sagði Gísli, „að þú mundir hitta það ráðið að þút mættir drengurinn af verða1 sem beztur, en verri laun sej ég þér þá fyrir liðveizluna, ert ég hafði ætlað, ef þú skalt fyrir, mínar sakir lífið láta. Nú skal. það aldrei verða, og skal ann- að ráð taka.“ Síðan þetta gerðist hefur þaS. þótt sem kynfylgja eyjar- skeggja að vera drerigskapar- menn og hjálpsamir með af* birgðum og mætti í því efni minna á ga.mla Eggert Ólafsson, sem barg 50 farandmönnum frá hungurdauða eitt vorið í harð- indum úti í Oddbjarnarskeri, og öllum var kunnugt um. drengskap Snæbjarnar við smælingja og vinum sínum hið mesta tryggða tröll. Einn a£ vinum hans kvað svo til hans: „Hraðskreitt líður loftsins fley léttur er vindsins þytur. En hálfu fyr í Hergilsey iiugurinn mig flytur," <ij : Snæbjörn.hafði alla æfi mik- inn áhuga fyrir öllum .• sagna- fróðleik, og var vel heima. £ íslendingasögunum, og hvers- konar karmennsku, íþróttum og vopnfimi til forna. Á mann- dómsskeiði sínu var harin allra nianna nxestur og styrkastur, mikilúðlegur á yfirbragð, og engan hef ég séð víkingslegri, eftir því sem ég hef gert mér húgmynd um þá í öllum her- klæðum. Og þarna stóð nú þessi mikli maður á Vaðsteina- bjargi og .skýri fyrir mér allt um gang sögunnar þarna á stundum, og um forh kenni- leiti víðsvegar um fjörðinn. Það var engu líkara en sögulegri kvikmynd brygði fyrir augu mín. Svo vel var Snæbjörn heima í öl.lu sem varðaði sög- una. I Að þessu loknu gengum við til bæjar og bóndi tók til við Framhald á bls. 29. .

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.