Vísir - 24.12.1956, Síða 18

Vísir - 24.12.1956, Síða 18
18 JÓLABLAÐ VlSIS Einar lék á munnhörpuna og Eiríkur á litla harmoniku, sem hann átti. Varð þetta raunar upphaf af merkilegu samstarfi þessara ungu tónlistarmanna. Sumarið 1930 komu hingað harmonikusnillingarnir Gellin og Borgström. — Heilluðu þeir fólk með leik sínum og segist Eiríkur hafa fengið „miklar hugmyndir" er hann hlýddi á leik þeirra. Skömmu síðar gengur hann á fund frænda sjns Bjarna Jónssonar bíóstjóra, sem reyndist honum frábærlega vel frá fyrstu tíð. Verður það nú úr að Bjarni lánar honum fyrir fyrstu full- komnu harmónikunni sem Eirík- ur eignaðist. Afburðarhljóðfæri, „Hohner", þýzk, kostaði 980 krónur og voru það mörg lambs- verð í þá daga. Og nú tekur Eiríkur frá Bóli að æfa af kappi. ,i * Ungan dreymdi Eirík að „ganga menntaveginn“, en hin miklu veikindi hans. komu að sjálfsöguð í veg fyrir nánari heilabrot í þá átt. En ýmsum góðum kostum mun sveinninn hafa verið búinn tii þess að ganga þennan veg. Það fór vel á með þeim Eiríki og Þorsteini Bjarnasyni, eins og áður er drepiö á og mun Þorsteinn gjarnan hafa viljað halda sam- starfi þeirra áfram. Eiríkur var þó með þeim ósköpum gerður að hann langaði til að yerða sjálfstæður og öðrum óháður. Nú þegar hann hafði „Hohner" liarmónikuná góðu milli hand- anna tók hann merkilega Akvörðun og afdrifaríka upp á allt hans líf. Liggja nú leiðir þeirra aftur saman músikkant- anna frá Bólsheiði og Úthliðar- engjum í Biskupstungum. Einar Sigvaldason er einnig miklum tónlistar-gáfum gæddur. Nær hann sér nú einnig í öndvegis harmóníku og þeir „stilla sam- an“ á ný, gömlu félagarnir. Þannig gengur það um stund, þeir æfa sig og spila. Þrátt fyrir allt er lífið mikils virði. Það er markmið að keppa að, einnig fyrir mann, sem litur um þessar mundir; síðustu sólargeislanna í bókstaflegri merkingu. „Eiiikur og' Einar.“ Rennur svo upp árið 1933. Enn gengur Eiríkur á fund Bjarna frænda sins í Nýja-Bíói. Að þessu sinni falar hann af honum húsið. Það er auo- fengið og fyrsti harmóníkku- Qúett landsins „treður upp.“ Þeir Eirikur frá Bóli og Einar Sigvaldason, sem í daglegu tali nefndist „Eiríkur og Einar“ fylltu húsið 4 sinnum í röð og gerðu „stormandi lukku“. — Það er dálítið gaman að fletta dagblöðunum frá þessum tím- um. Fréttirnar af hljómleikum þeirra félaga eru raunar mestu stórfréttirnar á eftir fréttunum af valdatöku Hitlers. Og um- mælin eru öll á einn veg fþ----- þ.e.a.s. um þá félaga. Um Hitler eru þá þegar dálítið skiptar skoðanir! 1 lesbók Morgunblaðs- ins má lesa langa grein um hljómleika þeirra Eiríks og Ein- ars og dylst engum að hér hafi verið um vinsælan tónlistarvið- burð að ræða. Eftir þessa vel heppnuðu tón- leika í Reykjavík, liggur leið þeirra félaga út á land. Þeir halda tónleika í flestum kaup- Eiríkur á Bóli með „nikkuna“ góðu. stöðum á Vestur-og Norðurlandi. Þá fara þeir suður með sjó, leika í kaupstöðunum þar. Síðan austur yfir Fjall og alstaðar eru móttökurnar á einn veg, af- burða góðar og eftir að þeir, hafa komið nokkrum sinnum fram í útvarpinu kannast hvert mannsbarn á Islandi við þá „Eirík og Einar.“ Síðan fara þeir félagar að leika á' dansleikjum og alltaf koma þeir öðru hverju fram í útvarpinu. Nú þykir það ekkert ball, nema þeir félagarnir séu þar mættir með „nikkurnar." Nú er önnur öldin en þegar Eiríkur var að „stauta sig“ fram úr fyrstu völsunum á Vatns- leysuböllunum forðum, já jafn- vel orðin mikil breyting á síðan þeir félagar stilltu saman á engjunum þar eystra. Og gera má ráð fyrir að um þetta leyti hafi þessir vinsælu harmóníkku- leikarar drjúgar tekjur. „Eiríkur frá Bóli.“ Þeir Eiríkur og Einar léku saman all-langan tíma, en loks skildu leiðir. Var þá Einar farinn að hugsa til utanfarar, til frekara náms, enda fór hann skömmu fyrir stríð. Fór þá Eiríkur að spila einn á dans- leikjum og er nafn „Eiríks frá Bóli“ tengt mörgu ballinu frá þessum árum, því Eiríkur var ákaflega vinsæll og eftirsóttur. Milli jóla og nýjárs lék hann fyrir dánsi á hverri nóttu og voru þá böllin beinlínis ákveðín með hliðsjón af því hvénær Eirikur gæti Ieikið. Og tekjurnar gátu orðið alldrjúgar á köflum. ★ Á árinu 1937 kemur fyrsta lagið hans Eiríks frá Bóli . á markaðinn. Það er lagið „Ég minnist þín“ eða „Ljósbrá", sem þegar varð vinsælasta danslagið og fór sigurför um allt landið. Síðan komu nokkur danslög frá hendi Eiríks og njóta lög hans mikilla vinsælda á þessum árum og má í því sambandi minna á Geysisvalsinn. Carl Billich hefur löngum haft mætur á lögum Eiríks, enda „útsetti hann þau fyrir hljóðfæri, á sínum tima. Hefur hann stundum leikið þau í útvarp, meðal annars i „ljúfu lögunum" sínum. Eitt fyrsta ferðabíó Iandsins. Nú liður fram á það afdrifa- rika ár, árið 1939. Enn gengur Eiríkur á fund Bjarna frænda síns og nú dreymir hann stóra drauma ef til vill hefur Bjarni eitthvað verið búinn að tala utan að því málefni, sem nú er á dagskrá. Og nú er tekin mikil ákvörðun. Eiríkur ræðst í að kaupa kvikmyndavélar fyrir 20- þúsund krónur. Öðs manns æði segja menn, hvað á blindur mað- ur að gera við kvikmyndavélar. En þeir sem þekkja piltinn vita að í þetta skipti muni einnig allt fara vel, enda á Eíríkur hauk í horni þar, sem Sigríður kona hans er, og öðlaðist hún sýningarréttindi skömmu síðar. Framhald á bls. 23. SJÓKLÆÐAGERÐ ÍSLANDS H.F. ?%, Skúlagötu 51, Reykjavík. — Símar 2063 & 4085. Framiei5£r ne5anta!dan vammg: Sjóklæði úr gúmmí- og plastefnum („GalonefRum") SíSstakka, kápur, treyjur, buxur, svuntur, pils, sjóhatta og fl. ga, einíaída og tvöfalda, 3 stæröir úr hvítum og brúnum loðstrigá og prjónavoð. UHarbuxiir sjómanna („Trawlbuxmlf) og ýmsan kápuvarnig, fyrir konur og karla úr Ullargaberdine, Collongaberdine, Poplín & Rayonefnum. Ath.: Sióklæði ór sænsku „Ga5onefnunum“ eru landsþekkt fyrir gæði. Aðebs framleidd hjá Sjóklæðagerð Islands h.f. Híisqufjii t'trttíli mppln§ilm hröfur iétttmtts Ljósatæki allskonar, Finnskur kristall eirsson h.f. Laugavegi 13 — Reykjavík Síitii 3879 - 7172

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.