Forvitin rauð - 01.05.1976, Page 18

Forvitin rauð - 01.05.1976, Page 18
Jiim ÆSAÆÐRA Engar manneskjur hér á Islandi eiga við eins erfið kjör að búa og íátækar verkamannakonur. Það hefir verið svo frá ómunatíð, að konan hef- ir verið hálfgerður þræll mannsins. I>ó nokkur bót sé á þessu ráðin nú orðið, er ástandið samt enganveginn viðunandi, til dæmis er sá andi ríkj- andi meðal almennings, að ósæmandi sé að konan geri annað en elda mat og líta eftir börnum. Fátæk verkamannakona er alls ekki frjáls manneskja, hún er neydd til þess að þræla frá morgni til kvölds, eða réttara sagt fram á nætur, því sjaldnast endist dagurinn, og þar við bætist, að vaka yfir börnum á næt- urna. Þessar konur eiga margar barn á hverju ári, og vaxa þá erfiðleikarn- ir að öllu leyti, bæði fjárhagslega og rneð auknum störfum, sem öil lenda á konunni, því hún er bæði: vinnukon- an, barnfóstran og húsmóðirin. Frí- stundir þekkir hún engar, hún getur ekki einu sinni gengið. út sér til hress- ingar, sem þó er nauðsynlegt, til þess að viðhalda heilsunni, hvað þá að hún geti sér til skemmtunar farið út með manni sínurn, því þá er enginn til að hugsa um bömin. Margar af þessum konum búa í þröngum og að öllu leyti slæmum í- búðum, svo slæmum, að þær eru bein- linis heilsuspillandi, sérstaklega fyrir bömin. Mæðuraar mega sem sagt horfa á þau taka í sig allskonar sýkla í þessum pestarbælum, og eru þess ekki megnugar að afstýra því á neinn hátt, ekki einu sinni með því að veita þeim holla og góða fæðu, til þess að þeim aukizt mótstöðuafl. I»arnauppeld- ið, sem ætti að ganga fyrir öllu öðru, verður algjörlega á hakanum. Ekki af því að móðirin vilji ekki gera betur, heldur er hún tilneydd, hún hefir engan tíma til að sinna þeim eins og þarf. Ilún er þeirri stund fegnust, þegar hún getur fengið þeim eitthvað, sem þau þegja við og oft eru þrengslin í íbúðinni þess valdandi, að bömin eru drifin út. En hvað tekur þá við? Að- eins gatan með öllum sínum hættum og óþverra. Móðirin getur ekki eina stund verið óhrædd um líf og limi barnanna, hún er sífellt milli vonar og ótta, getuí alltaf búizt við, að eitt- hvert bamið verði þá og þegar borið dautt inn til hennar, dæmin eru henni deginum ljósari með það. Leikvellir fyrir böm eru hér bæði litlir og að öllu leyti ónógir, hvað þá barnaheimili, en mundi ekki þungum áhyggjum vera létt af fátækum mæðrum, sem enga möguleika hafa til að líta eftir bömunum úti, ef til væru barnaheimili, sem tækju við börnunum strax á morgnana og móðirin gæti vcrið algjörlega óhrædd um þau, jafn- framt létti það af henni líkamlegu erfiði. Auðvaldsskipulagið er pannig, að af- r.ám þess ætti engum að vera kær- komnara en einmitt verkamannskon- n* >«bum upp ur........ )rí!oma(tninu J^or6\% Richardsdóiiir: Sönqur i tilefni 24. okt. 75 Hvar ertu, félagi kona? Hver ertu, móðir, kona? Hvar ertu, húsmóðir ástkona vinnukona hver ert þú i dag? Ertu bara svona af þvi að þú ert kona? Ertu bara húsméðir af þvi að þú ert mððir? Eg spyr þig kona, þvi ég er kona: hver ert þú i dag? Ertu alltaf önnttm kafin? Eiliflega skyldum vafin? I þjóðfélaginu kúguð, kona. Vill karlmaður þig bara svona? Eg spyr þig kona, þvi ég er kona: hver ert þú i dag? unni, því margt. af því versta sem í því er, kemur harðast niður á henni. Atvinnuleysið, með öllu því böli sem því fylgir, er ein afleiðing af þessu vitfirta þ.jóðskipulagi. Skorturinn, sem atvinnuleysinu er samfara, kemur til- finnanlegast niður á konunni. Það er hún, sem svöng hömin hiðja um mat, sem hún ekki getur veitt þeim. Og sú bæn sker hana sárara en nokkur getur skilið, sem ekki hefir re.vnsluna. Á þessu þarf að ráða bót. Verkamannakonur! Stöndum allar fast saman og hristum af okkur þræl- dómsokið. Burt með kapítalismann, en vinnum að sigri sósíalismans á Islandi. Kona. >essi grein er tekin úr Nýju konunni málgagni kvenna- deildar KOmmúnistaflokks Islands l.tbl. Il.árg. 1933. Hvar er þinn draumur, kona? Hver er þin von, kona? Hvar er þin barátta vilji og kjarkur, kona? Hver ert þú i dag? Láttu ekki sál þina sofna. Eða likamann dofna. Láttu ekki smá þinn rétt af þvi þú ert i kvennastétt. Bg segi það kona, þvi ég er kona. Hver ert þú i dag?

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.