Forvitin rauð - 01.12.1976, Síða 7
7
af láglaunaráðstefnu - frh.
Þegar fara átti inn á aðrar brautir, þá greip
fundarstjðri inní- enga pðlitík-.
Hvernig er hægt að komast hjá því að minnast á
sósíalisma á ráðstefnu láglaunafðlks? Það er
ekki hægt að hefja raunhæfa umræðu um verka-
lýðsmál, án þess að taka pólitíska afstöðu.
2g varð ekki var við að mælendaskrá væri Xok-
að, heldur fyrirvaralaust lokað fyrir munninn
á verkafólki þegar hitna fór í kolunum, og
einum fulltráa þeirra afla innan verkalýðsfor-
ystunnar sem mest hafa svikið verkafólk, látinn
loka fundi. Einnig saknaði óg umræðu um
orlofspeninga. Hvernig stendur á því að sumir
atvinnurekendur komast hjá því að borga orlof,
og verkalýðsfólögum líðst að rýra orlofspeninga
sumra meðlima? Það virðist ekkert vera hægt
að fá leiðrótt í þessum efnum, því svikin eru
samtryggð öllum stjórnmálaflokkum.
Yið hræðum ekki ríkisstjórnina með svona fund-
um, því þetta er það sem þeir vilja. Það næst
enginn árángur ef aðeins er talað um afleiðing-
arnar af svínaríinu, en aldrei grafist fyrir
um r.æturnar.
þess að beina spjótunum að sameiginlegum and-
stæðing - ríkisvaldi og atvinnurekendum -.
Á þessari ráðstefnu bjóst óg við að sjá ákveð-
na krafta sem vildu brjðta sig át ár spilling-
unni, en varð fyrir vonbrigðum.
Þess virtist vel gætt að fara ekki át fyrir
láglaunasnakk, þessa eilífu spurningu um krón-
ur og aura. Það er alveg sama hvað kaupið
hækkar ef það er alltaf tekið frá okkur um
leið.
Hvað veldur því að við erum á hálfu kaupi?
Hvar stöndum við í verkalýðsbaráttunni?
Ef við ekki veltum þessum spurningum fyrir
akkur, en höl-dum okkur þ.e
okkur, en höldum okkur þess í stað þar sem
hinir vilja halda okkur, - á launaplaninuj þá
getum við haldið hundrað svona ráðstefnur án
þess að það gangi né reki.
f janúar 1976 var haldinn fundur með félags-
konum ASB. Þar kom fram,að allt væri á huldu
um lokun mjólkurbúðanna, en það yrði kallað á
fund, þegar eitthvað gerðist í málinu. Sá
fundur var aldrei boðaður .
Neytendur kölluðu starfsstúlkur og neytendur
saman á fund 28.júlí. A þeim fundi var kosin
7 manna starfshópur, 4 stúlkur úr mjólkurbúð-
um og 3 neytendur. Fyrsti fundur þessa starfs
hóps var haldinn 2.ágúst, og var það ákveðið
að hefja undirskriftasöfun meðal neytenda.
Undirskriftasöfnunin hófst á fundi í Lindar-
bæ 22.ágúst, og var listunum skilað til M.S.
með 17.200 nöfnum þann 7.september. 27.sept-
ember var farin kröfuganga og haldinn fundur
í Austurbæjarbíó, - án árangurs.-
Kosningar fóru fram í félaginu 23.-24.okt.
fyrirASf þing. Bar Lilja Kristjánsdóttir
fram mótlista, sem fékk 116 atkv., en listi
Hallveigar Einarsdóttur, formanns ASB, fékk
73 atkv. Klofningur er í stjórn A.S.B., en
hun vinnur a moti samninganefnd félagsins,
gegn lokun mjólkurbúðanna.
Samninganefnd ASB sendi verkalýðsfélögunum
bréf og vænti stuðnings frá þeim, en fékk ekki
Nefndarkonur fóru til Björns Jónssonar f orseta
ASÍ, og væntu stuðnings, sem fékkst ekki
heldur.
Hann líkti uppsögn kvennanna við atvinnumissi
karlanna í Sigölduvirkjun.
Krafa var send stjórn M.S., þar sem beðið
er um að"a.m.k.25 búðir verði reknar áfram
þar sem þörfin er mest og þá í 5 ár. Þetta
myndi þýða að hluta elstu kvennanna yrði
tryggð örugg atvinna um nokkurt skeið, og þau
hverfi sem annars yrðu illa úti hefðu áfram
fyrri þjonustu." M.S. visaði tillögunni frá
sér til Kaupmannasamtakanna.Þeir gerðu
könnun, að beiðni samninganefndar A.S.B., á
hvað margir kaupmenn vildu selja mjólkurvörur
Aðeins 6 kaupmenn voru spurðir, 3 vildu taka
þetta að sér,l var óákveðinn og 2 vildu
óbreytt ástand. Þessi krafa var send í bréfi
til allra þingmanna vegna uppsagna starf-
stúlknanna, og einnig verður hún borin fram
FRH. A BLS. 18