Forvitin rauð - 01.12.1976, Blaðsíða 12

Forvitin rauð - 01.12.1976, Blaðsíða 12
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ 12 ★★★★★★★★★★★★ Hvað er að ★★★★★★★★★★ gerast í félagi i ......... _ I sept. síöastliöinn var Kristrúnu Guömunds- dóttur sagt upp starfi sínu á umferöamiðstöÖ- inni x Reykjavík. Hún var ekki sátt viö rökin sem þar lágu að baki svo hún varði miklum tíma og erfiði í aö fá réttan sinn hlut. En það var eins og aö berja höfðinuí stein því ekkert gekk. Hún var samt ekki á því að gef- - * ast upp, því hvers vegna myndar fólk meö sér félagssamtök ef slík samtök eru óvirk. FR. talaði við Kristrúnu og stéttarfélaga hennar, Hrefnu Jónsdóttur trúnaöarmann á Hótel Esju, í þeim tilgangi aö forvitnast um reynslu þeirra af starfsemi félagsins. _______________________________________________i FR. : Hver var ástæðan fyrir því að þú varst rekin ? KG.: Ástæðan var sögð sú aö fækka þyrfti starfsfólki en síðar kom í ljós aö ófé- lagsbundin manneskja var ráöin í minn staö og hún tók straks við næstu vakt eftir að ég hætti. Aður en þetta gerö- ist hafði eg verið að berjast fyrir bættum kjörum á vinnustaönum. I samningum okkar er stór gloppa, - engir saminingar ná yfir tímabiliö frá 02-08. Alagið sem er greitt fyrir þenn- an tima er fáranlegt. 2g fór meö skrif- lega tillögu til forráðamanna félagsins um að viö fengjum 33% álagningu á heild- arlaun, sem hefði þýtt 4.000.- kr. launa hækkun á mánuöi. Mér fannst eðlilegt að þetta akvæði yröi tekið inn í samningana sem þá stóðu fyrir dyrum. Einu svörin sem ég fékk voru á þá lund að þótt við félagsmenn sæjum fram á rétt mæti þessa akvæðis þá gerðu atvinnurek- endúr það örugglega ekki. Eflaust hef- ur þeim þarna hrotið sannleikskorn af vörum, því atvinnurekandinn varaði hinar stúlkurnar við að tala við mig, því ég væri að koma af stað byltingu. Eina stulkan sem stoð með mér gegnum þykkt og þunnt var einnig rekin. 'r • •’ Hver er reynsla ykkar almennt af starf- semi félagsins. :G-: Samskipti mín við þetta félag hafa vald- ið mér miklum vonbrigðum . Varðandi kröf. una um launahækkun var ekkert gert fyrr en eftir að ég var rekin og persónulega fékk ég enga leiðréttingu mála. HJ.: Félagið virðist fremur vinna fyrir atvinn- urekendur en félagsmenn. Formaðurinn hefur jafnvel hringt í atvinnurekendur og varað þá við eftir að fólk hefur borið fram kvörtun. A mínum vinnustað gerðist það, að stúlkur voru látnar vinna störf sem heyrðu undir starfsvið kokka. 2g hafði þá samband við félagið og bar fram kvörtun. Formaðurinn benti mér á að láta segja þeim löglega uppf KG.: Það er eins og að tala upp í vindinn að leita til félagsins, jafnvel þegar um bein samningsbrot er að ræða. HJ.: Eg get nefnt annað dæmi af mínum vinnu- stað þessu til stuðnings. Það stóð til að reka stúlku í 10 daga kauplaust frí vegna þess að einhver önnur þurfti að fá vinnu hjá fyrirtækinu í stuttan tíma. Aftur kvartaði ég og benti á að slíkt gjörræði væri algjörlega ólöglegt. Nú voru ráð formannsins þau, að við skyldum hafa samband við félag atvinnurekenda og athuga hvort ekki væri stafur í þeirra lögum, sem réttlætti slíka kjaraskerðingu. En þessi ráðlegging kom aldrei til fram- kvæmda, því stúlkan sagði upp starfi. Það láta ekki allir bjóða sér hvaö sem er. Sem vinnukraft var ekkert út á hana að setja og í dag hefur einstæð móöir ekki efni á því að missa 10 daga laun. FR.: Samkvæmt því sem hér hefur komið fram, virðist félagið hafa brugðist hlutverki

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.