Forvitin rauð - 01.12.1976, Page 8
_______________________8
frá Mandebevægelsen
Hvað er pungrotta ?
Pungrotta er þýðing á enskul orðunum
"male chauvinist pig" en þau hafa reynd-
ar einnig verið þýdd sem "karlforrétt-
indapungur" sem er alltof stirt og
óþjált. Hugtak þetta mun fyrst hafa
verið notað meðal bandarískra kvenna
sem börðust fyrir jafnrétti kynjanna og
hlaut fljátt mikla útbreiðslu. Það nær
yfir karlmenn sem ýmist meðvitað eða
ómeðvitað setja sig ofar konunni og
telja sjálfsagt að hún sé þeim undir-
gefin.
Danskur maður að nafni CXaus Clausen
hefur ásamt fleirum gefið út bók sem á
frummálinu nefnist "Mænd. Det svækkede
kön" og er í ört stækkandi hópi báka
eftir karlmenn þar sem þeir reyna að
endurmeta stöðu sína sem karlmenn. Líta
þeir á þetta endurmat sem hliðstæðu við
það starf sem jafnréttishreyfingar
kvenna hafa unnið á undanförnum árum og
áratugum.
Reyndar hafa danskir karlmenn gengið
lengra en að skrifa bækur. Þeir hafa
til dæmis stofnað hreyfingu sem þeir
nefna "Mandebevægelsen" og eru nú starf-
andi tugir starfshópa á hennar vegum um
alla Danmörku.
Aftast 1 bok Clausens og félaga gerir
hann tilraun til að lýsa því með áþreif-
anlegum dæmum hvað það er að vera pung-
rotta, dæmum sem "varpa ljósi á það hvar
skárinn kreppir" eins og hann kemst að
°rði. Þessi kafli fylgir hér á eftir í
íslenskri þýðingu. Vonandi er sá karl-
maður ekki til sem öll dæmin eiga við
um en sennilega. sleppur eng-inn við að
finna eitthvað sem á við hann.
Pungrotta er maður sem:
- aðeins getur elskað konu sem er veik-
byggðari en hann, yngri, minna menntuð
og sem tilbiður hann vegna eigin ósjálf-
stæðis
- glápir á "skvísur" þegar hann er á
gangi með konu sinni eða reynir í hug-
anum við þær sem yngri eru og lögulegri
en hún
- dæmir konur einungis eftir útlitinu
en gleymir því hvernig hann lítur út
sjálfur
- alltaf er uppskrúfaður, veit allt
betur og treður eigin persónu upp á
aðra, þar á meðal konuna sína
- ræðir málefnalega við kynbræður sína
en lætur konum nægja daður og hégóma
- heyrir ekki það sem konur segja í
samkvæmum og virðir einungis karlmenn
svars - tekur einungis karlmenn alvar-
lega
- finnst hann vera eins og kóngur í ríki
sínu þegar hann er einn í kvennahópi
- finnst eðlilegt að hann panti matinn
á veitingastað og sjálfsagt að hann'komi
fram í nafni konunnar
- klappar konu á bossann eða kitlar hana
undir hökunni eins og hún sé stórt smá-
barn
- aðeins er fær um að ríða konu ef hann •
á frumkvæðiö - eða er "ofaná" í bókstaf-
legri merkingu
- metur útlit kvenna og gefur þeim ein-
kunnir eftir því (of lítil brjóst, of
stór brjóst, of mikil læri o.s.frv.)
- finnst það vera í verkahring konunnar
að sjá um getnaðarvarnir og getur ekki
hugsað sér að taka inn pilluna eða láta
gera sig ófrjóan
- heldur upp á fæðingu barns síns með
því að fara á kvennafar
- flautar á eftir eða eltir konur á göt-
um úti
- segir aldrei "ég elska þig" nema þegar
hann er að fá úr honum