Forvitin rauð - 01.12.1976, Qupperneq 9

Forvitin rauð - 01.12.1976, Qupperneq 9
9 - gumar óspart af öllum þeim konum sem hann "nær í" eða "neglir" - lifir í þeirri trú að allar konur dreymi um hann einan og etur konum saman - finnst hann vera maður með mönnum þegar "konan" er ófrísk eða þegar hann hefur "barnað" hana eins og hann segir sj álfur - segir "Haltu þér saman, þú hefur ekkert vit á þessu" við konu sína þegar hún segir sitt álit - meðhöndlar konu sína eða vinkonu eins og hjálparvana barn, talar t.d. niður til hennar, skýrir eitthvað fyrir henni með umburðarlyndi í svipnum, brosir föð- urlega að því sem hún tekur sér fyrir hendur og finnst hún vera kjánaleg, barnaleg og grunnhyggin - skammast í sífellu út af því hve lítið konan leggur af mörkum til heimilis- haldsins en metur einskis starf hennar við að gæta bús og barna - telur að konan geti ekki - frekar en svo margt annað - ekið bíl og sest því alltaf sjálfur undir stýri fjölskyldu- bílsins nema þegar hann er drukkinn - talar alltaf í fyrstu persónu eintölu þegar hann á við sig og konu sína eða fjölskylduna - ákveður hverju fjölskyldan hefur efni á og hverju ekki - "hatar " að fara í verslanir, veit því ekki hvað neitt kostar og lætur konuna um að gera öll dagleg innkaup - vill helst að konan hans sé inni á heimilinu og segir henni að hætta að láta sig dreyma um vinnu utan heimilis- ins - skammtar konu sinni matarpeninga að eigin geðþótta og rífst í hvert skipti sem þeir eru búnir - neitar að taka þátt í húshaldi og barnaumönnum þótt konan vinni einnig úti - heldur því fram að konur séu líffræði- lega betur skapaðar til húsverka - kemur sér hjá húsverkum með því að segjast "ekki kunna þetta" - segir konunni sinni hversu heppin og ánægð hún sé og gengur út frá því sem vísu að hún sé á sama máli - finnst "kellingin" vera móðursjúk þegar hún er óánægð með þrælshlutverk sitt - getur auðveldlega haldið framhjá konunni sinni en verður óður af afbrýðis- semi ef hún reynir eitthvað í þá veru - á leynilega ástkonu og finnst hann vera lukkunnar pamfíll að lifa tvöföldu lífi því það styrkir vitund hans sem karlmaður - beitir konur valdi eða hótar því ef þær láta ekki að vilja hans - getur því aðeins komið sér áfram í lífinu að hann hafi kvenþræl sem annast allar nauðþurftir hans - lætur konu sína vinna kauplaust fyrir sig og eignar sjálfum sér heiðurinn af uppskerunni - aflar sér menntunar á kostnað sam- býliskonu sinnar sem heldur honum uppi með ófaglærðri vinnu

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.