Forvitin rauð - 01.12.1976, Page 22

Forvitin rauð - 01.12.1976, Page 22
22 en hún sagði við verkstjórann: „Ég vil fá fullt kaup, ef ég get unnið eins og hinir." Hún varþá látin vaska á móti duglegustu kon- unni,sem Guðrún hét, en hún talin vera karl- mannsígildi. Eftir fyrstu vikuna tókst Hall- dóru að ná henni og fékk hún þá sama kaupeftir það. Unnið var í akkorði og konurnar fengu 35 aura fyrir hverja hundrað fiska. En konurnar gátu ráðið því hvort þær unnu í akkorði eða á tímakaupi, en það var 10 aurar á tímann. Unglingar fengu minna kaup. Þegar skip komu voru konurnar látnar vinna við uppskipunina. Þá fengu þær 12 aura á tímann. Karlmenn réru út í skipið og sóttu vörurnar, en þegar bátarnir komu að bryggju tóku konur- nar við og báru þá hálft skipspund (160 pund) af kolum eða salti á börum á milli sín. Korn- vöruna báru þær á sama hátt í 200 punda sekkjum. Konurnar unnu líka við uppskipun á timbri. Ekki gátu konur borið svo þungt, en Halldóra varlátin vinna á móti Gunnu jafnt við vöskun sem kolaburð. Aðkomumaður orti þessa vísu: Fyrir vestan fljóð ég sá, fölar mest á vanga, eins og hestar áburð með í stórlestum ganga. Það voru aðallega konur, sem unnu við uppski- pun, og það voru eingöngu konur í vaskinu. Bæði karlar og konur voru í því að bera fisk- inn að og frá. Fiskurinn var keyrður út á reitina x handknúnum vagni, sem rann eftir járnbrautarspori. Vinnutxminn var frá sex á morgnana til átta á kvöldin. Fólkið fékk tvo tíma í mat og kaffi Allir fóru heim í mat, en kaffi höfðu menn ýmist með sér eða þeim var fært. Kaffitímar voru þrisvar á dag. - Sumar konurnar voru með börn á brjósti, segir Halldóra, og ég man sérstaklega eftir einni konu, sem alltaf byrjaði á því að gefa barninu brjóst áður en h-ún drakk kaffið sitt. Eldri systkinin komu með barnið út á reitinn til hennar á kaffitímum. Barnið var þrettán eða fjórtán mánaða og var farið að ganga. Ekki var mikið um það á Vestfjörðum að konur sæktu sjó, en þá þekktist það að konur réru. Guðný Magnúsdóttir í Súgandafirði stundaði mikið sjó. Hún var í lausamennsku sem kalla- að var. Eitt sinn gerði hún sér það til gam- ans að róa með átta stelpur á handfæri. Halldóra var ein þeirra. Þær fylilt bátinn og fengu góð daglaun. Algengara var það að konur sæktu sjó við Breiðarfjörð Faðir Halldóru drukknaði árið 1913 í róðri. Ari seinna fór hún suður til Reykjavíkur í atvinnuleit. Hún var þá beðin fyrir veika konu sem átti að fara á Hælið. Farið suður kostaði tíu krónur og fimmtú aura, en þegar til Reykjavíkur kom kostaði tuttugu og fimm aura undir hvorn pakka - lítinn eða stóran- sem þurfti að ferja í land. Nú voru góð ráð dýr, því þær samferðakonurnar voru með farang- ur sinn í mörgum pinklum, en auraráðin lítil. Halldóra hafði nú snör handtök. Hún gróf blá- köflótta sængurverið sitt upp í skyndi og lét allan farangur þeirra beggja þar í, og þær voru ferjaðar í land með allan sinn farangur í einum pinki. Þegar hér var komið við sögu voru hjónin frá Klukkulandi flutt suður og voru með smábúskap að Leynimýri við Eskihlíð. Halldóra fékk bónd ann til þess að flytja veiku konuna og farangu: ur hennar á hestvagni til Vífilstaða. Næsta dag gekk Halldóra út í Leynimýri út í Melshús á Seltjarnarnesi í leit að vinnu. Thor Jensen rak þar saltfiskvinnslu. Þarna unnu um það bil 60 konur og voru þær flestar í heimavist. Konurnar bjuggu fjórar eða fimm saman í herbergi og borðuðu í sameiginlegu mötuneyti. Kaupið var 12 aurar á tímann. Þegar búið var að vaska og ekki var hægt að breiða, voru konurnar látnar vera í grjótvinnu

x

Forvitin rauð

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.