Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 3

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 3
3 Starfið hefur veri ð hressilegt í vetur, ekki síst eftir jól. Sex hópar hafa starfað reglulega og nýir hópar eru í uppsiglingu þegar þetta er skrifað. Sá hópur sem mesta vinnu hefur lagt af mörkum - að öðrum hópum ólöstuðum - er verkalýðsmálahópur sem sá um skemmtilega og mjög áheyrilega dagskrá í Félagsstofnun ..stúdenta 8. mars . Undirbún- ingsvinnan að dagskránni var mjög tímafrek, en hópurinn hafði erindi sem erfiði og öðl- aðist ómetanlega reynslu um leið. Dagskráin er nú komin út í bókarformi með söngtextum og heimildaskrá, mjög handhæg til að nota í félögum og á vinnustöðum. Auk þess má benda skólafólki á bókina ef það vill fræðast um kjör verkakvenna fyrr og nú, það er ekki ýkja mikið að finna um þau efnl í kennslubókum. Annar hópur sem vert er að geta sérstaklega er ráðgjafarhópur svonefndur. í honum eru m.a. læknir, félagsráðgjafi og lögfræðinemi, og hópurinn hefur safnað upplýsingum um sitt hvað sem fólk hefup leitaö til okkar með. Þegar þetta er skrifað eru í ráðgjafarmöppu upplýsingar um fóstureyðingar, getnaðarvarnir jafnréttislögin, félagsmálastofnun og dag- vistun barna, en í vinnslu eru kaflar um hjónaskilnaði og kynsjúkdóma. Mappan með þessum upplýsingum liggur frammi í Sokkholti, sem er opið milli 5 og hálf 7 alla virka daga nema laugardaga. Á síðasta ársfjórðungsfundi, sem var haldinn 3- apríl, kornu fram margar hugmyndir um fram- tíðarverkefni. M.a. var ákveðið að viðhalda og efla söngsveit þá sem stóð sig svo myndar- lega 8. mars, og ætlar Olga Guðrún Arnadóttir að nýta tónlistarmenntun sína í hennar þágu. Þar var líka afráðið að stofna hóp til að sjá um þýðingu á dönsku handbókinni Kvinde kend din krop. Hanna Hallsdóttir, sem er búsett í Danmörku, ætlar að þýða bókina, en hópur hér heima ætlar að fara yfir þýðinguna og staðfæra hana eins og þurfa þykir. Einnig var stofnaður hópur til að lesa sér til um og kanna kynferðislegt ofbeldi gagrt- vart konum og leshringur til þess að vinna upp bókalista og útbúa lesefni handa nýliðum. Nánari upplýsingar um hópana hanga uppi í Sokkholti. Rauðsokkahreyfingin hefur ekki haft umsvif í útgáfumálum vegna fjárskorts og varfaarni í peningamálum. Fjárhagsstaða hreyfingarinnar er hins vegar heldur góð um þessar mundir og standa vonir til að hún batni enn með ágóða af þessu blaði og 8. mars-bókinni. Það er sannarlega nóg sem hægt væri að skrifa um, þýða og gefa út um baráttumál rauðsokka, því bækur um þau efni eru fáar til á íslensku. Til daanis vaari full þörf á því að gefa út vekjandi bók handa nýliðum með bókalista og heimildum, bók sem líka mætti dreifa í efstu bekki grunnskóla og á vinnustöðum. Um miðjan mars gekkst miðstöð fyrir fundi um fjölskylduna. Þar hélt Inga Huld Hákonar- dóttir fróðlegt og skemmtilegt erindi fyrir troðfullu Sokkholti, og umræður á eftir voru líflegar. Á ársfjórðungsfundinum kom fram áhugi á að vinna úr hugmyndunum sem Inga Huld hafði kveikt hjá fólki og ákveðið að beina dagvistarmálahóp að fjölskyldumálum. í miðstöð Rauðsokkahreyfingarinnar eru nú þær Dóra Guðmundsdóttir, gjaldkeri (31123), Álfheiður Steinþórsdóttir (35714), Guðrún Kristinsdóttir (26458), María Jóna Gunnarsdóttir (30053), Lára Halla Maack (25226), örbrún Guðmundsdóttir (85490), Valgerður Eiríksdóttir (2o627), og Sigríður Jóhannsdóttir (81499). Símanúmer hreyfingarinnar er 28798. útgefandi: Rauðsokkahreyfingin, Skólavörðustíg 12, Reykjavík. Sími 28798. Að útgáfu blaðsins unnu að þessu sinni Guðrún Ágústsdóttir Guðrún ögmundsdóttir Silja Aðalsteinsdóttir Valgerður Eiríksdóttir og örbrún Guðmundsdóttir fyrir utan alla höfundana sem skrifuðu í blaðið og lögðu í það mikla vinnu. Merktar greinar eru á ábyrgð höfundanna. Forsíðu teiknaði Margrét Einarsdóttir.

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.