Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 19
19
ari klausu af miklum ákafa en lítilli rök-
hyggju. í dreifibréfinu var sagt að kvenna-
barátta hér á la ndi hefði fyrst og fremst
verið "leidd af mennta- og yfirstéttarkonum"
og þegar við það bætist áður tilvitnuð
klausa úr dreifibréfinu er okkur kannski
ekki láandi þótt við fáum þá hugmynd að
Eikarar séu að stimpla okkur "rosalega
borgaralegar". Enda reyna þeir að rökstyðja
það í Dbl.greininni á tvennan hátt.
í fyrsta lagi segja þeir:"Rsh hefur enga
stjórn eða ákvörðunarvald en í forystu hafa
staðið mennta- og yfirstéttarkonur og virka
útá við sem stjórn þótt hún sé ekki formlega
kosin af meðlimum hreyfingarinnar."
Við vitum ekki hvers lags endemis rugl og
vitleysa þetta er.' Það er alveg rétt að Rsh
hefur enga stjórn vegna þess að allt skipu-
lag hreyfingarinnar beinist gegn valdslegri
uppbyggingu en reynir þess í stað að byggja
á virku lýðræði. Ákvörðunarvald hafa árs-
fjórðungsfundir og allsherjarfundir, sem
boðað er til. En miðstöð hreyfingarinnar,
sem er formlega kosin af félögum, hefur
framkvæmdavald. Miðstöð virkar hins vegar
hvorki inn á við né út á við sem "stjórn"
hreyfingarinnar. Ef Eikarar eiga við þær
sem skrifa á Jafnréttissíðu Þjóðviljans eru
þær konur aðeins einn starfshópur Rsh. Þær
koma fram undir eigin nöfnum, og skrif
þeirra eru á þeirra eigin ábyrgð en ekki
Rauðsokkahreyfingarinnar.
Við vitum ekki hvað 8. mars hreyfingin á
við þegar hún talar um "yfirstéttarkonur".
í Rsh eru engar konur sem við getum kallað
"yfirstéttarkonur". Það er hins vegar rétt
að innan Rsh starfa menntaðar konur. Tilraun
8. mars hreyfingarinnar til að gera það tor-
tryggilegt að í Rsh starfi menntafólk er til
þess eins fallið að ala á þeim hugmyndum, að
menntað launafólk og ófaglært launafólk geti
ekki staðið saman í baráttunni gegn auð -
valdinu.
í öðru lagi reyna þeir að rökstyðja stað-
hæfingar sínar frekar með dæmum úr málgagni
Rsh - Forvitin rauð. öll dæmin, nema eitt,
eru tekin úr janúar- og maíblaði árið 197^-
Fyrstu vikuna í mars komu sendimenn 8.
mars hreyfingarinnar niður í Sokkholt. Þeir
fengu þar öll blöð Rsh, upplýsingar um skipu
lag og stefnu hreyfingarinnar og upplýsingar
um sögu hennar. Auk þess hafa konur í Eik
starfað með Rsh hér áður fyrr (það eru
væntanlega "góðu baráttukonurnar " sem talað
var um í dreifibréfinu). 8. mars hreyfingin
hafði því fullar upplýsingar um það, _að
haustið 1974 klofnaði Rsh, borgaralegir fem-
ínistar gerjgu út en stefna hinna róttæku
varð ofan á. Að vitna í Forvitna rauða
fyrir þessi umsklptl og gera ummæli í fjög-
urra ára gömlum blöðum að stefnu Rsh hér og
nú er svo lágkúruleg sögufölsun að manni
getur ekki annað en blöskrað. Grein Eikar-
anna lýkur svo á þessari rökleysu, sem er
eins og allir sjá ekki tilboð um samstarf
- heldur tilboð um að ganga úr Rsh og í
Eik m-1: "í grein Rauðsokka stendur "að 8.
mars hreyfingin geti hrelnt ekki hugsað sér
að vinna með Rsh..." Þetta er ósatt. Þetta
stendur hvergi í drelfibréfinu. Þar sem Rsh
hefur engan grundvöll né heldur stjórn eða
ákvörðunarvald þá þýðir það einfaldlega það
að ekki er hægt að snúa sér til Rsh sem
heildar. En auðvitað geta einstaklingar og
hópar innan Rsh tekið þátt í starfi 8. mars
hreyfingarinnar á þeim grundvelli sem við
höfum markað okkur. Um þennan grundvöll er
hreyfingin til orðin og ekkert hægt að makka
um hann. Við hvetjum allar baráttukonur im>-
an Rsh að taka afstöðu til grundvallarins og
koma til starfa undir þessum kjörorðum.."
to.s.frv.
Eins og hér hefur komið fram er þessi
Dagblaðsgrein Eikar full af rangfærslum og
beinum álygum. Það má segja að sú sósíal-
íska hreyfing sem þarf á svona vinnubrögðum
að halda hljóti að vera býsna örvæntingar-
full og bágstödd. Þess vegna ætti kannski
að vorkenna "aumingja Eik" og láta þar við
sitja - en við töldum ókleift að líta fram-
hjá málflutningi samtakanna gegn Rsh. Það
er leitt tll þess að vita, að nokkur maður
skuli hafa trúað þeirri vitleysu sem þar
var á borð borin.
Rauðsokkahreyfingin hefur það markmið að
vinna að öflugri og sjálfstæðri kvenfrelsis-
hreyfingu hér á landi. Það er augljóst að
Eik m-1 er ekkert hrifin af því. Þeir taka
það til bragðs að setja á fót "dótturfyrir-
tæki" undir merki kvennabaráttu og í nafni
þess"pólitíska hreinleika" sem þeir álíta
sig hafa til að bera. Þessi einangrunar- og
klofningsstefna er síðan réttlætt með held-
ur hæpnum rökum eins og hér hefur verið
sýnt fram á.
Verkalýðsmálahópur Rsh.