Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 18

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 18
ml Með þessu skrifi viljum við fara nokkrum orðum um herferð Eikar m-1 (Einingarsamtaka kommúnista / marx- leninista) gegn Rauð- sokkahreyfingunni fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Okkur fundust vinnubrögð "dótturfyrir- tækis" Eikar m-1, 8. mars hreyfingarinnar svokallaðrar, svo auvirðileg, að við héldum fyrst að best væri að ansa þeim ekki. Síðar höfum við rekist á nokkrar manneskjur sem lásu og trúðu rógsgrein 8. mars hreyfingar- innar í Dagblaðinu 7- mars síðastliðinn. Okkur þótti því rétt að gera nokkra grein fyrir reynslu Rsh af hreyfingu þessari og starfsaðferðum hennar. 1. Það fyrsta sem við sáum og heyrðum af því sem síðar var kallað 8. mars hreyfingin var dreifibréf þar sem nóg var um árásir á Rsh. Þetta dreifibréf kom fram í janúarlok, þegar við rauðsokkar vorum í óðaönn að und- irbúa baráttufund þann 8. mars, sem er al- þjóðlegur baráttudagur verkakvenna. Við vor- um þá búin að vinna að því í mánuð að gera 8. mars að baráttuflegi. Yfirskrift dreifi- bréfsins var "Gerum 8. mars að baráttudegiC Undir það skrifaði einhver "Prumkvæðisnefnd". 1 dreifibréfinu segir:"Þegar minnst er á kvennabaráttu dettur flestum í hug Rauð- sokkahreyfingin og í framhaldi af því kjör- orð sem beinast gegn karlmönnum, gegn heim- ilinu og gegn barneignum.' Áróður sem þessi er einkennandi fyrir þá hreyfingu þótt svo þar hafi einnig starfað margar góðar bax1- áttukonur." Síðar í bréfinu segir: "Mikil- vægustu baráttumál okkar í dag eru: Gerum verkalýðsfélögin að baráttutækjum( - Dag- vistarrými fyrir öll börn( - Pulla atvinnu - gegn f jöldauppsögnum.' - S jálfsákvörðunarrétt kvenna til fóstureyðingaC Það sem hér var talið samsvarar baráttu- málum Rsh, og nægir að vísa til grundvallar hreyfingarinnar í málgagni hennar Porvitin rauð, desemberblaði 1976. Rsh hefur barist og berst fyrir atvinnuöryggi, sjálfsákvörðun- arrétti kvenna yfir eigin líkama, auk þess sem hreyfingin leggur áherslu á bætta fél- agslega aðstöðu foreldra og barna. Það eina sem bætt var við baráttumál Rsh AUMING EIK - voru þessar kröfur:" - Gegn stríðsfyrirætl- unum risaveldanna: - ísland úr NATO - herinn burt(" Þessar kröfur um baráttuna gegn risa- veldunum tveim og afstöðuna til heimsvalda- stefnunnar setti 8. mars hreyfingin jafrr- framt á oddinn - eins og öll "dótturfyrir- tæki" Eikar. Við vitum vel að viðhorf til þessara mála eru nokkuð ólík innan Rsh, þó svo allir félagar í hreyfingunni séu andstæðingar heimsvaldastefnu og herstöðva hér á landi. Við viljum ekki sundra því góða samstarfi og samstöðu sem ríkir innan Rsh um sjálfan grundvöll hreyfingarinnar, kvennabaráttuna, með því að fara að negla niður einhverja ákveðna einstrengingslega skilgreiningu á heimsvaldastefnu. 2. PÓlk, vinveitt Rsh, villtist á vegg- spjöldum 8. mars hreyfingarinnar vegna þess að á þeim var mjög áberandi merki, alþjóð- legt tákn kvennabaráttu, sem eingöngu hefur verið notað af Rauðsokkahreyfingunni hér á landi. Fólk hélt því að hér fasri boð frá okkur en uppgötvaði brátt að svo var ekki. Með þessu fólki bárust okkur ýmsar sögur úr herbúðum Eikar um Rsh, en það er erfitt að höndla slíkan málflutning eða svara honum á nokkurn hátt. Þeir sem beita slíkum vopnum koma oftast meira óorði á sjálfa sig en þá sem þeir eru að reyna að rægjaT 5. Þann 7. mars birtist svo í Dagblaðinu (síðdegisblaði) svívirðileg grein, undir- rituð af 8. mars hreyfingunni. Greinin bar yfirskriftina "Borgaraleg kvenremba og þing- ræðishyggja (svo() einkennir Rauðsokkahreyf- inguna - segir 8. mars hreyfingin." Greinin birtist daginn fyrir baráttufundi hreyfing- anna tveggja, þannig að vonlaust var fyrir Rsh að svara greininni og leiðrétta rang- færslur hennar fyrir 8. mars. Þetta hljóta að teljast heldur leiðinleg vinnubrögð. Að nafninu til er greinin svar við athuga semdum Jafnréttissíðu Þjóðviljans þ. ll.feb. um dreifibréfið "fræga". 1 Dagblaðsgreininni er vitnað í Jafnréttissíðuna og tekin upp eftirfarandi klausa: "...þegar við fengum dreifibréf frumkvæðisnefndar í hendur. Þar segist nefndin hreint ekki geta hugsað sér að vinna með Rauðsokkum. Rauðsokkahreyfingin sé alveg rosalega borgaraleg sem sést best á því að hún "ræðst gegn karlmönnum, barr>- eignum (þeirra?) og fjölskyldunni"..." ÉL mars hreyfingin snýr sér svo að þess-

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.