Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 9

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 9
myrk er HEI-BIIV 9 aldri, hún liggur dauðadrukkin undir þeim sem hafa vilja - og næstu heigi er hún komin aftur. Sp.: Af hverju í ósköpunum fara þær svona með sig? Sv.: Ég veit það ekki. Ég hef stundum hugsað um það - því að það er óhuggulegt að heyra hvernig strákarnir hlæja að þeim. Kannski er þetta eins konar örvænting, þessar konur eru ekki lengur útgengilegar á almennum kvennamarkaði - lífi þeirra sem kynvera, og það er kannski eina lífið sem þær þekkja, er að ljúka - og þetta er ef til vill einhvers konar staðfesting á því að þær gangi ennþá. Sp.: l>etta er hræðilega sorglegt. Sv.: Já - og ég get sagt þér margar sögur í sama dúr. Einu sinni var hringt upp á Völl og beðið um einhvern stað, sama hver væri, og þá var dauðadrukkin kona í símanum sem bókstaflega orgaði: "Sendiði okkur karl- menn". Þetta endaði með því að þrír strákar fóru með leigubíl í þetta tiltekna heimilis- fang. Þar voru þá fimm konur á aldrinum 50-70 ára, drukknar og svo aðgangsharðar að strákarnir sögðu að þetta hefði verið eins og hver önnur martröð. Einn þeirra hellti ofan á sig viskýi og þegar "hans kerlingar" ætluðu að hjóla í hann þóttist hann vera við það að fara að gubba og flýði svo stuttu seinna þegar dömurnar voru dauðar af fylleríi og hættar að fylgjast með honum. Reglurnar ná ekki til yfirmanna Sp.: Hvað segirðu um afstöðu yfirvaida þessara mála? Sv.: Ja - eins og allir vita var bannað að hafa svarta menn á Vellinum til langs tíma. Þetta voru vinsamleg tilmæli íslenskra stjórnvalda og þá hafa þeir örugglega verið að hugsa um blóðblöndun. Svo var hætt að setja litar-athugasemdir við ameríska her- menn, árið 197J>> eftir að stjórnarskrá Bandaríkjanna var breytt, þá gátu ameríkart- ar ekki lengur orðið við hinum vinsamiegu tilmælum íslenskra yfirvalda. Svartir kanar eru hins vegar aðvaraðir sérstaklega og sagt að vera viðbúnir ofboðslegu kynþáttahatri íslendinga. Konurnar sem sækja fastast á Völlinn eru stundum stoppaðar af í hliðinu og snúið við. Samt er alltaf fullt af þeim þarna upp frá eins og sjá má af því að lögreglan hefur stundum gert rassíur á Vellinum og dröslað blindfullum konum útúr bröggunum og út fyrir hliðið - og svo bless - þið getið gengið í bæinn ef ykkur sýnist svo. Það er útgöngubann á kanana sjálfa eftir kl. 10 á kvöldin - en þetta bann nær bara til óbreyttra hermanna - ef þeir eru í fylgd með háttsettum - þá fá þeir að fara. Og eins og allir vita er hægt að fara í kringum þessar reglur eins og allar aðrar reglur sem ekki eru taldar skipta neinu höfuðmáli. Rauðsokkahreyfingin hefur látið prenta kortið her að ofan með mynd eftir Sig- rúnu Eldjárn. Það fæst hjá hreyfingunni 1 Sokkholti, 1 Bokabuð Máls og menningar og Bóksölu stúdenta.

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.