Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 14

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 14
stúlkna er gegnsýrt þessum hugmyndum auk þess sem þeim er miðlað gegnum kvikmyndir ástarrómana og alls kyns hugmyndaiðnað. Staðreyndin er sú að fjölskyldumynstrið er til þess fallið að viðhalda afturhalds- sömum hugmyndum um stöðu kvenna. Fyrir konunni er eiginmaðurinn haldreipi sem hún heldur dauðahaldi í. Undlr honum er efnahagsleg afkoma hennar komin og hann er tengiliður hennar við umheiminn. Börnunum er kennt að líta upp til föður síns, þess er krafist að þau sýni honum skilyrðis- lausa hlýðni, en móðurinnar er að leysa úr tilfinningalegum vandamálum þeirra. Þau læra að karlmanninum séu allir vegir færir en geta konunnar sé takmörkuð við ákveðin svið. Karlveldishugmyndirnar ganga þannig frá einni kynslóð til annarrar. Samskipti fjölskyldumeðlima mótast öll af ofangreindum afstæðum. Þetta mynstur getur af sér togstreitu milli karla og kvenna, barna og foreldra. Karlmaðurinn á að vera "átorítet" fjölskyldunnar og hann reynir að vera það samkvæmt þeim karlveld- ishugmyndum sem samfélagið er gegnsýrt af. En samhliða því sem hann nýtur góðs af forréttindum sínum verður hann að gangast undir hefðbundnar skyldur karla, að vera hinn sterki, bæla niður tilfinningasemi, og honum ber að vera framfærandi fjölskyld- unnar - helst "góður skaffari". Hlutverk hans er að öðlast viðurkenningu í atvinnu- lífinu og á opinberum vettvangi. Þetta hlutverkamynstur einkalífsins gerir það að verkum að kona sem er að öðl- ast vitund um undirokun sína verður oft að berjast gegn hugmyndum eiginmanns síns. Af þessum sökum hættir henni til að líta á karlmanninn sem óvin sinn eða kúgara, sem er rangt. Karlmaðurinn getur verið þræll borgaralegra hugmynda sem beinast í raun gegn báðum kynjum. Á sama hátt og fjölskyldan hefur til- hneigingu til að viðhalda ríkjandi hug- myndafræði, hneigist hún einnig til að viðhalda þeirri eignaskiptingu sem fyrir er. Hver sá sem fæðist inn í þennan heim er um langan eða skamman tíma háður þeim skilyrðum sem fjölskylda hans býr við. Hann fæðist í ákveðna þjóðfélagsstétt, í örbirgð, velsæld eða eitthvað þar á milli. Þetta hlutverk fjölskyldunnar að bera algjöra ábyrgð á uppeldi nýrra þjóðfélags- þegna í efnahagslegu og félagslegu tilliti viðheldur hlutverkaskiptingu kynjanna, viðheldur karlveldi og hneppir konuna í fjötra. Það gegnsýrir öll samskipti fjöl- skyldumeðlima. Þau byggjast ekki á gagn- kvæmri ást og virðingu eða sjálfsögðum rétti hvers og eins til að vera mann- eskja. í raun grundvallast þau á sameiginr- legum efnahag og á eignarrétti karlmanns yfir konu og börnum, en það hindrar öll heilbrigð og eðlileg samskipti fólks innan fjölskyldunnar. Hverra hagsmunir? Nú mætti eflaust spyrja þeirrar spurn- ingar af hverju fólk sættir sig við þessa fjötraí Hver á hagsmuna að gæta í því að ábyrgð á komandi kynslóð er varpað yfir á herðar einstaklinga? Þar ræður gróðasjónarmið kapítalismans ferðinni. Sníkjudýr þjóðfélags okkar reyna að sölsa undir sig sem mestan gróða undir yfirskini frelsis einstaklingsins sem er frelsi burgeisanna til arðráns. Frelsi verkalýðsins felst í því að geta selt vinnuafl sitt á "frjálsum" vinnu- markaði og valið einn arðræningjann fremur en annan. Ríkjandi stétt reynir þannig að koma í veg fyrir allar ráðstafanir sem gætu skert gróða hennar. öll félagsleg þjónusta, allt sem heitir samfélagsleg ábyrgð er þyrnir í augum gróðaaflanna. Kúgun kvenna í elnkalífi og opinberu lífi er viðhaldið af hugmyndafræði ríkj- andi stéttar. Það er borgarastéttin sem á hagsmuna að gæta í því sambandi. Með þessu móti firrir hún sig samfélagslegri ábyrgð og um leið sér sjálft kjarnafjölskyldu- formið um að miðla bæði sálfræðilegri og félagslegri kúgun frá kynslóð til kynslóð- ar. Borgarastéttin á líka hagsmuna að gæta í því að ala á sundrungu launafólks vegna kynferðis, vegna litarháttar, vegna þjóðernis. Borgaralegir femínistar neita því að f jölskyldan sem stofnun í kapítalísku san>- félagi sé undirrót kúgunar kvenna og afnám þess félagslega hlutverks sem hún gegnir sé nauðsynlegt. Þess vegna er barátta þeirra ekki raunveruleg kvenfrelsisbarátta. Borgaralegir femínistar skilja ekki hið raunverulega eðli kvennakúgunar. Þeim er gjarnt að trúa því að konur geti leyst vandamál sín á einstaklingsbundinn hátt. Það er mótsagnakennt eðli kapítalism- ans sem gerir það að verkum að aukin tæknivæðing, aukin þörf á konum á vinnu-

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.