Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 4

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 4
1. maí 1978 eru til pláss fyrir 10$ reykvískra barna á dagheimilum, og síðan geta 20$ þeirra til viðbótar fengið pláss á leikskólum part úr degi. Nú vinnur mikill meiri hluti for- eidra barna á þessum aldri utan heimilis, - hvar er hinum 70$ búinn staður og hvað eru foreldrar þeirra að hugsa eiginlega? Dagheimilin eru eingöngu fyrir einstæðar mæður og stúdenta og - NB það er yfirlýst stefna borgarstjórnarmeirihlutans hér í bæ að ekki skuli byggð dagheimili fyrir aðra. Pláss þessi eru að auki rándýr og langt fyrir ofan peningaráð þeirra hópa, sem hér um ræðir. Skólabörnin glatast og gleymast þó fyrst fyrir alvöru, þau eru á tætingi út um allar trissur vegna sundurslitins skóladags, og afdrepin ekki á hverju strái og sjaldnast í skjóli fullorðinna. Skólarnir lokast á hæla þeirra þegar skóladeginum lýkur og"auka- tímarnir" taka við. Skóladagheimili rúma einungis um 1$ skólabarna. Þannig er ástandið jafnvel þótt margbúið sé að benda á að börn, sem dvalið hafa á dagheimilum eru mun betur í stakk búin til að aðlagast skólastarfi og félögum. Og jafrt- vel þótt allir viti að þróuninni verður ekki snúið við, einangrun kvenna inni á heimilum er rofin, og þaar loka sig ekki aftur inni með bönnum sínum af fúsum qg frjálsum vilja. Mæðrauppeldi í kjarnafjölskyldu er á góðri leið með að lenda á sorphaugi sögunnar hjá Napóleon og risaeðlunum. Börn millibils- ástandsins, börn dagmömmu, götunnar og lyklanna blasa við, - er það þetta sem við viljum? BAKNAIIEIMILI, KYLTINtíAll illl POKF Af hverju rísa foreldrar ekki upp og láta óskir sínar í ljós? ER þeim alveg sama? Hafa þeir enga skoðun á því hvað börnum þeirra er fyrir bestu? ER tímaskortur og vinnuálag ástæðan fyrir því að þeir beita sér ekki? Eða trúa foreldrar því enn að það sé óhollt að setja börnin á barnaheimili? Gægist kannski fram innræting foreldranna sjálfra frá foreldrahúsum, að samhjálp og félagsleg lausn á vandamáli sé af hinu illa? Líta kannski foreldrarnir sjálfir á börn sem að- skotadýr, sem þarf að reyna að bjargast frá og koma í geymslu meðan þeir sjálfir brauðstrita eða "vinna sér til upplyftingar?" Gleymdist kannski í skólagöngu og uppeldi þessara foreldra að innræta þeim ábyrga afstöðu og áhuga á barnauppeldi? Nema ennú einu sinni sé veri ð að spila á sektarkennd mæðranna - þær vilji ekki geia úr þessu neitt opinbert vandamál, allir viti jú hvernig mæður þær eru, þessar konur sem fara út að vinna, skilja börnin eftir í reiðileysi og heimta svo kannsk barnaheimili í ofanálag? Fólk bregst við þessu aðstöðuleysi með því að eignast bara fasrri börn, en slíkt endar í vinnuaflsskorti, sem leiðari Morgunblaðsin hefur nú þegar úthellt tárum yfir. Foreldra: leysa svo sín tímabundnu vandræði með prívat- reddingum hjá dagmömmum, ömmum og barnapíum. Það er kominn tími til að foreldrar og stjóri völd láti sér skiljast að barnaheimili eru hvorki lúxus né óþarfi. Þau eru sjálfsögð krafa hvers foreldris, sem vill barni sínu vel og hefur einhverja sjálfsvirðihgu, metnai og sjálfsgagnrýni sem uppalandi. öll höfum við okkar vankanta sem uppalendur, ef ekki andlega, þá efnalega, sem sérþjálfaðir upp- alendur og vel búin dagheimili geta bætt úr. Markmið barnaheimila Markmiðið með barnaheimilum, hvort ,sem eru dagheimili leikskólar eða skóladagheimili, ætti að vera að þroska barnssálina vits- munalega, tilfinningalega og félagslega. Að þessu markmiði þyrfti að vinna skipu- lega, en ekki láta tilviljun ráða um útkom- una af dvöl barnanna á þessum stofnunum.

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.