Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 17

Forvitin rauð - 01.05.1978, Blaðsíða 17
__________________________________________ 17 óvinir alþýdunnar...______________________ niður sjálfstætt framtak verkafólks í bar- áttu af ótta við að það muni ógna hagsmunum hennar. Allri ákvarðanatekt er samviskusam- lega haldið innan forystuliðsins, og ekki er einu sinni haft fyrir því að halda fé- lagsfundi nema þegar þarf að samþykkja eitt- hvað, svona formsins vegna. Hver er svo afleiðingin? Jú, hinum al- menna félagsmanni finnst baráttan sér óvið- komandi og jafnvel tilgangslaus. Hann er opinn fyrir áróðri íhaldsins gegn allri bar- áttu og fyrir því að verkalýðshreyfingin geti aldrei neitt. Allskyns svikarar og stéttasamvinnumenn tróna í æðstu embættum verkalýðshreyfingarinnar, og þeir fáu sem eru meðvitaðir um nauðsyn baráttunnar og að eitthvað sé haagt að gera, eru sem hróp- andinn í eyðimörkinni. Stéttasamvinnan og undansláttur á öllum sviðum hefur unnið verkalýðnum ómælt tjón. Baráttugleði og stéttarvitund eru í algeru lágmarki og afleiðingarnar láta ekki á sér standa. Fyrir nú utan það að þetta hefur rutt stéttsvikurum framabrautina innan verkalýðshreyfingarinnar hefur þetta valdið síversnandi lífskjörum almennings, auknu vinnuálagi og minnkandi kaupmætti. ÞÓ ber að geta þess að síðustu tímar eru aldrei þessu vant ekki verstir. Nú virðist baráttusinnum hafa vaxið fiskur um hrygg, svo að afstaða þeirra er greinilega farin að segja til sín í starfi og stefnu verka- lýðshreyfingarinnar. Þar má nefna sem dæmi Nýja hreyfingu og framboðið í Dagsbrún. Fólk er farið að gefa verkalýðsfélögunum meiri gaum en áður, og það er nauðsynlegt að styrkja þessa viðleitni eins og kostur er. Tvöfalt meiri kúgun Mörg verkakvennafélög hafa staðið sig illa í baráttunni og forysta þeirra hefur sýnt sig í því að vera algerlega óhæf. Ekki er það þó vegna þess að konur séu almennt séð lélegri baráttumenn en karlar. En kúgun þeirra er tvöfalt meiri, þær vinna tvöfald- an vinnudag og hafa því litla reynslu og lítinn tíma til félagsstarfa. En ástandið er orðið alveg óbaarilegt og við svo búið má ekki standa. Við konurnar verðum að rétta úr kútnum og gefa okkur tíma til að berjast fyrir okkar sjálfsögðu mannréttindum og fyrir endurreisn verkalýðsfélaganna úr þeirri laagð sem þau eru nú í. Verkafólk, tökum höndum saman gegn stéttasamvinnu, það sem gildir er: STÉTT GEGN STÉTT.' 18.1.1978, Guðrún Helgadóttir

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.