Forvitin rauð - 01.05.1978, Síða 6
6
BAKMH..
Lensd starfsdagsins
Ef vel á að vera þurfa barnaheimilin að
vera opin allan sólarhringinn. En hvers
vegna? Við viljum að foreldrar hafi tæki-
færi til að taka þátt í felagsstörfum, sem
oftast fara fram eftir vinnutíma, þ.e.a.s.
á kvöldin. Þá verðum við að finna einhvern
stað fyrir börnin á meðan, sem þau þekkja vel
og liggja því dagheimilin beint við. Ekki
viljum við að börnin séu á sífelldum þeyt-
ingi hingað og þangað milli ókunnugra. Til
þess að þetta sé mögulegt verðum við að
opna barnaheimilin meira en nú er.
í víðara samhengi
Líta verður á dagvistunarmálin í víðtæku
þjóðfélagslegu samhengi. Þau snerta vanda
foreldra og barna almennt.
Samfara því sem við leggjum áherslu á að
barnaheimili séu sjálfsögð réttindi allra
barna, þá verðum við að benda á að þetta
mál tengist öðrum þáttum í umhverfi barns-
ins. Vellíðan barna er að langmestu leyti k
háð aðstæðum foreldra, t.d. vinnutíma '
þeirra, þess vegna er heildarskipulagning
vinnudagsins nauðsynleg og hann styttur og
lagaður að þörfum barnanna.
Við höfum lagt áherslu á að Xitið sé á
dagvistun barna sem sjálfsagðan hlut, með
hliðsjón af því verður skólagangan að
taka við sem eðlilegt framhald af dvöl
barnsins á dagheimili. Það er staðreynd
nú, að þau fáu börn sem dvalið hafa á dag-
heimilum, fást við sömu verkefnin á fyrsta
skólaárinu og þau höfðu áður fengist við á
dagheimilinu. Þetta veldur námsleiða hjá
börnum, sem getur haft afdrifaríkar af-
leiðingar.
Við berjumst gegn fordómum sem ríkja í hugum
fólks gagnvart barnaheimilum. Við viljum
feykja burt úreltum hugmyndum um barna-
uppeldi. Við viljum að samfélagið í heild
axli ábyrgð á uppeldi barna og jafnframt
berjumst við fyrir viðurkenningu á sjálf-
sögðum mannréttindum.
VIÐ BERJUMST PYRIR:
GÓÐUM OG ÓKEYPIS BARNAHEIMILUM
FYRIR ÖLL BÖRN? JAFNT A' FORSKÓLA-
OG SKÓLAALDRI
SAMFELLDUM SKÓLADEGI OG MÖTUNEYTUM
í SKÓLUM
Dagvistarhópur rauðsokka