Forvitin rauð - 01.05.1978, Page 8
1
mótvaagi við baslið. Og þá býðst kaninn.
Sp.: Og hvað býður kaninn?
Sv.: Oft og iðulega býður hann hjónaband,
hús og bíl í U.S.A. og ég held að flestar
konurnar láti sig dreyma um það að giftast
til Ameríku. Ein var tvisvar sinnum búin
að búa sig undir að giftast og flytja í
sjálft "Gósenlandið" (þar sem sígaretturnar
brennivínið, dósamaturinn og nautakjötið
vex á trjánum) en í bæði skiptin stungu
brúðgumarnir af - enda giftir fyrir. En
hún gafst ekki upp og í þriðja skiptið
gekk þetta og hún er núna flutt til fyrir-
heitna landsins - öllum og sjálfsagt mest
sjálfri sér - til mikillar furðu.
Kjöt í stað peninga
Sp.: Heldurðu að þessar konur fái peninga
hjá könunum?
Sv.: Nei. En kannski eitthvað annað - tó-
bak, vín,kjöt og aðrar matvörur.
p
Sp.: Kjöt og matvörur;
Sv.: Já. Matur er svo ódýr á Vellinum og
það er nú ekkert smámál á íslandi 1 dag að
fá ódýran mat - sérstaklega fyrir fátækar
konur með barnahóp.
Sp.: Hvað með sjálfa þig. Xiggur þú
"gjafir"?
Sv.: Nei. Ég hef ekki geð í mér til þess.
Kanar eru svo hryllilega meðvitaðir um
verðgildi allra hluta - þeir hugsa í dollurum.
Peir eru örlátir, en ég þori að veðja að
þegar þeir hætta að vera með íslenakri
konu gætu þeir gert grein fyrir því uppá
sent hve mikið hún hefur kostað þá. Þegar
maður hefur heyrt í þeim sönginn: "Hvernig
finnst þér þetta? - Þetta kostaði 3$ og
50 sent - eða þetta, þetta kostaði ...
o.s.frv. þá kærir maður sig ekki um gjafir
sem kosta ... o.s.frv.
Sp.: Hvernig geturðu umgengist þennan mann-
skap? (Hér missti spjxjandi stjórn á hlut-
leysis-andliti sínu - innsk.)
Sv.: Ég umgengst þá ekki - ég sef hjá þeim.
Sp.: Geturðu ekki sofið hjá íslenskum
körlum? (Spyrjandi verður enn ómálefnalegri
- innsk.)
Sv.: Hvar á ég að ná í íslenska karla?
Sp.: Geturðu ekki bara farið á ball?
Sv.: íslenskir karlmenn eru yfirleitt svo
utúrdrukknir á böllum að þeir gagna ekki til
nokkurs hlutar. Svo eru þeir annaíhvort
10 árum eldri eða 10 árum yngri en ég - og
ég nenni ekki að eltast við þá. Kanar eru
þægileg viðhöld - þeir koma þegar þeir eiga
frí - sem er ekki oft - og eru ekki alltaf
að ónáða mann. Þeir hringja sjaldan því
að það er svo dýrt að hringja ofan af Velli
vegna þess að það er flokkað sem langlínu-
símtöl.
Sp.: En nu er ekki a þer að skilja að þu
sért yfir þig hrifin af flestum þeim könun^^j
sem þú hefur kynnst?
Sv.: Nei. Ég hef svo sannarlega kynnst
hundleiðinlegum og ógeðfelldum könum - og 1^
íslendingum líka. Ég þoli hins vegar ekki
þessa "anti-kana-brjálæðinga" og þú mátt
hafa það eftir mér sem ég sagði einu sinni
við einn svona kanahatara sem var að "móral-
ísera" yfir mér að - "mér er alveg sama
hvaða þjóðerni er fast við hinn endann á
tittlingnum".
Þeir eru ekki hér til að verja landið
Sp.: Ertu með eða á móti herstöðvunum?
Sv.: Ég er ekkert hrifin af erlendri her-
setu á íslandi. Mér finnst hins vegar að
U.S.A., NATO og herinn séu eitt en þessir
amerísku strákar sem hérna eru séu annað.
Þegar nýir hermenn koma hingað eru haldin
nokkurs konar námskeið fyrir þá sem heita
"briefings" - eða e-ð svoleiðis. Þar fá
þeir upplýsingar um land og þjóð og þar er
þeim sagt að ríkisstjórnin og þjóðin séu
upp til hópa "communists" sem vilji ekki
hafa þá hérna. Þeim er ráðlagt að blanda
sem minnst geði við þessa fjandsamlegu
íbúa landsins, og hvað heldurðu ? 1 þorska-
stríðinu var hengd upp auglýsing á Vellinum
þar sem kanarnir voru varaðir við því að
*„^^^Bara út af vallarsvæðinu því að þá ættu þeir
u hasttu að ráðist yrði á þá.
Sp.: Byggðu þeir á einhverri reynslu í
þessu?
Sv.: Nei, nei. Enginn kannaðist við það.
Ég talaði við heilmarga stráka um afstöðu
NATÓ í þessu máli og það var aðeins einn
einasti maður sem var á því að NATÓ hefðl
átt að gera eitthvað í málinu. Hinum fannst
hreinlega að þetta kaani þeim ekkert við.
Sp.: Þeir ganga þá ekki með neinar grillur
um að þeir séu hér til að verja landið?
Sv.: Nei, það held ég alls ekki - ég hef
alla vega ekkert orðið vör við það.
Sp.: Hvað halda þeir þá að þeir séu að
gera hérna?
Sv.: Ég held að þeir hafi engar meiningar
um það - þeir gera bara það sem Uncle Sam
segir þeim.
Miðaldra konur - ekki barnungar
Sp.: Hvað segir þú um þá ásókn íslenskra
kvenna á Völlinn, sem stundum hefur verið
talað um?
Sv.: Það er nokkur hópur kvenna sem sækir
mjög fast á Völlinn. Stór.hluti þeirra er
miðaldra konur, kannski 35~50 ára, sumar
drekka frá sér ráð og rænu og eru misnotaðar
hryllilega - enda virðast þær vera að sækjast
eftir því. Ein gerlr þetta nánast að stað-