Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 10

Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 10
í greininni sem hér fer á eftir ætla ég að reyna að forðast að ræða öll þau býsn sem skrifuð hafa verið um leikritið Stalín er ekki hér. í Þjóðviljanum hefur birst hver greinin annarri verri um þetta leikrit og útúr þeim stofni hafa síðan vaxið aðrar greinar enn tötralegri þar sem menn hafa verið að bítast um það hvaða kynslóð væri best. Af skiljan- legum orsökum hefur ekki fengist úr því skorið. Þessar blaðadeilur eru helst athyglisverðar fyrir að vera beint framhald af ágreiningi Þórðar og Huldu í leikritinu án þess að þeir sem skrifa virðist gera sér nokkra grein fyrir því. Karlkyns sósíalistar á miðjum aldri hafa brugðist mjög illa við öllum dylgjum um að Þórður sé ekki fullkominn. Samkvæmt þeirra kokkabókum er hann ekki annað en venjulegt afskiptasamt foreldri og fáránlegt að ásaka hann fyrir það. Þetta sjónarmið er auðvitað að mörgu leyti eðlilegt. Er ekki von að mennirnir spyrji: til hvers er eiginlega ætlast? Hvað getur Þórður gert - annað en að vera ábyrgur heimilisfaðir samkvæmt bestu samvisku? Þórður og baráttan Þórður hefur reynst verða mikið aðalatriði í hugum margra þeirra sem hafa séð og lesið þetta leikrit. Þetta er síst að undra því að hann og Hulda eru aðalpersónur og hann þó að mörgu leyti fyrirferðar- meiri en hún. Hvað sem því líður er ljóst að verk- ið verður hreint ekki skilið án þess að gera sér góða grein fyrir Þórði. Þórður hefur greinilega barist bæði langri og harðri baráttu gegn auðvaldinu. Hann hefur tekið þátt í merkisatburðum eins og Gúttó - slagnum (bls.68); hluti af launum hans rennur stöðugt til flokksins hvað sem tautar og raular (bls.ll); og hann þverskallast ótrúlega lengi við að leysa vandamál sín með einstaklingslausnum. Hann telur greinilega að leiðin að bættri tilveru liggi gegnum félagslegt starf í skipu- lögðum sósíalískum flokki en ekki í gegnum .HWMA E>R RRST GREIN UM LEIKRITIÐ ,STALÍN ER EKKI HÉR' kaup á drasli til að hreiðra sem best um sig í auðvaldsþjóðfélaginu. Þórður er þvl eins og gefur að skilja mjög andsnúinn eignarréttinum Það er hins vegar ágreiningsefni hvort hann er það í orði og á borði. Um það eru þau Hulda ósammála og greinar- höfundar blaðanna líka. Mér virðisthins vegar að vésteinn hafi gengið svo vel frá þessu í leikriti sínu að um þetta þurfi alls ekki að deila. Á opinberum vettvangi er ÞÓrður tvímælalaust samkvæmur sjálfum sér og hinn heiðarlegasti kommúnisti. Leikritið gerist hins vegar á vettvangi einkalífsins. Þessum tveim sviðum - einkalífi og opinberu lífi - heldur borgarastéttin stranglega aðskildum. Það sem éerist innan vébanda fjölskyldunnar er einkamál og svoleiðis á maður ekki að tala um. Leikrit Vésteins er í rauninni ljómandi góð greining á því hve risavaxin sú vitleysa er að skilja einkalífið frá annarri pólitík. Faðmur fiölskyldunnar í "fjölskyldu Þórðar" eru þrjú uppkomin börn hans og látinnar eiginkonu; einn tengdasonur og svo Munda, síðari kona Þórð- ar. Munda á einnig börn frá fyrra hjónabandi en þau sjást aldrei á "heimili Þórðar". Þórður er það sem kallað er húsbóndi á sínu heimili. Sem slíkur er hann mjög dæmigerður. Hann sýnir aldrei neina hörku fram yfir það sem venjulegt má teljast og er heimilsfaðir samkvæmt bestu samvisku. Þess vegna verður ekkert af hversdagslegum óförum þessa fólks rakið til skapgerðar hans. Það sem máli skiptir er að þessi mikli bar- áttumaður gegn eignarréttinum er eins og allir ábyrgir heimilisfeður fyrr og síðar. Hann á fjölskylduna og hún skiptir hann fyrst og fremst máli sem eign.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.