Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 22

Forvitin rauð - 01.05.1978, Qupperneq 22
22 Ég sé um allt sem viðkemur krökkunum; Hann viðurkennir að þetta séu líka hans börn - en ég á að sjá um þau. Hann sefur, sefur og les hasarblöð. Þó finnst mér þetta ágætt eins og það er núna. Það er gott meðan hann Xiggur og sefur milli þess sem hann er í vinnunni - þá veit ég a.m.k. hvar hann er. En ef ég eignaðist eitt barn í viðbót, þá veit ég ekki hvernig faari. Þegar hann fer á túr verðum við að neita okkur um allt.Verðum að spara hvern eyri. Ég kaupi aldrei neitt á sjálfa mig og reyni að spara annað til að geta borgað ljós, síma, húsaleigu. Ég reikna út hvað við þurfum og sé hve mikið verður afgangs. Hann eyðir miklum peningum þegar hann drekkur. A þvl tímabili geta öll mánaðarlaun hans horfið. Þá verðum við að lifa af mínum lúsarlaunum. Stundum kemur fyrir að hann fær lánaða peninga - og þá verð ég að endur— greiða þá. Núna er hann búinn að vinna heil- an mánuð og ástandið er sæmilegt. Þar áður var hann frá vinnu í hálft ár. Venjulega stendur hann sig fjóra mánuði milli túra. Hann hefur oft farið til læknis. Þrisvar sinnum hefur hann farið í afvötnun. Börnin taka þetta ekki mjög nærri sér - þau eru vön þessu. Þau spyrja aldrei hvort hann sé heima eða ekki. Þegar hann er á því sést hann oft ekki dögum saman. Þegar hann kemur heim verð- ur auðvitað rifrildi. Mér leiðist þetta, ég verð reið og oft hrædd um hann. Þegar hann er fullur getur hann skammast og varið sig. Annars segir hann varla orð. Hann er hræði- lega feiminn. Hann drekkur sjálfsagt í sig kjark. Ég hef oft hugsað um skilnað en ekki lát- ið verða af þvl. Vegna þess að ég vorkenni honum og vegna þess að mér þykir vænt um hann. Ég hugsa sem svo, kannski skánar þetta, Nú er ég orðin vön þessu og hugsa ekki oft um það. Okkur líður ágætlega þegar hann er heima og vinnur. Þá höfum við tvöföld laun til að lifa af, og þá hef ég einhvern til að taka þátt í áhyggjum af börnunum með mér. Annars þarf ég að gera allt ein. Það er erfitt að eiga svona mörg börn - ég vil ekki eignast fleiri. Ég vildi heldur ekki eignast svona mörg. En slíkt getur mað- ur ekki alltaf ákveðið sjálfur. Nú tek ég pilluna, svo nú eignast ég ekki fleiri. Og mér líður vel, það er hræðilegt að lifa í óttanum við að verða ófrísk. Þá þorir maður varla að hátta á kvöldin. Maður hugsar:"Ef hann vill nú fá það í kvöld, þá verð ég kannski ólétt." Maður á auðvitað ekki að gera það ef mann langar ekki til þess, en maður gerir það samt. Það er betra þannig - þá fær hann það sem hann vill, og á eftir er friður og ró. Nú er þetta vandamál úr sögunni. Að vísu skilur hann mig ekki þegar ég segist vera þreytt og vilji ekki standa í því - enda sefur hann helmingi meira en ég. í þau tvö ár sem við höfum búið hér hef ég alls ekkert farið. Ég á enga fjölskyldu hér og enga vini. Það eru mörg ár síðan ég hef farið á ball. Ég hef ekki þrek til að fara út eða eignast vini - ég hef nóg með mig. Ég hef aldrei farið í frí síðan ég eigr>- aðist börnin. Við höfum aldrei haft efni á að fara í sumarfrí. Ég hef sagt við manninn minn:"Hugsa sér ef ég gæti gert eins og þú, legið, sofið og lesið í heilan mánuð ... þvílík draumaveröldr" Gleymt öllum erjum og áhyggjum - bara hvílt sig. Þá myndi ég sjálf- sagt ekki hugsa til þess hvar ég væri stödd. Hvaða máli skiptir hvað staðurinn heitir, ef maður fær frið. Ég myndi lesa vikublöðin. Ekki vegna þess að fólkið 1 þeim sé eitt- hvað líkt mér. Nei, en mig dreymir meðan ég les, dreymir að ég sé eins og þær sem blöðin skrifa um. Svona dreymir sjálfsagt alla, heldurðu það ekki? Að vera ungur og fallegur, eiga eigin bíl og keyra hvert á land sem er. Ég hef aldrei verið pólitísk - og ég skil ekki mikið í pólitlk. Ég fer einstaka sinnum á fundi í stéttar- félaginu þegar ég hef orku til þess. Pólitík. Skiptir hún einhverju máli? Hjá okkur verður ástandið bara verra og verra. Launin min hafa lækkað um loo skr. á mánuði, allt annað hækkar. Hvernig endar þetta? Ég þori ekki að hugsa svo langt fram í tímann.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.