Morgunblaðið - 22.01.1946, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 22. jan. 1946
ÖVIORGUNBLAÐIÐ
5
Ölafur Thors 20 ára þingmaður
í ÞESSUM mánuði eru 20 ár
liðin síðan Ólafur Thors var
kjörinn þingmaður fyrir Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. En í
desember 1925 sagði Ágúst
Flygenring af sjer þingmensku
sakir vanheilsu. Höfðu þeir
verið þingmenn kjördæmisins
hane og Björn Kristjánsson fv.
bankastjóri. Þá var Gullbringu-
og Kjósarsýsla með Hafnarfirði,
tvímenningskjördæmi.
Sjálfstæðismenn í kjördæm-
inu ákváðu fyrir nokkru, að
minnast þessa þingmensku-af-
mælis Ólafs Thors á viðeigandi
og eftirminnilegan hátt. Fóru
þeir fram á það við hann fyrir
nokkru að hann gæfi kost á því,
að af honum yrði gert brjóst-
líkan, er yrði gjöf kjósendanna
til hans.
Á laugardaginn var, en það
var afmælisdagur Ólafs gengu
um 60 fulltrúar Sjálfstæðis-
manna úr öllum hreppum kjör-
dæmisins á hans fund í ráð-
herrabústaðnum. En forsætis-
ráðherrahjónin slógu upp veislu
fyrir komumenn. Hafði hin fjöl
menna sendinefnd áður tilkynt
komu sína.
Ólafur Einarsson útgerðar-
maður í Keflavík hafði orð fyr-
ir komumönnum er sest var að
foorðum. Hann mælti á þessa
leið:
Herra forsætisráðherra.
Um leið og jeg leyfi mjer,
fyrir hönd okkar komumanna,
að þakka vinsamlegar móttök-
ur þínar og forsætisráð-
herrafrúarinnar í kvöld,
og alla gestrisni ykkar, vildi jeg
mega bera fram árnaðaróskir
okkar kjósenda þinna, vegna
20 ára þingmensku þinnar í,
kjördæmi okkar, Gullbringu-
og Kjósarsýslu.
Það er ekki á nokkurn hátt
eetlun mín, að reyna að rekja
þingsögu Ólafs Tho'rs. Það er
vitanlegt, að sú saga er að ýmsu
leyti jafnframt almenn stjórn-
málasaga þessa tímabil, því að
um mörg ár þessa tíma hefir
Ölafur Thors verið forustu-
maður öflugasta stjórnmála-
flokksins í landinu, og ráðherra,
eem markað hefir störf og
Stefnu flokksins og allrar þjóð-
arinnar.
En á þessu árabili hafa gerst
ýmsir þeir atburðir, sem áhrifa-
ríkastir hafa orðið á þjóðarhag
Og þjóðarfrelsi á íslandi.
Þegar saga þessa fjölþætta
og frjósama tímabils verður
Skráð og metin, hvort sem er
stjórnmálasagan eða atvinnu-
Sagan, þá verður þáttur Ólafs
Thors í þeirri sögu mjög mikill
og merkur.
Sú saga er ekki mitt með-
færi, og varla tímabært enn að
rekja hana, mitt í orrahríðinni.
En það er okkur kjósendum
mikil ánægja, að okkar kjör-
dæmi skuli á þessum árum hafa
verið þingstaður þess manns,
sem verið hefir forustumaður í
Flokksmenn í Gull-
bringu- og Kjósar-
sýslu heiðra hann -
mörgum helstu framfaramálum
tímabilsins.
Því er ekki að leyna, að styr
hefir oft staðið um kosningar,
eins og eðlilegt er í lýðræðis-
landi, og skal það ekki harmað
af okkar hendi, sem átt höfum
hlut að kosningu Ólafs Thors
á undanförnum árum.
Sú barátta hefir verið af
höndum reidd af glöðu hjarta
og góðri trú, og sá bjarti bar-
dagahugur mun enn verða lagð
ur fram ótrauðlega, þegar á
þarf að halda.
Fylgi Ólafs Thors er að vísu
svo traust og rócgróið í kjör-
dæminu, að því verður ekki
haggað. En það er rjettur og
skylda kjósendanna í lýðræð-
islandi að fylgjast, sem best
með því, hverju fram vindur
og halda sterkan vörð um hug-
sjónir sínar og hagsmuni í senn,
og þá jafnfrámt um þá forustu-
menn, sem þeir vilja hafa til
fyrirsvars fyrir þær hugsjónir
og þá hagsmuni.
Við kjósendur getum ekki
kosið á betri fulltrúa en Ólaf
Thors.
Það er þó sannast að segja,
að kjördæmi okkar hefir frá
upphafi hins endurreista Al-
þingis að jafnaði haft heill til
þegs að hafa ágæta menn á
þingi.
Fyrsti þingmaður Gullbringu
og Kjósarsýslu 1845, var Þor-
grímur Tómasson, skólaráðs-
maður, á BessastöSum, faðir
Gríms Thomsens skálds. Meðal
annara þingmanna okkar hafa
verið ýmsir ágætismenn í
andlegu lífi og athafnalífi
landsins, — svo sem Jens Sig-
urðsson rektor, bróðir Jóns
forseta, Grímur Thomsen skáld.
Prestahöfðingjarnir sr. Þórar-
inn í Görðum, sjera Þorkell á
Reynivöllum, _ Helgi lektor
Daníelsson og sjera Jens
Pálsson. Pjetur Guðjohnsen
tónlistarfrömuður og Björn
Kristjánsson, og síðast en ekki
síst nefni jeg tvo ágætismenn
úr hópi útgerðarmanna hjer-
aðsins, Ágúst Flygenring og
Einar Þorgilsson.
Með lögum frá 7. maí 1928
var Gullbringu- og Kjósarsýslu
skift í tvö kjördæmi, þannig,
að Hafnarfjörður, sem áður
fylgdi sýslunum, varð sjerstakt
kjördæmi. Áður voru sýslurnar
báðar að Hafnarfirði meðtöld-
um tvímenningskjördæmi. Allt
frá þeim tíma hefir Ólafur
Thors einn verið þingmaður
sýslanna.
Þess gerist ekki þörf, að jeg
reki hjer, í hópi kjósenda hans,
margháttuð störf hans fyrir
kjördæmið. En drep þó aðeins
á, alhliða eflingu sjávarútvegs-
ins, vegabætur, lendingarbætur,
hafnarbætur í Keflavík og und-
irbúning landshafnar í Njarð-
víkum og Keflavík, og síðast
en ekki síst rafmagnsveituna,
sem nú er verið að leggja um
öll Suðurnes.
Við kjósendur Ólafs Thors
þökkum honum ekki einungis
störf hans fyrir kjördæmið,
þótt okkur sjeu þau kærkomin
og hugstæð, heldur þökkum við
honum ekki síður störf hans í
þágu ajþjóðar, störf hans að al-
mennum stjórnmálum íslands,
Sjálfstæðismálum og atvinnu-
málum. Við þökkum djarflegar,
rökvísar og hressilegar ræður
hans, einbeitta og dugmikla
forustu og framkvæmdir.
Við kjósendur Ólafs Thors
höfum haft hug á því, að sýna
honum einhvern vott virðingar
okkar og þakklætis fyrir þing-
mengku hans og þjóðmálastörf
nú, þegar hann hefir verið þing
maður okkar í 20 ár.
Við höfum þessvegna fengið
einn af listamönnum þjóðar-
innar til að gera brjóstlíkan af
honum, og vildum við mega
færa honum þá mynd að gjöf.
Því miður hefir forsætis-
ráðhferranum ekki unnist tími
til að sitja fyrir hjá myndhöggv
aranum, svo að myndin er ekki
tilbúin, eins og við hefðum helst
kosið. Erí jeg vona, að þess verði
ekki langt að bíða að svo verði.
Þessi mynd á frá okkar
hendi að vera árnaðarósk til
Ólafs Thors og vottur vináttu
okkar, virðingar og þakklætis
fyrir þingmensku hans cg
stjórnmálaforustu.
Við vonum, að hún megi
einnig verða til þess að geyma
lengi í formi góðs listaverks
mynd, eins af öndvegismönn-
um ísienskrar stjórnmálasögu.
Jeg bið þig, Ólafur Thors,
forsætisráðherra, að leyfa lista-
manninum að gera þessa mynd
af þjer, og þiggja hana af okk-
ur kjósendum þínum, með þakk
læti fyrir liðin ár, og með ósk-
um um heill og heiður á kom-
andi árum.
★
Síðan fluttu margir gestanna
ræður, bæði þeir eldri og yngri,
fyrir minni forsætisráðherra-
hjónanna, og mintust stjórn-
málstarfs Ólafs Thors, fyrir
kjördæmið og þjóðina í heild
sinni og ánægjulegrar viðkynn-
ingar við þau hjón bæði.
Áður en staðið var upp frá
borðum, þakkaði Ólafur Thors
ræðumönnum fyrir hin vinsam
legu ummæli og alla vináttu og
hlýhug í gárð hans og konu
hans fyr og síðar. Bað hann
gestkia að skila bestu kveðjum
Framh. á 12. síðu.
Sjúklingur sfrýkur
frá Kfeppi
UM VIKULOKIN strauk'
sjúklingur af geðveikrahæl-
inu á Kleppi ogj hefir ekki
enn náðst. Hann heitir Jón
Guðjónsson, Líkur benda þó
til að hann hafi verið austur
í Kömbum í fyrrinótt. Maður
nokkur er var á leið til
Reykjavíkur á vörubíl, mætti
manni er var á gangi í Kömb
um. Spurði bílstjórinn mann
þennan hvert hann væri að
fara og sagðist maðurinn þá
alveg eins geta verið á leið
til Reykjavíkur. Tók bílstjór-
inn manninn uppí bíl sinn og
ók til bæjarins. Maðurinn bað
um að sjer yrði sleppt úr við
Rauðarárstíg og gerði bíl-
stjórinn svo. — Hann vissi
þá ekkert um hvarf sjúklings
ins, en tilkynnti lögreglunni
þetta samstundis og hann
frjetti það. — Eftir lýsingu
þeirri er bílstjórinn gaf á
manni þessum er talið að
hjer muni vera um að ræða
Jón Guðjónsson. En hann er
stór og þrekinn, með skollit-
að hár, í brúnum nankinsföt-
um og í gúmmístígvjelum og
berhöfðaður mun hann hafa
verið.
Skátar leituðu hans í gær
hjer í nágrenni bæjarins, allt
upp að Baldurshaga. — í dag
verður enn leitað og lagt af
stað strax og byrtir.
Staðsetning Menta-
skólans rædd í
bæjarrálíl
Á SÍÐASTA bæjarráðs-
fundi var lagt fram brjef frá
menntamálaráðuneytinu, dags.
17. þ. m., varðandi ákvörðun
um staðsetningu nýs mennta-
skólahúss í Reykjavík.
Bæjarráð samþykkir óskir
ráðuneytisins um að skólanum
verði ætlaður staður við Laug-
arnes, eftir nánari ákvörðun
um lóðarútvísun síðar, enda
verði samkomulag um afhend-
ingu lóðarinnar.
Borgarstjóri tekur fram, að
þótt hann telji rjett, að ríkis-
stjórnin ráði því, hvar skólan-
um er valinn staður, og vilji
því verða við málaleitun ráð-
herrans, þá telji hann misráðið
að flytja skólann þaðan, sem
hann er nú — og hinn nýja
stað óheppilegan.
Guðmundur Ásbjörnsson og
Jón A. Pjetursson telja þenna
stað (Laugarnes) óhentugan
fyrir skólann. Gunnar Thor-
oddsen tekur fram, að hann
kjósi helst, m. a. vegna sögu-
legra minninga, að Menntaskól
inn standi áfram á þeirri lóð,
þar sem hann hefir verið síð-
astliðin eitt hundrað ár.
MUNIÐ
útbreiðslu-
fund
Heimdallar
UNGIR SJÁLFSTÆÐISMENN!
Munið útbreiðslufund Ileim-
dailar, Fjelags ungra Sjálfstæð-
ismanna annað kvöid. Sendáð
inntökubeiðni fyrir fundinn í
skrifstofu flokksins, Thorvald-
sensstræti 2, sími 2339 ogj 3315.
Forsæfisráðherra
Persa segír af sjer
London í gærkveidi:
FOR SÆTISRÁÐHERR A
Persa, dr. Imrahim Hakimi,
hefir sagt af sjer. Lagði hann
lausnarbeiðni sína fyrir keis-
arann í morgun, og ljet svo
um mælt við það tækifæri,
að honum fyndist hann geta
rólegur dregið sig í hlje, nú
er vandamál þjóðar hans
væru komin í hendur hinna
sameinuðu þjóða, og að hann
vænti sjer alls góðs af með-
ferð örygejisráðsins á málefn-
um Persa. Sagði ráðherramj,
að sjer fyndist hið nýja
bandalag vera sjálfsagður
staður fyrir meðlimi þess, til
þess að leggja mál sín í gerð
og væri vonandi að brátt
yrði bundinn endir á það ó-
íremdarástand, sem ríkti í
Persíu. —
— Reuter.
Togarinn sfrandaði
þrisvar og björg-
ynarskipié einu 1
sinni
London í gærkveldi:
SÁ atburður gerðist í nótt
sem leið í innsiglingunni á
höfnina í Aberdeen í Skotlandi
að togari frá Grimsby strand-
aði. Komst hann þó á flot aft-
ur af eigin rammleik, og ætlaði
út úr höfninni, en strandaði
þá aftur og sat nú fastur. Veð
ur var vont. Dráttarskip kc*n.
nú á vettvang og tókst eftir
nokkrar atrennur að ná togar
anum út. — En er því var lok
ið, strandaði björgunarskipið
sjálft, og varð annað björgun
arskip að koma til skjalanna,
og náði það hinu út. En er það
hafði tekist, var togarinn
strandaður í þriðja sinn, nokk
uð fyrir utan innsiglinguna, og
nú svo illa, að björgunarbátar
urðu að taka skipshöfn hans,
sem var í hættu stödd. — L5k-
legt er talið að hægt verði þó
að ná togaranum út, er veður
skánar. — Reuter.
Sunnudagurinn 27. janúar skal
verða D-dagur Reykvíkinga