Morgunblaðið - 22.01.1946, Side 8
MOKOUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. jan. 1946
*
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar: Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: Ivar Guðmundsson .
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
* Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands,
kr. 12.00 utanlands.
1 lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Von andstæðinganna
ANDSTÆÐINGAR Sjálfstæðisflokksins eru alveg
búnir að gera það upp fyrir sjer, að Sjálfstæðismenn hafi
nóg lið í bænum, til þess að vinna glsésilegan sigur í kosn-
ingunum. Eina von andstæðinganna er því sú, að það geti
orðið erfitt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að koma á kjörstað
hinu fjölmenna liði, sem flokknum fylgir.
Andstæðingarnir hugsa sem svo: Nú er skammdegi og
því allra veðra von. Vont veður á kjördag getur dregið
mjög úr kjörsókn, og það bitnar á Sjálfstæðisflokknum,
vegna þess hve fjölment lið hans er. En auk þess er það
sigurvissa Sjálfstæðismanna, sem gæti haft þau áhrif, að
ýmsir flokksmenn ugguðu ekki eins að sjer. Þeir sætu
heima í þeirri von, að sigurinn væri Sjálfstæðisflokknum
vís, þótt þeir væru ekki að ómaka sig á kjörstað..
★
Góðir Sjálfstæðismenn og aðrir bæjarbúar, konur og
karlar, sem eruð ráðin í að kjósa framboðslista Sjálf-
stæðisflokksins, þið skuluð gera ykkur ljóst, að það er
hárrjett athugað hjá andstæðingunum, að eina von þeirra
til að sigra í kosningunum er hirðuleysi eða tómlæti Sjálf-
stæðismanna sjálfra.
Það er engum vafa undirorpið, að sá kjósendahópur í
bænum, sem fylgir Sjálfstæðisflokknum að málum, er
svo fjölmennur, að sigur flokksins í þessum kosningum
yrði stærri og glæsilegri en nokkru sinni áður, ef stuðn-
ingsmenn flokksins — allir með tölu — gerðu það, sem
andstæðingarnir eru að vona að þeir geri ekki, að mæta
á kjörstað og greiða atkvæði.
Það’er vissulega ástæða fyrir Sjálfstæðismenn og aðra
stuðningsmenn D-listans, að íhuga þetta í tæka tíð, því að
þetta er kjarni málsins.
★
Hví skyldu Sjálfstæðismenn láta þá von andstæðing-
anna rætast, að þeir sýni deyfð eða hirðuleysi við þessar
kosningar?
Þessar kosningar eru áreiðanlega einhverjar þær allra
þýðingarmestu kosningar, sem fram hafa farið hjer í
bænum. Þær hafa ekki aðeins þýðingu fyrir Reykjavíkur-
bæ, heldur einnig fyrir þróun stjórnmálanna í landinu
í heild.
Sjálfstæðisflokkurinn er stórstígasti umbótaflokkur
landsins. Hann beitti sjer fyrir myndun núverandi ríkis-
stjórnar, sem hefir hina stórvirku nýsköpun efst á stefnu-
skrá sinni. Hann hefir forystuna í þessari ríkisstjórn. Og
það var hann sem rjeði því, að til nýsköpunarinnar er
stofnað á grundvelli sjálfstæðisstefnunnar. Einkafram-
takið situr þaf hvarvetna í fyrirrúmi.
Reykjavík og sjálfstæðisstefnan hafa frá öndverðu ver-
ið tengd órjúfandi böndum. Gunnar Thoroddsen prófessor
tók rjettilega fram í sinni skörulegu ræðu s.i sunnudag,
að m"eð gjaldþroti hinnar dönsku einokunar varð fæðing
Reykjavíkur.
★
Nú koma andstæðingar Sjálfstæðisflokksins og heimta,
að Reykjavík verði ekki lengur bær hins frjálsa athafna-
lífs. Nú beri að leggja hömlur á einkaframtakið til at-
hafna og framkvæmda. Það á ekki framar að fást við út-
gerð. Þar á bærinn að taka við, undir leiðsögn manna eins
og Þórodds Siglfirðings, sem reynsluna hafa (sbr. Falkur-
útgerðin)(!)
Það var Skúli fógeti, sem lagði grundvöllinn að höf-
uðborg landsins, með því að brjóta hlekki einokunar og
kúgunar. Nú, nær 160 árujn síðar, kemur spyrðuband
þrenningarinnar, Alþýðu, Framsóknar og kommúnista og
heimtar að niður verði rifið það, sem Skúli bygði upp.
Heimtar að nýir fjötrar verði lagðir á athafnalífið í bæn-
um !
Það væri vissulega merkilegt fyrirbrigði, ef kjósendur
bæjarins — í frjálsri kosningu — legðu flokkum liðsinni
til slíkra aðgerða.
\Jiluerji áhripar:
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Kosningarnar.
AÐALUMRÆÐUEFNI manna
þessa dagana eru vafalaust
bæjarstjórnarkosningarnar. —
Það fer nú að styttast til
þeirra og á mánudaginn kem-
ur verða úrslitin kunn hjer í
Reykjavík. Udirbúningurinn er
mikill undir þessar kosningar
og hann hefir staðið lengi. —
Það.má segja að kosningaund-
irbúningurinn hafi byrjað fyr-
ir alvöru í septembermánuði og
síðan hefir ekki verið neitt lát
á skrifum um stjórnmál og
stjórnmálastefnur í blöðunum.
Hámarki mun kosningabar-
daginn ná núna í vikunni. Út-
varpsumræður eiga að fara
fram tvö kvöld í vikunni og
fundir hafa verið boðaðir í
samkomuhúsunum.
Það þykir velta á miklu að
þátttaka verði sem allra mest
í þessum kosningum sem öðr-
um. Því betri sem þáttakan
er þess meiri líkur eru til þess
að vilji fjöldans komi greinilega
í ljós og til þess er leikurinn
gerður, að vilji meiri hluta bæj
arbúa komi fram.
•
Veðráttan.
EKKI er laust við að menn
hafi áhyggjur út af veðrinu.
Hvernig verð'ur kosningaþátt-
takan ef veðrið verður eins og
þar var í gærmorgun. Hætta er
á að það verði margir, sem
ekki treysta sjer á kjörfund í
slíku veðri.
Stjórnmálaflokkarnir munu
hafa bíla til að flytja kjósend-
ur á kjörstað, en það er fyrst
og fremst ætlast til þess að
roskið fólk og aðrir sem eiga
bágt með gang, noti bílana. —
Það væri heldur ekki hægt að
anna því að aka öllum" til og
frá kjörstað.
En vonandi að veðrið verði
gott á sunnudaginn kemur. —
Það myndi koma í veg fyrir
margskonar erfiðleika og leið-
indi.
Annars hefir veðráttan verið
þannig undanfarið, að ekki er
gott að spá neinu fyrirfram.
•
Minning Skúla
fógeta.
GÍSLI HALLDÓRSSON verk
fræðingur skrifar mjer á þessa
leið og munu flestir taka undir
tillögu þá, sem fram kemur 1
brjefi hans.
„Kæri Víkverji!
Mig langar til ~SÖ vekja at-
hygli þína og lesenda þinna á
hinum ágætu tillögum Steins
K. Steindórssonar er nýlega
birtust í lesbókargrein hans
um Skúlá fógeta:
Að sýna þessari þjóðhetju Is
lendinga og merkilega forvíg
ismanni þann heiður og rækt-
ar semi sem honum ber. Við
Reykvíkingar allir, en fyrst og
fremst iðnaðarmenn og versl-
unarmenn eigum að reisa Skúla
veglegt minnismerki á fögrum
stað og eins eigum við að nefna
einhverja hina fegurstu götu
borgarinnar eftir honum.
Jeg fyrir mitt leyti fellst al-
gjörlega á hugmynd Steins um
að umskýra Aðalstræti Skúla-
stræti og setja styttuna til
bráðabirgða upp í gamla trjá-
garðinum þar við strætið. En
síðar kynni e. t. v. að finnast
betri staður.
•
Sjálfsögð ræktar-
semi.
„JEG VIL, segir G. H., með
þessum línum skora á Iðnaðar
mannafjelagið, Verslunarmanna
fjelagið, fjelag ísl. stórkaup-
manna og Reykvíkinga í heild
að hefja þegar undirbúning að
því að framkvæma þessa á-
gætu hugmynd.
Vjer íslendingar verðum tæp
lega of oft minntir á þá syni
þjóðarinnar, sem fórnað hafa
lífsstarfi sínu fyrir vorn hag.
Sýnum Skúla þá ræktarsemi,
látnum, sem forfeður vorir
kunnu ekki að sýna honum í
lifanda lífi og gefum ungum
og óbornum Reykvíkingum um
leið tækifæri til að hafa nafn
hans, mynd og minningu fyrir
augum dag hvern.
•
Næturakstur.
í BYRJUN styrjaldarinn^ir,
þegar bifreiðastöðvar bæjarins
tóku upp á því, að skifta með
sjer næturakstri, var það gert
til þess að spara bensín, en
skömmtun hafði þá verið tekin
uþp á bensíni hjer á landi sem
víðast hvar annarsstaðar. Það
gat enginn haft neitt við þess-
ari ráðstöfun að segja. — Hún
var ill nauðsyn vegna ástands
ins í heiminum.
Nú er þetta breytt að því
leyti til, að bensín er ekki leng
ur skammtað. Hitt getur verið
að bifreiðastjórar vilji ekki
leggja sig í að aka að nætur-
lagi, nema þá nótt og nótt til
skiftis. Kemur þá til álita hvað
leigubifreiðastjórar vilja gera
fyrir viðskiftavini sína.
Daglega er í blöðum auglýst
að þessi eða hin stöðin hafi
næturakstur. En liggi mönnum
á bifreið t. d. kl. 4 að morgni,
þá kemur í ljós, að mæturakst-
urinn er ekki lengur en til kl.
4. — Hjer um nóttina bráðlá
manni á bifreið. Hann hringdi
í stöðina, sem hafði næturakst-
ur þá nótt, klukkan 10 mínút-
ur fyrir 4. Hann fjekk það svar,
að búið væri að loka.
•
Til samkomulags.
NÚ, ÞEGAR bensínið er selt
hverjum sem hafa vili, ætti að
vera hægt að hliðra dálítið til.
Það má vel vera, að óþarfi sje
að hafa allar bifreiðastöðvar
opnar á hverri nóttu, en væri
ekki hægt til samkomulags að
hafa tvær stöðvar opnar að
nóttu til og það alla nóttina.
Það er ekki vanþörf á því í
jafnstórum bæ og Reykjavík
er, að hafa leigubíla til taks
allan sólarhringinn. Það er
margt, sem kemur fyrir, slys-
farir, veikindi og það getur ver
ið lífsspursmál að ná í bifreið.
- !■»»
iivHiaaiMRio **»i*^nn»**»wr»si«nr?nr*tfsie»»»i»a»»»»n»«Hr»iii*<s»r**ir»a»»»»»iiB»»»»»»»»j»«ia*'»*a»**wii»w»wrp.*»W<raWlWi
MYNDIR ÚR BÆJARLtFINU !
■
— Manstu hvað Alþýðuflokk
urinn var viss um að ná meiri
hlutanum í bæjarstjórninni við
kosningarnar 1930, sagði Þor-
steinn við kunningja sinn, Hall
dór. Þeir voru að leggja það
niður fyrir sjer, hvernig þeir
gætu best hagað starfi sínu fyr
ir Sjálfstæðisflokkinn þessa dag
ana, sem eftir eru til kosning-
anna.
— Já, hyort jeg man, segir
Halldór. Það var ekki lítill dyn
ur í Alþýðublaðinu í þá daga.
og Nýja dagblaðinu, eða hvað
það nú hjet, málgagn Fram-
sóknarmanna. Þeir ætluðu að
vinna Reykjavík með „leiftur-
árás“ eins og þú manst. Fram-
sókn og Alþýðuflokkurinn
hÖfðu samþykkt lög á Alþirigi
um að breyta kosningalögun-
um, þannig, að kosnir væru all
| ir bæjarfulltrúarnir í einu. Áð-
ur voru 5 bæjarfulltr. kosnir 2.
fram á vígvöllinn í fyrsta sinn
til þess að fá hjer yfirráðin
með Alþýðuflokknum.
— Og endirinn varð sá, að
i Alþýðuflokkurinn tapaði ein-
. um bæjarfulltrúa til Framsókn
ar. —
En Sjálfstæðisfl. fjekk 8
fulltrúa í það sinn, Alþýðu-
flokkurinn 5 og Framsókn tvo.
Og síðan hafa þessir tveir flokk
ar altaf verið að tapa hjer í
bænum. Framsókn þurrkaðist
út úr bæjarstjórninni 1942, en
Alþýðuflokkurinn skreið inn
með þrjá.
— Og nú halda sumir því
fram, eins og Gunnar Thorodd
sen sagði í ræðu sinni á sunnu-
daginn, að efsti maður A-list-
ans, Jón Axel Pjetursson, sje
í baráttusæti?
— Það eru sem sje 16 ár síð
an ýmiskonar samfylkingar
hófu skipulagðar árásir á meiri
hluta Sjálfstæðismanna í bæj-
arstjórn Reykjavíkur og 16 ár
síðan þessir andstöðuflokkar
Sjálfstæðismanna gerðu sjer
meira og minna vonir um að
vinna meirihlutann. Þeim tekst
það ekki frekar nú en áður.
— Nei, jeg skal segja þjer,
segir þá Halldór. Jeg sje ekki
betur en barátta þeirra sje von
l«usári nú, en nokkru sinni
fyrr. Því áður voru þessir and
stöðuflokkar nokkurnveginn
samhentir. Nú eru þeir í hár-
inu hver á öðrum, svo hver
heilvita maður sjer, að þeir
gætu aldrei komið sjer saman
um neitt.
Það er að segja. Framsóknar
flokkurinn hefir vitanlega
sýnt sinn sameiningarvilja
gagnvart kommum með því, að
setja Pálma Hannesson rektor
á sinn lista. Þeir vita, sem er,
að þeir hafa ekki folkksfylgi
hjer í bænum til þess að koma
manni í bæjarstjórn.
— Heldurðu að rektorinn sje
þá í rauninni í flokki kommún
ista enn í dag?
— Mjer skildist í haust, að
ekki væri óbrúandi bil á milli
hans og þeirra í útvarpsráð-
inu.
Eða heldur þú að það sje al-
veg út í loftið, sem Bryrijólfur
Bjarnason sagði, við blaða-
mann frá Þjóðviljanum, þegar
hann var að segja frá stjórnar
byltingunni í f jelagi 'íslenskra
stúdenta í Höfn um árið.
Við kommúnistarnir sigruð-
um í fjelaginu, sagði Brynjólf
ur, við Pálmi Hannesson,
Sveinbjörn Högnason og jeg.
Framhald á bls. 12