Morgunblaðið - 22.01.1946, Page 12
12
MORÖUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. jan. 1946
Sunnudagsfundur Sjálfstæðis-
manna í samkomuhúsi flokksins
Fjölmennur og lýsti eindregnum áhuga
FLOKKSFUNDURINN í samkomuhúsi Sjálfstæðisflokksins á
sunnudaginn var jafn fjölsóttur og fyrra sunnudag og hinn
ánægjulegasti. '
Bæjarstjórnarkosningarnar
FRÁ SJÁLFSTÆÐIS -
FLOKKNUM.
• Listi Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík er
D-LISTI.
• Skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins, sem annast alla
fyrirgreiðslu ^ið utan-
kjörstaðakosningar er í
Thorvaldsensstræti. Sím-
ar 6472 og 2339.
• Kjósendur, sem ekki
verða heima á kjördegi,
þurfa að kjósa nú þegar.
• Sjálfstæðismenn. sem
vildu lána bíla sína á kjör
degi, eru vinsamlegast
beðnir að tilkynna það
skrifstofu flokksins —
síma 3315.
• Allir þeir, er gætu að-
stoðað skrifstofuna við
margvísleg störf, ættu að
gefa sig fram þegar í stað.
D-LISTINN
Sjálfstæðisflokkurinn.
— Myndir úr
bæjarlífinu
Framhald af bls. 8
En það þarf ekki að gera
því skóna, að kommar fái tæki
færi til að vinna með þessum
fornvini sínum í bæjarstjórn-
inni. Og allir vita, að Alþýðu-
flokkurinn og kommúnistar
koma sjer ekki saman um neitt
og að enginn flokkur getur
myndað meirihluta hjer í
Reykjavík, nema Sjálfstæðis-
flokkurinn.
Þessvegna verður sunnudag-
urinin 27. jan. D-dagur Reyk-
víkinga, eins og Ásgeir Þor-
steinsson verkfræðingur benti
á í grein sinni í Morgunblað-
inu á laugardaginn var.
- Þingmannsafmæli
Framh. af bls. 5.
til flokksmannanna^ karla og
kvenna í hjeraðinu, með óskum
um farsælt ár og gæfuríka fram
tíð.
Nokkru eftir miðnætti kvaddi
Sverrir ^úlíusson, formaður
Landssambands íslenskra út-
vegsmanna sjer hljóðs. Mælti
hann fyrir hönd komumanna.
Þakkaði hann rausnarlegar
móttökur og ógleymanlega
kvöldstund.
Slys á bresku
beifiskipi
London í gærkveldi:
BRESKA flotamálaráðu-
neytið tilkynnti í kvöld, að
einn liðsforingi og tveir aðr-
ir menn hefðu beðið bana
samstundis, en tveir aðrir
aðrir meiðst alvarlega í slysi,
sem varð í vjelarúmi breska
beitiskipsins Cleopatra á Mið-
jarðarhafi í nótt sem leið.
Lúðrasveit Reykjavíkur ljek
0
nokkur lög áður en funaurinn
hófst, meðan menn vöru að
ganga til sæta sinna. Reyndust
hljómskilyrði í salnum hin
bestu, fyrir svo mikla hljóm-
sveit. Albert Klahn stjórnaoi.1
Síðasta lagið er spilað var áð-
ur en fundur var settur, var
„ísland ögrum skorið“.
Friðrik Ólafsson skólastjóri
Sjómannaskólans hafði á hendi
fundarstjórn, og kvaddi hann
til skrifara fundarins Magnús
Jónsson stud. jur. frá Mel.
Fyrstur tók til máls Guðm.
Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórn
ar. í ræðu sinni rakti hann m.
a. nokkrar þær framkvæmdir
er Sjálfstæðismenn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur hafa beitt
sjer fyrir og komið í fram-
kvæmd og hvernig minnihluta-
flokkarnir hjer í Reykjavík
hafa á margan hátt tafið, tor-
veldað og spilt fyrir framför-
um í bænum og hagsæld bæj-
arbúa.
Næst tók frú Guðrún Jónas-
son til máls. Ræða hennar var
m. a. almenn hvatningarorð til
Reykvíkinga, að bregðast ekki
skyldum sínum gagnvart bæjar
fjelaginu og framtíð þess.
Þá talaði Sveinbjörn Hann-
esson verkamaður, m. a. um
það hv&rnig hagsmunir ’verka-
manna og átvinnurekenda fara
saman, hve mikið veltur á því,
fyrir verkamenn, að hagur at-
vinnuveganna sje blómlegur.
Þá er góð atvinna trygg.
Næstur talaði Hallgrímur
Benediktsson stórkaupmaður.
Ræddi hann einkum um hús-
næðismálin, hvernig húsbygg-
ingum hefði miðað áfram síð-
ustu ár, og benti á, að mun
meira hefði verið bygt á síðastl.
ári, en jafnvel fylgis.menn só-
síalista í skipulagsnefnd at-
vinnumála hefðu talið nægilegt
og eðlilegt.
Þá tók Gísli Halldórssop
verkfræðingur til máls, m. a.
um sósíalisma og frjálst fram-
tak, ríkisrekstur og einkarekst-
ur, frjálst líf og einræði. Hann
',om víða við.
Þá talaði Gunnar Thorodd-
sen alþm. Ræða hans er birt
hjer í blaðinu.
Að lokum tók Bjarni Bene-
diktsson borgarstjóri til máls.
Ræddi hann m. a. um skyldur
reykvískra borgara, er unna
framförum og hagsæld bæjar-
ins, til að taka virkan þátt í
þeim bæjarstjórnarkosningum,
sem nú fara í hönd.
Var öllum ræðunum tekið
með dynjandi lófaklappi.
Að afloknum ræðuhöldum,
sje formaður Sjálfstæðisflokks-
ins fram til að hylla Bjarna
Benediktsson. Var hann hyltur
með ferföldu húrrahrópi.
Því næst spilaði hljðmsveit
hússins „Jeg vil elska mitt
land“. En allir fundarmenn
sungu. Var þá þessum ánægju-
lega fundi lokið.
Eldur í Miðsiræti 5
SNEMMA á sunnudagsmorg-
un kom upp eldur í húsinu Mið
stræti 5, sem er stórt timbur-
hús. Slökkviliðinu var þegar
gert aðvart. Er það kom á stað-
inn var talsverður eldur milli
þilja í herbergi í suðurenda
kjallara. Slökkviliðinu tókst að
slökkva eldinn áður en skemdir
yrðu teljandi.
Hvað fær Sjálfsiæðis
flokkurinn mörg
afkvæði!
Verðlaunaget-
raunin
MIKILL áhugi hefir ríkt fyr-
ir því að taka þátt í verðlauna-
getraun Sjálfstæðisflokksins
um það, hvað flokkurinn fái
mörg atkvæði í bæjarstjórnar-
kosningunum.
Þrenn verðlaun verða veitt
þeim, sem fara næst um at-
kvæðamagn flokksins.
1. verðlaun ..... 2000.00 kr.
2. verðlaun ..... 1000.00 —
3. verðlaun ...... 500.00 —
Enn getið þið tekið þátt í
getrauninni með því að fylla
út neðanritaða úrklippu úr
blaðinu og senda Morgunblað-
inU, merkt: „getraun“.
ÚRKLIPPA
Sjálfstæðisflokkurinn fær
...........atkv.
Nafn .................
Heimilisfang..........
Til leiðbeiningar er þetta:
• Við síðustu bæjarstjórnar-
kosningar voru um 25000
kjósendur á kjörskrá.
® Atkvæðamagn flokkanna
var þá:
Sjálfstæðisfl. 9334 atkv.
Sósíalistafl. 4558 —
Alþýðuflokkur 4212 -—
Framsóknarfl. 1074 — .
® Nú eru á kjörskrá um 28700
kjósendur.
Hlíf segir upp
samniugum
VIÐ allsherjaratkvæðagreiðslu
í Verkamannafjelaginu Hlíf í
Hafnarfirði var samþykt að
segja upp samningum við at-
vinnurekendur. Samningar þess
ir falla úr gildi þann 22. febr.
n. k.
Atkvæðagreiðslan hófst s. 1.
föstudag og stóð.til miðnættis
á sunnudag. Alls greiddu 279
atkvæði og skiftast þau þannig,
að já sögðu 170 og nei sögðu
98.
ÞÓRHALLUR ÁSGEIRS-
SON, fulltrúi í utanríkisráðu
neytinu, flytur fyrirlestur á
skemtifundi Anglia næstkom
andi fimtudag er hann nefnir
„Washington á stríðstímum".
Eins og venja er á fundum
Anglia verður dansað til kl. 1.
Fundurinn verður haldinn í
Tjarnarcafe og hefst kl. 8,45
eftir hád.