Morgunblaðið - 22.01.1946, Page 16
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói:
Sunnan og suðvestan hvass-
viðri. Skúrir og hryðjur.
Ofj
Þriðjudagur 22. janúar 1946
FRA FYRSTA fundi hins nýja
þjóðabandalags. — Sjá grein á
bls. 9.
Dagsbrún segir
upp kaupsamning-
um
UM SÍÐUSTU helgi, laugar-
dag og sunnudag, fór fram kosn
ing-í stjórn og trúnaðarmanna-
ráð Verkamannafjelagsins
Dagsbrúnar.
Tveir listar komu fram. Ann
ar. A-listi, borinn fram af upp-
stillingarnefnd og trúnaðarráði
Dagsbrúnar og hinn, B-listi,
borinn fram af verkamönnum
innan Alþýðuflokksins.
Urslit kosningarinnar urðu
þau. að A-listi hlaut 1307 atkv.,
B-listi 364; 89 seðlar voru auðir
og 6 ógildir.
U'ppsögn samninga.
Samtímis stjórnarkosningunni
fór fram allsherjaratkvæða-
greiðsla um, hvort segja skyldi
upp gildandi kaupsamningum
við atvinnurekendur. Stjórn og
trúnaðarráð hafði lagt til, að
sainningunum skyldi sagt upp.
Urslit atkvæðagreiðslunnar
urðu þessi:
1298 já
388 nei
Auðir seðlar 68 og ógildir
12. Alls greiddu atkvæði 1766
af rúml. 3000, sem eru skráðir
fjelagar.
Samkvæmt þessu segir Dags
l^rún upp gildandi samningum
frá og með 20. febr. n. k.
Franskt blað bannað
LONDON: Franska blaðið
Les Nouvelles de Matin, var
nýlega bannað af upplýsinga
xnálaráðherranum af óljósum
orsökum, hefir fengið leyfi
til þess að byrja að koma
út aftur bráðlega.
árbók Reykjavíkur
bæjar 1945
Efiir dr. Björn Björnsson
hagfræðing
NÝLEGA er komin út Árbók
Reykjavíkurbæjar 1945-. Er það
önnur árbókin, sem hagfræð-
ingur bæjarins, dr. Björn
Björnsson, hefir gefið út. Sú
fyrsta kom út, sem kunnugt er
1840, og náði sá fróðleikur, er
hún flutti, fram að þeim tíma.
Þessi nýútkomna árbók flyt-
Ur ekki aðeins hagfræðilegar
upplýsingar frá síðusíu árum
heldur er hún samin sem sjálf-
stætt rit, að því leyti.að skýrsl-
urnar, sem hún flytur, ná yfir
lengra tímabil en frá 1940, þó
ýmsir kaflar árbókar þessarar
sjeu ekki raktir eins langt aft-
ur í tímann og í hinni fyrri.
I aðalatriðum eru hjer sömu
málefnaflokkar og í hinni fyrri,
en nokkrum nýjum flokkum er
bætt við.
Árbækur þessar eru hin vönd
uðustu rit, og alveg ómissandi
fyrir alla þá, sem vilja vita
glögg skil á málefnum bæjar-
ins, atvinnu bæjarbúa og lífs-
skilyrðum og rekstri bæjarins
og fyrirtækja hans.
Fyrstu hljómleikar
Lanzky-Otto um
mánaðamótin
EINS OG SKÝRT VAR FRÁ hjer í blaðinu fyrir nokkru
hefir Tónlistarfjelagið ráðið til sín danskan hljómlistar-
mann, Wilhelm Lanzky-Otto, en hann er kunnur í Dan-
mörku bæði sem hornleikari og píanóleikari. Lanzky-Otto
er kennari hiá Tóniistarfjelaginu bæði í píanóleik og horn-
leik og í sumar mun 'hann fara á vegum Tónlistarfjelagsins
og Tónlistarfjelags Akureyrar víða um land til hljómleika-
halds. Sagði Ragnar Jónsson; formaður Tónlistarfjelagsins
blaðamönnum svo frá í gær, Lanzky-Otto myndi fara á alla
þá staði á landinu, þar sem hægt yrði að halda hljómleika.
Fyrstu horntónleikar
á íslandi.
Hljómleikar Lanzky Ofto
verða fyrstu hornhljómleik-
ar, sem haldnir verða hjer á
landi. Þessi ungi listamaður
sem aðeins er 36 ára, er án
efa fremsti hornleikari Dana
og sigraði hann í samkeppni,
sem haldin var við að velja
hornleikara við Konunglega
leikhúsið í Höfn fyrir nokkr-
um árum.
Fram ællar að
reiía fjelagsheimili
BÆJARRÁÐ hefir samþykkt
að gefa Knattspyrnufjel. Fram
kost á lóð undir fjelagsheimili
nálægt æfingasvæðinu í Vatns-
geymishæðinni, eftir nánari út-
vísun síðar, að fengnum tillög-
um bæjarverkfræðings. Skil-
yrði um byggingarfrest verða
ákveðin síðar.
Fundur í kvöld í Sjálfstæðis-
kvennafjelaginu Hvöt
Ræóuhðld og skemlialriði.
Hvaiar-konur, fjölmennið
á fundinn!
I KVÖLD kl. 8,30 hefst fund-
ur í sjálfstæðiskvennafjelaginu
Hvöt í Tjarnarcafé.
Þar verða bæjarstjórnar-
kosningarnar á dagskráf Þar
koma fjelagskonur í Hvöt
saman, til þess að ráða ráðum
sínum um kosningaundirbún-
inginn. En alt frá því fjelag
þetta var stofnað, hefir það
unnið af miklum dugnaði að
málefnum Sjálfstæðisflokksins
og eflt fylgi hans við hverjar
kosningar.
Á fundinum í kvöld halda
þær ræður frú Auður Auðuns
og frú Guðrún Jónasson. Fleiri
fjelagskonur munu taka þar til
máls.
Frk. G.unnþórunn Halldórs-
dóttir syngur gamanvísur á
fundinum. Þar vgrður kaffi-
drykkja. Og þar verður dansað.
Æfinlega er mikið fjör á fund-
um Hvatarfjelagsins.
Sjálfstæðiskonur! Komið á
fundinn í Hvöt í kvöld. Hefjið
starfið fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn sem fyrst. Þið notið ekki
kvöldið betur í kvöld, 'en með
því að koma á þennan kvenna-
fund.
Lanzky Otto.
Blaðamenn hittu hinn unga
danska listamann á heimili
Ragnars Jónssonar í glferdag
og ljek hann fyrir þá nokk-
urn hluta af hljórnleikaskrá
sinni, bæði á píanó og horn.
Meðal viðfangsefna á þess-
um fyrstu tónleikum verða
Romantisk fantasie og fuga
eftir Bach, Konsert fyrir horn
og píanó í Es dur eftir Mozart
og leikur dr. Urbanchitch
undir á píanó. Þá leikur
Lanzky Otto Brahms-Hándal
varaiation, sem flestir hljóm-
listarvinir kannast við. Enn-
fremur leikur hann verk eft-
ir Chopin.
Elcki hefir verið fullákveð-
ið hvenær hljómleikarnir
verða ,en byrjað verður að
selja ^aðgöngumiða í dag eða
á morgun. Hljómleikar þess-
ir eru fyrir almenning, en
ekki bundnir við styrktarfje-
laga Tónlistarfjelagsins.
Vöruskiftaöfnuð-
urinn óhag-
stæður
HAGSTOFAN hefur lokið
við útreikninga á vöruskifta-
jöfnuðinum, fyrir árið 1945.
Reyndist hann vera óhagstæð
ur um 52,4 milljónir króna.
Þá var vöruskiftajöfnuðurinn
fyrir des.mánuð s.l. sömuleið
is óhagstæður; eða um 18,77
milj. kr. Árið 1944 var vöru-
skiptajöfnuðurinn hagstæður
um 6,2 miljónir króna.
Verðmæti útfluttrarvöru í
des. nam samtals kr. 24,66
milj. kr. Veðrmæti innfluttr-
ar kr. 43,43 milj.
í des. 1944 nam verðmæti
útflutningsins 12,6 milj. kr.,
en innflutningsins kr. .21,3
milj. — Var því óhagstæður
um 8,7 milj. króna.
Á árinu 1945 nam verðmæti
útfluttrar vöru samtals 267,3
miljónum króna, en innfluttr
ar vöru samtals 319,7 milj.
kr. Er því vöruskiptajöfnuð-
urinn fyrir árið 1945 óhag-
stæður um 52,4 milljónir kr.
Árið 1944 nemur verðmæti
útflutningsins 253,8 milj. kr.
en innflutningsins 247,6 milj.
kr. — Var því það árið hag-
stæður um 6,2 miljónir kr.
Símamsnn fá lóðir
á Melunum
BÆJARRÁÐ hefir samþykt
að gefa Fjel. ísl. símamanna
fyrirheit um lóð undir sambygg
ingu á Melunum suður af lóð-
inni, sem fjelaginu og fjelagi
starfsmanna við Ríkisútvarpið
var gefið fyrirheit um á fundi
30. nóv., síðastl. Byggingarfrest
ur á báðum lóðunum til 1. maí
næstkomandi.
Akranes kaupir
tvö skip
AKRANESKAUPSTAÐUR hef-
ir fest kaup á tveim 300 smál.
skipum í Bretlandi. — Verður
annað þeirra notað sem ferja
yfir Hvalfjörð, en hitt við bygg-
ingu hafnarmannvirkja á Akra
nesi. Skipin eru knúin 500 hest-
afla diesel-vjelum. Þau geta
flutt í einu 4 langferðabíla og
fjóra fólksbila af venjulegri
stærð, auk farþega og farang-
urs.
Arnljótur Guðmundsson bæj-
arstjóri annaðist kaupin, en
honum til aðstoðar voru ýmsir
sjerfræðingar, bæði innlendir
og erlendir. Verð skipanna var
mjög hagkvæmt. Þau eru vænt-
anleg hingað til landsins í maí
n.k.
Kjósið D
listann
25 þús. kr.
verðlaun fyrir
sjómannasögu
Ný bákaútgáfa — Sjó-
mannaútgáfan — hefir á-
kveðið að veita 25 þús.
króna verðlaun fyrir bestu
frumsömdu skáldsöguna úr
íslensku sjómannalífi, sem
útgáfunni berst fyrir 1.
júlí 1947.
Þá mun Sjómannaútgáf-
an gefa út á þessu ári sex
þýddar bækur úr sjó-
mannalífinu. Eru það Ind-
íafarinn Mads Lange,
eftir Aage Krarup Nielsen,
Worse skipstjóri og Gar-
man & Worse, eftir Al-
exander L. Kielland, Nord-
enskjöld, eftir Sven Hedin
og Ævintýri í Suðurhöf-
um, eftir Edgar Allan Poe-
Verður nánar getið um
verðlaunasamkepnina og
bókaútgáfu þessa síðar.
Ritstjóri hennar er Gils
Guðmundsson.
Sjálfstæðismenn!
Þið, sem eigið þess kost, veit-
ið Sjálfstæðisflokknum liðsinni
með því að ljá honum bifreiðaF
yðar á kjördegi.
Tilkynningum um þetta er
veitt mótttaka í skri f'stof u
flokksins, sími 3315
Listi Siálfstæðismanna í Heykjavík er H-Eisti