Morgunblaðið - 17.04.1947, Page 10
10
MOBGU N B L Apit)
Finimtudaguj- 17. apríl 1947-
Þorgeir Ibsen:
Hugleiðingar um nýjun burnuskólu ú Akrunesi
ÞAÐ mun vera í ráði, að nú
1 vor verði byrjað að byggja
nýjan barnaskóla fyrir Akra-
nesskaupstað. Ekki er það
. seinna vænna, að hafist sje
handa um úrlausn á þessu bráð
nauðsynlega máli, þar sem hús-
næðisleysi barnaskólans krepp-
ir svo að kennslunni og allri
framkvæmd hennar að óviðun-
andi er. Leikmenn í skólamál-
um, ekki síður en við kennar-
ar, munu geta sjeðj að það er
ógerningur að sætta sig við það
ófremdar ástand öllu lengur en
í. vetur, að kennsla eins og
sama skóla fari fram í sex hús-
um, sem liggja ekki á einum og
sama stað heldur víðsvegar í
bænum. Hjer ' við bætist, að
kennsluskilyrði og reyndar öll
skilyrði til skólahalds eru fyr-
ir neðan allar hellur í flestum
þessara staða. — Jeg, lset vera
að fjölyrða frekar um þetta
atriði, þar sem ófyrirsjáanlegt
atvik, bruni gamla barnaskól-
ans, olli því að grípa varð til
þess óyndisúrræðis að leigja
stofur víða í bænum, svo að
mikill hluti Ijennslunnar fjelii
ekki með öllu niður á þessu
skólaári.
Eftir því sem jeg best veit,
hefir ekki enpþá verið ákveðið
til fulls, hversu stór hinn nýi
barnaskóli verði. En telja má
víst, að þeir aðiljar, sem sjá
um alla áætlun og framkvæmd
þessa máls, gVri sjer Ijóst, að
Akranes er ört vaxandi bær, og
af þeirri ástæðu ve?ði skólan-
um hæfilegur stakkur skorinii,
bæði hvað snertir landrými og
húsrými. Og sjálfsagt tel jeg,
að skólinn verði þannig byggð-
ur, að við hann sje hægt að
bæta, þ. e. a. s. stækka hann,
eftir því sem barnafjöldi eykst.
í huga mínum gætir nokk-
urs kvíða urr! það, hvemig
þetta mál verði af höndum
leyst. Spurningarnar vakna ein
af annari. Verður vel eða illa
vandað til byggjngarinnar?
Verður hún þyggð. samkvæmt
kröfu tímans um nýtísku eða
fullkomið skólahús? Eða verð-
ur til alls svo sparað og við
neglur skorið. þegar til fram-
kvæmdanna kemur, að hinn nýi
skóli, er hann loksins rís af
grunni, verði að verulegu leyti
ófær um að gegna því hlutverki,
sem honum er- ætlað sem upp-
eldisstofnun. — Tíminn mun
svara þessum spurníngum og
leiða í ljós hversu úr rætist.
En ástæða er til að ætla, að
þetta geti brugðið til beggja
vona, þar eð reynsla Islend-
inga er sannarlega ekki langt
á veg komin, hvað snertir bygg
ingu góðra skólahúsa, þrátt fyr
er það, að margar skólabygg-
ingar hafi risið upp hin síðari
árin. Of mikillar skammsýni
og óraunhæfni hefir gætt í sam -
bandi við byggingu margra
skóla, og mætti koma með mý-
mörg dæmi um það, þótt ekki
verði hirt um að geta þeirra
sjerstaklega hjer, væri þess þó
ef til vill þörí.
Það er meiri vandi og krefst
meiri þekkingar og nákvæmni
að byggja skólahús en aðrar
byggingar yfirleitt. — Það er í
mikið ráðist, þegar tekin hefir
verið sú ákvörðun að reisa upp-
eldisstofnun, svo sem skóla, af
hvaða gerð sem er. Undirbún-
ingur og áætlun að slíkri fram-
kvæmd mun ávallt krefjast
heilbrigðrar samvinnu og sam-
eiginl. átaks uppeldisfræðinga;
byggingarmeistara, kennara og
heilsufræðinga (lækna), ef vel
á að fara. I þeíjjum efnum mætt
um við vel taka okkur Svíá og
Bandaríkjamenn til fyrirmynd-
ar, þajp sem sjeð er fyrir því,
að byggingameistarar nýrra
•skóla njóta ráða og hugmynda
hinna færustu skólamanna og
heilsufræðinga, sem hafa hald-
góða reynslu að baki í flestu
því, er snertir fyrirkomulag og
útbúnað á skólum.
Enginn skynsamur útgerðar-
maður mundi láta byggja sjer
fiskiskip, hvorki í innlendri nje
erlendri skipasmíðastöð, án þess
að hafa áður gefið skipasmíða-
stöðinni nákvæma lýsingu á
því, hvernig hið væntanlega
skip skuli útbúið, miðað við
þá veiði eða veiðiaðferð, sem
skipið ætti að notast við. Og
þannig er það með bygginga-
meistara, sem hefir verið falið
að gera frumdrögin og teikn-
ingu að nýju skólahúsi; hann
á að njóta ráða og aðstoðar
þeirra skólamanna, sem hafa
reynsluna fyrir sjer í því, sem
lýtur að skólabyggingum. Þessi
tilhögun er nauðsynleg til að
forðast óhöpp og mistök, sem
annars kynnu að koma fyrir og
það jafnvel hjá byggingameist-
ara, er hefði á sjer gott orð sem
,,arkitekt“.
Hvað gera ber, þegar nýr
skóli er byggður. Um þetta atr-
riði mætti skrifa langt mál, en
hjer verður aðeins í stórum
dráttum drepið á það helsta,
hvað þessu viðvíkur. — Það er
kunnara £n frá þurfi að segja,
að umhverfið hefir mótandi sál-
ræn áhrif á barnið. Af þessari
ástæðu ætti skólanum að vera
valinn hinn fegursti og besti
staður í bænúm. Allir ættu að
skilja, að þetta er ekki svo lítið
atriði, þar sem skólinn er ann-
að helsta dvalarheimili barns-
ins um margra ára skeið.
Landrými það, sem skólanum
verður fengið, á að vera það
stórt, að leijchvöt barnsins verði
í engu skert. Vart getur herfi-
legri mistök en þau, þegar skóla
hefír verið ætlað of lítið land-
rými, þar sem ógerningur reyn-
ist að koma á skipulagðri leikja
starfsemi í kennsluhljei. í leikj
um barna á þröngu skólasvæði
ríkir oftast óánægja og agaleysi
þar sem „hvert rekur sig á
annars horn“ eins og í vísunni
stendur. Ekki ósjaldan er hið
þrönga svigrúm orsök í árekstr
um og pústrum, sem valda
meiri eða minni mejðslum. Með
nægilega stóru landrými um-
hverfís skóla vinnst að minnsta
kosti tvennt, sem hvort tveggja
er mjög mikilvægtf annað er
það, að barnið getur óttalaust
og öruggt farið ferða sinna um
skólasvæðið, frjálst og óþving-
að, og svo hitt, að leikþörf þess
er hægt að fullnægja í skipu-
lögðum og þroskandi leik.
-Þá skal lítillega vikið að
sjálfri skólabyggingunni. I bók,
sem .. stærsta kennarasamband
Bandaríkjanna, The National
Education Association, ljet gefa
út árið 1925 um fyrirkomulag
á skólum og heitir: Report of
Committee on School House
Planning, er getið um mörg
grundvallaratriði — (bls. 16—
19) — sem hafa verður í huga
og taka fullt tillit til, þegar
ráðist er í að byggja skóla; þau
helstu eru þessi:
1. Að byggingin pái tilgangi
sínum sem uppeldis- og mennta
setur.
2. Öryggi. Hjer er átt við
líkamlegt öryggi, t. d. öryggi
gegn eldshættu og öryggi fyrir
umferð farartækja. Skólasvæði,
sem liggja að götum, ættu ætíð
að verá vel girt.
3»Hollusta. Húsakynni skól-
ans og húsbúnaður mega ekki
vera þannig, að heilsu nemenda
og kennara geti stafað hætta
af. Kennslustofur og reyndar
allar aðrar stofur og svo gang-
ar skólans eiga af þeirri, ástæðu
að hafa næga birtu ásamt góðri
loftræstingu pg hæfilegu rými.
Sjá verður fyrir því, að skól-
inn sje laus við allt bergmál,
þar sem hinn stöðugi bergmáls-
glymjandi gerir hvort tveggja
að spilla kennslunni og trufla
og veikja taugar þeir/a, sem við
hann búa að staðaldri.
4. Möguleiki til stækkunar.
Skóli á að vera þannig stað-
settur og byggður, að gerlegt
sje að stækka hann eftir því
sem þörf krefur vegna vaxandi
nemendafjölda.
5. Hagræði og þægindi. Allt
fyrirkomulag skólans á að
vera eins fullkomið og unnt er.
Hjer verður að fara saman hag-
sýni og fyrirhyggja, ef vel á
að takast. Skólinn á að vera
vistlegur og þægilegur og þeim
kostum búinn að auðvelt sje að
halda honum hreinum og þrifa-
legum. Allt sem er til hagræðis
og þæginda, svo sem salerni,
hreinlætisherbergi, fatageymsl-
ur og annað þessháttar, skal
haganlega og hæfilega fyrir-
komið og be,ra vott um raun-
hæfni (practicity) á hæsta
stigi.
6. Varanleikj. Skólinn og allt
sem honum tilheyrir á að verg
byggt úr traustu og endingar-
góðu efni, sem er gott til við-
halds.
7. Fe^nrð og smekkvísi. Svip-
ur skólans og yfirbragð, ytra
og innra, á að lýsa látlausri
fegurð og smekkvísi. (aesthetic
fitness), án alls íburðar og tild-
urs. Peningum, varið í því skyni
að gera þetta sem best og full-
komnast, er síður en svo á glæ
kastað. Listræn, fögur bygg-
ing mun ávallt gleðja augað,
auk þess, sem hún slær menn-
ingarljóma á umhverfi það, sern
hún stendur í.
Hjer hafa aðeins verið talin
veigamestu atriðin, sem alls
ekki verður gengið fram hjá af
þeim, sem falið hefir verið það
mikla hlutverk að gera frum-
drögin og semja áætlun að fyr-
irhuguðum skóla.
Kennslustofur bóknámsins
taka meira af rúmi barnaskól-
anna en al-ýair aðrar stofur
þeirra samanlagt. Þessar kenslu
stofur hinna almennu náms-
greina eru líka oftast bestu og
vistlegustu herbergin, sem skól
arnir hafa yfir að ráða. Segja
má að þetta sje ekki nema eðli-
legt. En við skóla framtíðarinn-
ar á að skapa öðrum námsgrein
um fullt eins góð og þægileg
skilyrði og bóknámsgreinunurm
Og hvað snertir húsakost, ætti
ekki á nokkurn hátt að gera
söng, leikfimi og handiðju
lægra undir höfði en bóklegu
námi. — Allt franr á síðustu
tíma hafa þessar þrjár náms-
greinar orðið ^ð sitja á hakan-
um, vegna slæmra skilyrða og
húsnæðisskorts. En síðustu ár-
in hefir þetta tekið stakkaskipt-
um til mikilla bóta, þótt enn
skorti mikið á að viðunandi sje
í mörgum af skólum landsins.
Innan hvers skóla á að vera
sjerstök stofa eða stofur fyrir
söng- og „músik“-nám. Þessar
stofur eiga að vera þannig úr
garði gerðar, að þær sjái sem
best fyrir þörfum söngkennsl-
unnar. Þær eiga að vera svo
vel einangraðar, að frá þeim
berist enginn hávaði, sem
myndi hafa truflandi áhrif á
aðra kennslu, er færi samtímis
fram í skólanum. — Jeg sá í
Bandaríkjunum, árið 1945,
nokkrar söngkennslustofur í
fyrsta flokks barnaskólum. Þær
voru einangraðar á svipaðan
hátt og útvarpssalir. Það var
alveg sama hversu hátt ljet í
söng og hljóðfærum innan
'veggja þessara stofá; frá þeim
barst aldrei háVaði, sem trufl-
aði kennsluna í næstu stofum,
þar sem fram fór bóklegt nám.
Líkamsræk> varð fastur lið-
ur á námsskrá skólanna með
gildistöku íþróttalaganna frá
1940. Hver skóli þarf því að
minnast kosti að eiga einn góð-
an fimleikasal — búinn öllum
íþróttatækjum og áhöldum, sem
nauðsynleg þykja. Hjer skal
ekki gerð sjerstök grein fyrir
heppilegri stærð og tilhögun
íþróttahúsa fýri. börn, þar sem
sæmileg reynsla hefir fengist,
hvað það snerti En það er þó
ástæða til að minna á það, að
valrast ber, aþ búningsklefar
fimleikahúsa sjeu gerðir of litl-
ir. Þá er nauðsynlegt, að í sam-
bandi við baðklefa sje sjerst.
klefi, þar sem nemendur geti
þerrað sig að loknu baði og síð
an farið þurrir inn í búnings-
klefána.
Því miður er langt frá því, að
handiðja og verklegt nám eigi
sjer eins veglegan sess og vert
væri í barna- og unglingaskóla
kerfi okkar Islendinga. Að
sumu leyti má segja, að þetta
sje vegna skorts á sjermennt-
uðum kennurum. En hitt mun
þó algengara, að skilyrði til
verklegrar kennslu sjeu næsta
aumleg innan margra skóla,
vegna húsnæðis- og áhalda-
leysis. Úr þessu verður að bæta,
þegar nýir skólar eru byggðir.
Verklegt nám þarf að auka
innan skólanna. Og það á að
vera raunhæft og hafa hagnýtt
gildi fyrir nemandann. Það á að
vera annað og meira en lítil-
fjörlegt föndur við óraunhæfa
hluti, sem koma barninu og ung
lingnum að litlu eða engu haldi;
í lífinu. A margan hátt á verk-
lega námið að vera börnum og
unglingum haldgóður undirbún
ingur að væntanlegri þátttöku
þeirra í atvinnulífi þjóðarinnar.
En til þess að þetta geti orðið,
þarf hver sá skóli, sem rís nýr
af grunni, að vera þeim kost-
um búinn, að verklega náminu
hafi verið þar hæfilegur stakk-
ur skorinn, hvað' snertir hús-
rými og nauðSynlég áhöld.
Aumur er sá skóli, sem ekki.
á sæmilegt bókasafn. Barna-
skólar, engu síður en framhalds
og sjerskólar, þurfa að eiga góð
og aðgengileg bókasöfn ásamt
lestrarsölum, þar sem nemend-
urnir geta unað í frístundum
við lestur góðra bóka, undir eft-
irliti og umsjón kennara.
Bandaríkjamenn kalla skóla-
bókasöfnin hjörtu skólanna,
enda er yfirleitt' vel búið að
bókasöfnum bandarískra skóla,.
lægri sem æðri. Og þannig ættu
íslendingar, sem tvímælalaust'.
standa Bandaríkjamönnum
framar sem bókmenntaþjóð, að
virða og meta skólabókasöfn
sín og forðast að gera þau að
hornrekum innan skólanna
vegna ills aðbýmaðar og hirðu-
leysis
Lestrarsalur er nauðsynlegur
við hvern skóAa. Velgefnum og
bókhneigðum börnum, sem hafa-
erfiðar heimilisástæður og lítið
næði til lestrar heima hjá sjer,
mun það kærkomið að geta leit-
að í lestrarsal skólans til að lesa
sjer ýmislegt til fróðleiks og
skemmtunar eða leysa úr náms.
verkefnum næsta dags.
Við nokkra stærri barna-
skóla landsins hefir verið tek-
in upp sá skynsamlegi siður að
ráða hjúkrunarkonur — til að
annast eftirlit með hreinlæíi
barnanna og fýlgjast með heil-
brigði þeirra. — Það má telja
sjálfsagt, að við hinn nýja
barnaskóla Akraness verði ráð-
in hjúkrunarkona. Skólinn
þyrft'i því að hafa Sjerstaka
stofu fyrir hjúkrunarkonuna og
Starfsemi hennar. í þessari
stofu yrðu geymd nauðsynleg
hjúkrunargögn, sem hverjum
skóla er skylt að hafa. í sam-
bandi við þessa sjúkrastofu ætti'
nauðsynlega að vera ljóslækn-
ingastofa, þar sem þau skóla-
börn, er með þyrftu, gætu geng-
ið í ljósböð yfir vetrarmánuð-
ina.
Auk kennslustofa fyrir al-
mennar námsgreinar og þeirra,
sem nú hafa verið nefndar, á
hver skóli að hafa samkomu-
sal, skrifstofu fyrir skólastjóra,
kennarastofur og herbergi fyr-
ir húsvörð og umsjónarmann.
Tveir skólar í stað eins. Plest-
ir þeir, sem jeg hefi átt tal við
um skólamálin á Akranesi,
hugsa sjer, að þar verði á næst-
unni aðeins reist eitt barna-
skólahús. En jeg vildi óska, að
forráðamenn skólamálanna
tækju það til rækilegrar at-
hugunar, hvort ekki væri hyggi
Framh. á bls. 11