Morgunblaðið - 19.08.1947, Blaðsíða 5
I^riðjudagur 19. ágúst 1947
MORGUNBLAÐIÐ
5
i
Pandjab o§ Bengal skipt
milli Indlands og Pakistan
f ■■■
Múhameðstnjarmefln óánægðír með
skiftinguna.
í •
New Delhi í gærkvöldi.
NEFND SÚ, sem fengið var það hlutverk að skifta hjeruð-
unum Pandjab og Bengal milli Indlands og Pakistan, hefur nM.
skilað áliti. Pandjab verður skift þannig, að Pakistan fær hlaf- ’
uðborg fylkisins, Lahore, en Indland Amritzer, sem er HeiKSfg j
borg Shikanna. Bengal skiftist þannig, að Pakistan fær Chift'a- .
gong, en Indland Calcutta.
í nefndinni áttu sæti fimnú>
menn tvéir fulltrúar frá hvoru
ríkinu, Indlandi og Pakistan,
en oddamaðurinn Var breskur.
í skýrslu sinni um störf nefnd-
arinnar segir hann, að fulltrú-
ana fjóra hefði greint á um
hvert einasta atriði, svo að hann
hafi sjjdfur orðið að ráða úr-
slitum með atkvæði sínu.
Nehru og Jinnah í Amritzar.
Þeir Jinnah, iandsstjóri í
Pakistan og Nehru, forsætis-
ráðherra Indlands, komu til Am
ritzar í dag, ásamt ýmsum ráðu
nautum sínum. Þegar er það
spurðist, að þeir væru komnir
til borgarinnar, lægði óeirðirn-
ar, sem geisað hafa í borginni
látlaust síðustu dagana. 1
Pi istanstjórn óánægð.
,! jórnin í Pakistán hefur
þt n’ gagnrýnt harðlegá nið-
uj öður landamæranefndar-
ir -. Forustumenn Pakistan
or dlands höfðu fyrirfram
sh bundið sig til þess að hlíta
ni rtöðu nefndarinnar, en
fr' rritarar óttast, að óeirðir
ki ' nú að magnas)
Aðalfundur Skóg-
rækfarfjelags
Reykjavíkur
AÐALFUNDUR Skógræktar
fjelags Reykjavíkur var hald-
inn í Fjelagsheimili Verslun-
armanna s.l. föstudag, og gerð-
ist þetta helst á fundinum:
Formaður fjelagsins, Guð-
mundur Marteinsson verkfræð
ingur, setti fundinn og kvaddi
Dr. med. Helga Tómasson til
fundarstjóra, en H. J. Hólm-
járn efnafræðingur skráði
fundargerð. Formaður minntist
nokkrum orðum nýlega látins
varastjórnarmeðlims, Árna B.
Björnssonar gullsmiðs,
Varastjórnarmeðiimur var
kosinn í stað Árna B. Björns-
sonar og hlaut Daníel Fjeld-
sted læknir kosningu.
Tveir menn gengu úr stjórn,
en voru báðir endurkosnir.
Þá voru kosnir 10 fulltrúar
á aðalfund Skógræktarfjelags
íslands, sem haldinn verður í
Vaglaskógi 30. og 31. ágúst.
ranska samsteypu-
stjórnin feig?
ésiðlssfar vilja gagngera breyfingu á
ínu stjórnarinnar í ýmsum mikilsverð-
un málmn
„ELSKIÐ MIG — elskið hund
inn“, kallar breskt firma höf-
uðklúta, eins og þá, sem sjást
hjer á myndinni. Hundaeigend-
ur hurfa ekki annað en að
koma með Ijósmynd af seppa
sínum og geta þá fengið mynd
hans í fullri stærð á höfuð-
lilÚt.
15 jsúsund fíírar af
áfenp öli brngga®
s.l. ár
ÁRIÐ, sem leið voru brugg-
aðir 15,147 lítrar at áfengu öli
hjer á landi. Ö1 þetta var sðeins
selt til erlendra setuliðsmanna.
Á árunum 1942 til 1945 voru
árlega bruggaðir um' og yfir
200,000 lítrar áfengs öls fyrir
setuliðsmenn á Islandi.
Er frá þessu skýrt í síðustu
Hagtíðindum. Þar er og skýrt
frá öðrum innlendum tollvöru-
tegundum, sem framleiddar eru
hjer á landi, en þær eru m. a.
öl og gosdrykkir, sælgagti o. fl.
Gefið er upp að framleiddir
hafi verið 54 lítrar af óáfengu
víni hjer á landi, nærri 581 þús.
lítrar maltöls, rúmlega 1 milj.
lítrar af óáfengu Öli og nærri
2 milj. lítra af gosdrykkjum,
en 77 þús. lítrar af sódavatni.
103 smálestir af átsúkkulaði.
Af sælgæti var :n. a. fram-
leitt hj%r á landi 103 smálestir
af átsúkkulaði, 62 smálestir af
brjóstsykri, 211 smálestir af
konfekti og 60 smálestir af kara
mellum og 16 smál. af lakkrrís.
PARlS í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins i'rá Rcuter.
ÞINGI franska sósíalistaflokksins lauk í morgun í Lyons. í
lok þingsins bar framkvæmdastjóri flokksins fram áiyktun, sem
samþykkt var, en þar var óskað eftir gagngerðri breytingu á
stefnu stjómarinnar varðandi ýms mikilsverð mál.
Meðal annars er þess farið
á ieit, að stjórnin tryggi lands
mönnum alla hveitiframleiðslu
í landinu og gerðar verði ráð-
stafanir til þess að útvega til
landsins ýmsar nauðsynjavör-
ur. Ennfremur er úhersla lögð
á það, að stjórnin fceiti sjer fyr
ir auknum afskiptum ríkisins
af efnahags- og framleiðslu-
jnálum.
Frjettaritarar telja, að eftir
gamþykkt ályktunar þessarar
jnuni Ramadier forsætisráð-
lierra reynast erfitt að halda
gamsteypustjórninni áfram við
£:öld, þar sem mjög vafasamt
sje, að stuðningsflokkar henn-
ar geti sætt sig við.þær stefnu
breytingar, sem þing sósialista
flokksins hefur farið fram á.
Ástándið í Indokína.
Meðal annars var áhersla
lögð á það í fyrrneíndri álykt-
un, að stjórnin sæi svo um að
þegar yrði komið á fullum friði
í Indókína. — Stjórnin hafði
setið á fundi í morgun til þess
að ræða ástandið í Indóldna og
ætlaði að koma saman aftur í
fyrramálið í. sama skyni, en
þeim fundi hefrur nú verið af-
lýst.
Nilsson seftl sæiisif
met í kúlEivarpl
Á SÆNSKA meistaramótinu
í írjálsum íþróttum, sem fram
fór um síðustu helgi vann Ro-
land Nilsson kúluvarpið á nýju
sænsku meti, 15,93 m.
100 m hlaupið vann Lennart
Strandberg á 10 9 sek. Dani-
elsson var annar á 11,0. — 200
m hlaupið vann Curt Lund-
kvist á 22,1 sek. Tími Strand-
bergs er sá sami. og Haukur
Clausen náði hjer í 100 m hlaup
inu og 2/10 sek. lakari en tími
Finnbjörns. I 200 m hlaupinu
er tími Lundkvist sá sami og'
tím.i Hauks. Er Lundkvist var
hjer í sumar unnu þeir Finn-
björn og Haukur hann báðir í
100 og 200 m.
Fiskiðjusamlag útvegs-
manna stofnað á
ísafirði
Bæjarsjóður og úfgerðarmenn sameinasf
um eHf fiskiðjaver
S.l. SUNNUDAG var stofnað á ísafirði Fiskiðjusamlag út-
vegsmanna þar á staðnum. Að fjelaginu standa utgerðarfjelög
in, Huginn h.f., Muninn h.f., togaraútgerðarfjelagið Isfirðingur
h.f., Njörður h.f., Skutull h.f. og ennfremur Arngrimur Bjarna
son útgerðarmaður og Kaupfjelag ísfirðinga. Þá er bæjarsjóðm'
Isafjarðar einn af stofnendum.
Kjainesingar unnu
Borgfirðinga
UM síðustu helgi fór fram í-
þróttakeppni milli Ungmenna-
sambands Borgfirðinga og Ung
mennasambands Kjalarness-
þings. Úrslit urðu þau, að Kjal
nesingar unnu með 9013 stig-
um, en Borgfirðingar hlutu 8951
stig.
I einstökum greinum urðu
þetta bestu árangrarnir:
100 m hlaup: — 1. Halldór
Lárusson, UMSK, 11,5 sek. 2.
Magnús Ingólfsson, UMSB,
11,8.
400 m. hlaup: — 1. Jón Berg
þórsson, UMSB, 54,5 sek., 2.
Sigurjón Jónsson, UMSK, 55,2
sek.
Langstökk: -—• 1 ITalldór Lár
usson, UMSK, 6,74 m. 2. Sveinn
Þórðarson, UMSB, 6,08 m.
Hástökk: ■—• 1. Sigurjón Jóns
son, UMSK, 1,64 m. 2. Jón Þór-
osson, UMSB, 1,64 m.
Þrístökk: — 1. Halldór Lár-
usson, UMSK, 13.36 m. 2. Kári
Sólmundarson, UMSB, 13,29 m.
Kúluvarp: — 1. Kári Sól-
mundarson, UMSB, 12,18 m. 2.
Ásbjörn Sigurjónsson, UMSK,
12,05 m.
Kringlukast: — 1. Pjetur
Jónsson, UMFB, 34,65 m. 2.
Halldór Magnússon, UMSK,
34,51 m.
Spjóíkast: — 1. Sigurjón
Jónsson, UMSK, 39,00 m. 2.
Sigurður Eyjólfsson, UMSB,'
36,37 m.
Veður var ekki gott. Hlaupið
og stokkið var undan vindi, og'
400 m. á beinni braut. Þetta er
í þriðja sinn, sem þessi keppni
fer fram. Hafa Borgfirðing'ar
unnið tvisvar en Kjalnesingar
London í gærkvöldi.
VIÐSKIFTANEFND frá
Júgóslavíu er komiu til London
og hóf hún þar í dag viðræður
við breska fulltrúa. Aðalfull-
trúi Breta við þessor viðræður
verður Harold Wilson, ráðherr
ann, sem fjallar um utanríkis
viðskipti. Hann hefur að und-
anförnu verið fyrir bresku full
trúunum á alþjóða viðskipta-
málaráðstefnu í Genf, en það
an kom hann loftleiðis til Lond
on í morgun. — Reuter,
^ Stofnfje er 700 þús. krónur
og hefur Isafjarðarkaupstaður
lofað 200 þús. kr. af því.
Tilgangur samlagsins er að
byggja á Isafirði fiskiðjuver
þar sem fram fari hraðfrysting
fiskjar, lýsisbræðsla, niðursuða
og fiskimjölsframleiðsla.
Hefur hinu nýja iðnfyrir-
tæki þegar verið valinn staður
á hafnaruppfyllingunni sem
verið er að byggja.
Nýbyggingarráð hafði áður
en það skilaði af sjer störfum
heitið Isfirðingum einnar milj-
ón króna láni úr stofnlánadeild
sjávarútvegsins til þessa fyrir-
tækis.
Vorið 1946 voru stofnuð tvö
fjelög á ísafirði með það fyrir
augum að byggja urnrætt fisk
iðjuver eh nú hafa hæði þau
fjelög verið lögð niður og eitt.
fjelag stofnað í stað þeirra.
Hafa þannig allir kraftar út-
gerðarinnar og bfi'jarsjóðs ver
ið sameinaðir um það.
I stjórn hins nýja fjelags
voru þessir menn kosnir: Kjart;
an J. Jóhannsson iæknir, Ölaf
ur Guðmundsson fiamkvæmda
stjóri, Arngrímur Fr. Bjarna
son útgerðarmaður, Birgir
Finnsson forstjóri og Ketill.
Guðmundsson kaupfjelagsstjóri
Ásberg Sigurðsson bæjar-
stjóri var fundarstjóri á stofn
fundinum.
4400 Gyðinga
Marseilles í gærkvöldi
GYÐINGARNIR 4400, sem.
undanfarna 19 daga hafa dval.
ist um borð í þrem breskum
skipmn við Miðjarðarliafsbæ-
inn Port de Bouc i grennd við
Marseilles, hófu í rnorgiii;
hungurverkfall í mótmæla-
skyni við þá ákvörðun bresku
stjórnarinnar að leyfa þeim
ekki landvist í Palestinu. En
skip þeirra var stöðvað á leið
til Palestínu, og þeir fluttir til
Frakklands í breskum skipum
— Frönsk góðgerðr.fjelög hafc
sjeð Gyðingunum fyrir matvæl
um að undanförnu, en er mai
vælabögglar hárust til skipsins
í morgun, voru þeir íeridir aft
ur óopnaðir og sú orðsending
látin fylgja með til stjórnar
góðgerðafjelagsins, að matar
yrði ekki ney tt um horð í skip
unum af fyrgreindum ástæð-
um.
Breski aðalræðismaðurinn í
Marseilles mun setja sig i sam
band við bresku stjórnina og
leita fyrirmæla um það, hvað
eigi til bragðs að taka. Reutcr,