Morgunblaðið - 22.09.1949, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 22. sept. 1949.
Útg.: H.l. Árvakur, Reykjavfk.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson.
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla:
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 12.00 á mánuði, innanlands,
kr. 15.00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með LesbóE.
Mikilsverð viður-
kenning
í TÍMANUM fyrir skömmu er komist þannig að orði:
„Flestir munu ætla að það sje ærið starf fyrir einn
mann að vera dómsmála- og utanríkisráðherra, þar ?em
hann er og jafnframt formaður nefndar, sem á að semja
nýju stjórnarskrána. Þegar slíkur maður getur jafnhliða
slíkum störfum, skrifað heila síðu í Mbl. daglega, hlýtur
hann annaðhvort að vera frábær hamhleypa eða hann
rækir ekki of vel trúnaðarstörfin fyrir þjóðina“.
Hverjum er nú Tíminn að lýsa með þessum orðum? Það
er auðsjeð. Maðurinn, „hamhleypan“ er Bjarni Benedikts-
son utanríkisráðherra.
Tíminn hefur verið sjerstaklega óheppinn í þetta sinn mns
og raunar oft áður. Tilgangur hans var að deila harðiega
á einn af fremstu leiðtogum Sjálfstæðisflokksins. En niður
staðan varð sú að hann vakti fyrst og fremst athygli á því
greinilegar en áður hefur verið gert, að utanríkisráðherr-
ann er frábær afkastamaður. Það er nefnilega staðreynd,
sem allir nema sturluðustu kommúnistar og þröngsýnustu
Tímaklíkumenn viðurkenna, að Bjarni Benediktsson vinn-
ur störf sín sem utanríkis- og dómsmálaráðherra af þeim
dugnaði og árvekni, sem tryggir þjóð hans trausta forystu
á sviði þessara þýðingarmiklu mála.
aiT"~
Þetta er heldur ekkert undarlegt. Bjarni Benediktsson
tók í æsku hæsta lögfræðipróf, sem tekið hafði verið. Hann
varð síðar prófessor í lögum við Háskóla íslands og þótti
afburða kennari. Það sætir engri furðu þótt maður með slíka
þekkingu og reynslu verði nýtur dómsmálaráðherra þegar
ruk þess er vitað að hann er sjerstaklega skyldurækinn og
afkastamaður að hvaða verki, sem hann gengur.
Engan þarf heldur að undra þess að stjórn utanríkismál-
anna hefur farið Bjarna Benediktssyni vel úr hendi. Utan-
ríkismálin eru þýðingarmestu sjálfstæðismál hverrar þjóð-
ar. Bjarni Benediktsson er sonur eins þess stjórnmála-
manns íslendinga, sem af mestum drengileik og glæsi-
mennsku hefur tekið þátt í frelsisbaráttu þjóðarinnar. Á
bernskuheimili Bjarna Benediktssonar var það málstaður
íslands og hann einn, sem markaði stefnuna í þjóðmálun-
um. Upp úr slíkum jarðvegi er utanríkisráðherra íslands
sprottinn. Öll framkoma hans og stjórn á utanríkismálum
þjóðar hans hefur verið í samræmi við uppruna hans og
ætterni. Bjarni Benediktsson hefur á erfiðum og viðsjálum
tímum farið með þessi vandasömu og viðkvæmu mál.
Hann hefur gert það á þann veg, að öll þjóðin, að undan-
teknum hinu óða málaliði Stalins og einstaka Tímaklíku-
jóðlara, hefur lokið upp einum munni um ágæti forystu
hans. -
Undir forystu Bjarna Benediktssonar hefur verið unnið
að því að treysta markaði íslenskra afurða og afla nýrra.
Jafnhliða hafa tengslin við hinar vestrænu lýðræðisþjóðir
orðið traustari og þáttur íslands í alþjóðasamv. meiri. Hefur
það haft mikil áhrif landinu til álitsauka og beins hagnaðar.
Það sætir engri furðu þótt kommúnistar fjandskapist
meira við slíkan stjórnmálamann en nokkurn annan. Þeir
vilja ekki að ísland treysti aðstöðu sína út á við með sam-
vinnu við hinar vestrænu lýðræðisþjóðir. Meðan þeir ekki
geta lagt það undir járnhæl kommúnismans og Komin-
form vilja þeir halda því einöngruðu og vinasnauðu. Þess-
vegna hafa landráðasneplar þeirra keppst um að svívirða
Bjarna Benediktsson fyrir hina jákvæðu og raunhæfu utan-
ríkisstefnu hans.
Hitt sætir nokkurru furðu að blað „milliflokksins“ skuli
ganga í bandalag við landráðaklíkuna um róginn. En það
hefur óvart sagt það, sem það þó síst vildi, nefnilega það,
aðúfánríkisráðherrann sje óvenjulégur afkástamaður, sann-
kölluð hamhleypa. Fyrir þá viðurkenningu er rjett og skylf
að þakka Tímanum.
En hinar móðursýkiskenndu árá$ir komtnúnista, og „niilli-,
ílokksins“ munu hvorki saka utanríkisráðherran nje Sjálf-
stæðisflokkinn.
t-ar:
'uerji óhrij^a
ÚR DAGLEGA LÍFINU
Tvær umkvartanir.
TVEIR kunningjar hafa nýlega
beðið um, að komið yrði á fram
færi áhugamálum þeirra. Ann-
ar hefir áhyggjur af umferð-
inni og ákveðnar tillögur í því
máli. Hinn maðurinn ræðir al-
varlegt mál en það er peninga-
sníkjur barna á götunum.
Umferðarmálin eru oft rædd,
en hitt er sjaldgæfara, að heyra
kvartað undan betlurum á
Reykjavíkurgötum, öðrum en
,,rónunum“ svonefndu.
Og án frekari málalenginga
frá minni hálfu, þá eru hjer
umkvartanirnar:
•
Til Kvers eru
gulu strikin?
TIL hvers eru gulu strikin?
spurði maður mig í gær og
benti á strikin, sem máluð voru
á sínum tíma þvert yfir Aust-
urstræti og Pósthússtræti, þar
sem þessar fjölförnu götur sker
ast.
— Spurðu lögregluþjóninn,
svaraði jeg, og benti honum yf-
ir á gangstjettina við Lands-
bankahornið, þar sem einn af
hinum myndarlegu vörðum lag-
anna var staddur.
•
Eins og tunnugjörð.
MAÐURINN með gulu strikin
á heilanum tautaði eitthvað í
barm sjer og skundaði á brott,
ekki til lögregluþjónsins, held-
ur í áttina frá honum.
Hann hefur að líkindum ekki
nent að standa í því að spyrja
lagavörðinn til hvers gulu strik
in á götunni væru.
Jeg gerði það ekki heldur, en
jeg velti spurningunni svolítið
fyrir mjer. Sannleikurinn er sá,
að hjer er spurning, sem veltur
jafnvel betur en splunkuný
tunnugjörð.
Strikin hafa engin
áhrif.
SANNLEIKURINN er ennfrem
ur sá, að bílstjórar hafa að engu
þessi gulu strik, sem gangandi
fólki er ætlað að ganga á milli.
Á hornum Pósthússtrætis og
Austurstrætis stöðva bifreiða-
stjórarnir nær undantekningar-
laust bíla sína á gulu strikun-
um, ekki við þau, eins og ætl-
ast er til. Þeir leggja bílunum
þvert yfir gangbrautina — fót-
gangandi menn komast alls
ekki yfir götuna, án þess að
fara út fyrir svæðið, sem strikin
marka.
•
Grindverkum
komið upp.
JEG hefi enn ekki sjeð lögreglu
þjón skifta sjer af þessu. Hins-
vegar mun lögreglan hafa átt
hönd í bagga með að setja upp
grindverkin á hornunum þarna,
en þau grindverk eiga víst að
koma í veg fyrir það, að gang-
andi fólk álpist út á miðja götu,
þar sem bílarnir mætast úr
þremur áttum. Þessi grindverk
munu einnig eiga að vísa veg-
farendum, það ðf að segja þeim,
sem fótgangandi eru, leiðina
að gangbrautunum innan gulu
strikanna.
•
Enginn getur brotið.
EF' bílstjórar halda áfram að
stöðva farartæki sín á þessum
gangbrautum, fæ jeg ekki ann-
að sjeð en að lögreglan verði
að beita sjer fyrir því, að grind-
verki verði einnig slegið upp
um þær.
Þetta mun að vísu stöðva alla
umferð um Austurstræti og
Pósthússtræti, en hvað um það,
allir ættu að vera ánægðir, því
þá geta hvorki þeir fótgang-
andi brotið lög á bílstjórunum
nje bílstjórarnir á þeim fót-
gangandi“.
Þetta var umkvörtun nr, 1. —
Hræddur er jeg um, að þetta
lagist ekki fyr, en „Ceres kem-
ur og Flóra fer“, en það verður
um það leyti sem umferðarljós-
merkin koma á aðalgöturnar í
Reykjavík. Og svo er það um-
.kvörtun nr. 2:
Peningar fyrir
„strætó“.
,,ÞAÐ er að ágerast — um á-
stæður er mjer ekki kunnugt —
að börn biðji ókunnuga að gefa
sjer peninga. Það er þannig
hreint ekki svo óalgengt á Lækj
artorgi, að krakkar biðji um
peninga fyrir strætisvagni,
stundum jafnvel tvö eða þrjú í
einu.
Vafalaust ætla einhver af
þessum börnum að nota pening-
ana til þess að komast heim
með strætisvögnunum, en þau
eru líka mörg, sem með þessu
eru að reyna að ná sjer í aura
fyrir sæigæti.
eftir
Enginn sjer
aurunum.
ÞETTA er óviðfeldið, og for-
eldrar, sem að þessu komast
um börn sín, ættu að harðbanna
þeim betlið. Það getur komist
upp í vana, og þótt enginn sjái
að sjálfsögðu eftir 50 aurum
handa prúðum pilti eða lítilli
stúlku, kann sá hinn sami illa
við það, að sjá lítil börn í aura-
sníkjum á þennan hátt.
Það er altaf og allsstaðar
leiðinlegt að sjá smábörn biðja
ókunnugt fólk að gefa sjer pen-
inga og það má ekki koma þeim
upp á það, að sníkja“.
IMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMIMMMMMIIMIMI
IMftll mlllllllllllltllMIIIIIIIIMMMIM IMIMI
IMMMMMMMMI
MEÐAL ANNARA ORÐA . . . .
iiiiimimiiiiiiiiimimiiiimimiimimiiiimmmiiimiimiimimmmiimiimimimiiiimimiimimiiimimimiiiiiiimimimiiiimmmiimi^
Aukning dauðsfalla og ofdrykkja í Tjekkóslóvakíu.
Eftir frjettaritara Reuters
í Prag.
SÍÐUSTU skýrslur frá t)3kk-
nesku hagstofunni sýna, að
dauðsföllum hefur fjölgað í-
skyggilega mikið í Tjekkósló-
vakíu síðan stjórn kommúnista
komst til valda í landinu. Sam-
tímis hefur áfengisneysla auk-
ist svo mikið, að ástandið í
áfengismálum landsins er talið
mjög alvarlegt.
• •
ALMENN DAUÐSFÖLL
13,4%0.
SAMANBORIÐ við styrjaldar-
árin minnkaði barnadauði í
Tjekkóslóvakíu fyrri hluta 1948.
En s.l. haust fór barnadauðs-
föllum aftur að fjölga af óskilj-
anlegum ástæðum.
Á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs jukust almenn dauðs-
föll úr 11,6 á hverja þúsund
íbúa í 13,4. Og barnadauði jókst
úr 76 á 1000 í 93 og stendur
Tjekkóslóvakía nú aftar flest-
um löndum Vestur-Evrópu.
• •
SJÚKRAHÚSÞÖRF
EYKST.
OPINBERAR skýrslur sýna
einnig, að sjúkrahúsþörf þjóð-
arinnar hefur mikið aukist. —
Ríkissjúkrahúsum hefur íjölg-
að, en einkasjúkráhúsúm fækk- ^
áð úr 65 í 18, vegna stefnu
stjórnarinnar að þjóðnýta
sjúkrahús.
En samtímis hefur mjög bor-
ið á því í Tjekkóslovakíu, að
aðbúð sjúklinganna hefur versn
að. Sumir sjúklingar segja, að
öll þjónusta á sjúkrahúsunum
sje hrakandi og það sem er
verst, að þar sem ríkið hafi tek-
ið að sjer rekstur allra stærstu
sjúkrahúsanna, þá geti sjúkling
arnir ekki valið á hvaða sjúkra-
húsi þeir dveljist, heldur sje það
allt ákveðið af skrifstofumönn-
um ríkissjúkrahúsanna. Urn lyf
er það að segja, að langtum er
orðið erfiðara með útv.;gun
lyfja en fyrr.
MIKILL LYFJASKORTUR
EITT leiðasta dæmið upp á lyf ja
leysið í landinu er mál, sem
nokkuð hefur verið rætt um
undanfarið. Það var ungur mað
ur sem þjáðist af slæmum
berklum. Foreldrar hans fengu
flutt inn streptomycin, en bað
gagnaði ekki, sonur þeirra dó.
En rjett þegar hann lá í andar-
slitrunum, komst það upp, að
hjúkrunarkonan, sem var frá
ríkissjúkrahúsunum, — hafði
sprautað vatni í sjúklinginn, en
tekið streptomycinin og selt
það á svörtum markaði.
OFDRYKKJUMEINIÐ
BINDINDISF.IF.LÖG i Tjelikó-
slóvakíu hafa hert á „báráftu
gegh öfdrýkkju“, en það virðist
lítið gagna því að aldrei hefúh
drýkkjuskápurinn verið jjafn
geigvænlegur í landinu og nú.
Hagskýrslur sýna, að árið
1946 var keypt áfengi fyrir
13.000.000.000 tjekkneskar kr.
Síðan hefur neyslan aukist um
5.000.000.000. tj. krónur. — Á
síðastliðnu ári nam neysla
áfengis og tóbaks næstum
fjórða hluta af þjóðartekjun-
um.
Samtímis var skýrt frá því. að
120.000 ofdrykkjutilfelli hefðu
verið síðastliðið ár.
I _____________________
i
| Rússar níða forseta
I Vesfur-Þýskalands
MOSKVA, 20. sept.: — í dag
sakaði Moskvaútvarpið hinn
j nýkjörna forseta V-Þýskalands,
Theodor Heuss, um að hafa
stutt þýsku nasistana eftir að
Hitler brautst til valda.
Sagði útvarpið m.a., að V.-
Þýskaland væri friðinum í Ev-
rópu ógnun. Heuss hefði skrif-
að margar greinar í málgagn
nasistanna Der Reich, þar sem
hann hefði látið samúð í ljós
með þeim. „Heuss var eitt sinn
íylgisvsinn ;Hitlers, > nú -e® hann
forseti: V.-Þýskalands og þjónn
auðvaldsríkjanna'1, sagði þar
ennfremur. .. i
| Um Adenauer forsæt.isráð-
I her ra sagði, að hann hefði verið
einkavinur Görings. — Reuter.