Morgunblaðið - 22.09.1949, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.09.1949, Blaðsíða 16
VEÐURUTLIT — FAXAFLÓI: S- eða SV-kaldi. Skýjað sunnan til en ljettskýjað aíYi t Leitað eftir nýjum ráðum til varnar íslandi. (Sjá grein á bls. 9). norðan til. 216. tbl* — Fimmtudagur 22. september 1949. 20 skip á leið inn með 10—12 þús. In. síldar ÐAGURINN í gær, er vafalaust mesti afladagur síldarvertíð- ! arinnar í ár. í gærkvöldi voru 21 skip á leið til Siglufjarðar j og Eyjafjarðarhafna með milli 10.000 og 12.000 tunnur síld- í ar til söltunar. Þessa síld veiddu skipin öll á Grímseyjarsundi, í gærdag, en þar hefur lítil sem engin veiði verið í sumar, svo i sem kunnugt er. Tilbúið um áramótin. 936 verslanir Byrjaði í fyrrakvöld í fyrrakvöld kom síldin upp á Grímseyjarsundi og voru þar þá tvö skip. Sigurður SI og Á- gúst Þórarinsson. — Fékk Sig- urður 600 tn. og Ágúst 300 tn. Þetta sama kvöld, þ- e. í fyrra- kvöld, voru hin skipin öll sem enn eiu á veiðum austur á Þistilfirði og fengu þau öll góð an afla. í gær Allur síldveiðiskipaflotinn var á Grímseyjarsundi í gær að tveim undanskildum er voru á Þistilfirði. — Þau munu eng- an afla hafa fengið. Aflahæstu skip á Grímseyjarsundi, eftir daginn í gær, voru Helgi Helga son, Eyjum, með 1500 tunnur síldar og Snæfell með sama tn,- .fjölda. Hin skipin voru einn- ig öll með mjög góðan afla. Aldrei á þessu sumri hefir síld in verið uppi jafn nærri Siglu firði. Sum skipanna þurftu að- eins að sigla tvo til þrjá tíma á miðin. ! Söltunarerfiðleikar. Siglfiiðingar sáu fram á all- mikla erfiðleika við söltun afl- ans. Flest aðkomufólk er farið heim og því augljóst að mikil vinna verður þar fyrir. Veiðin í fyrradag. í fyrradag. fengu þessi skip síld' á Þistilfirði: Fagriklettur 800 tn., Snæfell 120, Ingvar Guð jónsson 450, Dagur 400, Særún 450, Straumey 300, Arnarnes 300, Stjarnan 300, Víðir SU 300, Helga 300 og Helgi Helgason 100 tn. Á Grímseyjarsundi. Hjer á eftir fer yfirlit um afla síldveiðiskipanna er voru á Grímseyjarsundi í gær: Helgi Helgason 1500 tn., Stígandi 200, Njörður 300, Bjarmi 400, Sigurð- ur 400, Snæfell 1500, Auður 600, Álsey 300, Helga 500, Hannes Hafstein 200, Ág. Þórarinsson 800, Arnarnes 300, Víðir 100, Súlan 400, Ingvar Guðjónsson 300, Siglunes 250, Dagur 400, Pólstjarnan 900, Straumey 200, Narfi 600 og Sjöstjarnan var einn ig á leið til Siglufjarðar með góðan afla, en hve mikinn var ekki vitað. «>- Frá iundi ríkisráðs- ins ígær Á RÍKISRÁÐSFUNDI 21. sept. 1949 skipaði forseti íslands: Pjetur Eggerz Stefánsson vararæðismann Islands í Brem erhaven og Harry Otto Johnson ræðismann íslands í Mexico með aðsetri í Mexicoborg. Á sama fundi setti forseti ís- lands: 1. Bráðabirgðalög um breyt- ing á lög nr. 56, 7. maí 1946, um breyting á 1. nr. 80, 7. sept. 1942, um kosningar til Alþing- is. — 2. Bráðabirgðalög um breyt- ing á lögum nr. 51/1940 um gengisskráningu og ráðstafanir í því sambandi. Ennfremur var staðfest breyt ing á reglugerð fyrir Háskóla íslands nr. 47, 30. júní 1942, þá var ennfremur fullgiltur milli- ríkjasamningur milli Islands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um gagnkvæma veitingu lífeyris. Á sama • fundi var þeim Magnúsi Pjeturssyni hjeraðs- lækni í Reykjavík veitt lausn frá embætti frá 1. jan. n.k. og Kolbeini Kristóferssyni hjeraðs lækni í Þingeyrarhjeraði veitt lausn frá embætti frá 1. nóv. n.k. að telja. Frá ríkisráðsritara. Viija reka júgéiiavíj úr PRAG, 21. sept. — Á fundi í alþjóðlega blaðamannasamband inu, sem nú er haldið í Prag bar ungverski fulltrúinn fram tillögu um að Júgóslavíu skuli vikið úr sambandinu. Rússneski fulltrúinn Judin studdi þessa tillögu. Hjelt hann ræðu og sagði, að allir júgóslavneskir bla 'amenn væru fasistar. Sjersiakar lokasýn- ingar á vinsæluni myndum AUSTURBÆJARBÍÓ hefur á- kveðið að taka upp þann hátt, að hafa sjerstakar lokasýningar á þeim myndum, sem vinsæl- ar hafa orðið. Munu þá loka- sýningarnar verða ein til tvær, eftir því sem aðsóknin verður að hverri mynd. í fyrradag tók Austurbæjar- bíó þetta fyrirkomulag upp er það sýndi myndina: Þess bera menn sár. — í kvöld verður sýnd þar gamanmyndin Ofvit- inn með Niels Poppe. Báðar þessar myndir verða sendar hjeðan með næstu ferð „Drottn ingarinnar“. jer i í HAGTÍÐINDUM ER FRÁ því skýrt, að hjer í Reykjavík hafi árið 1948, verið hjer í Revkja- vík 936 verslanir. er skiftast þannig, að heildsölu -og um- boðsverslanir eru 193, en smá- söluverslanir 743. Af smásöluverslununum eru 41 fiskbúð og 75 mjólkurbúðir. Matvöruverslanir eru 162 og fjölgaði þeim um sjö á árinu, vefnaðarvöruverslanir eru 165, þeim fjölgaði um tvær á árinu 1948. Verslanir þær, er versla með ýmsar vörur, eru 123. Skó- búðirnar og járnvöru- og bygg ingarvöruverslanir eru fæstar, 20 að tölu í hvorum flokki. ALLRI VINNU við Þjóðleikhúsið miðar nú vel áfram.’ Sam- tal við Hörð Bjarnason formann byggingarnefndar um gang verksins, er á 11. síðu blaðins. Karlmenn flelrá en konur Hagiíéindin skýra írá mannfjöldanum 1948 HAGTÍÐINDIN, sem nýlega eru komin út, skýra frá því, að um síðustu áramóti hafi íbúar landsins verið 138.502 að tölu og hafði fjölgað um 2.567 manns á árinu 1948. — í 11 kaupstöðum landsins búa 80.764. í sveitum landsins búa 57.738 og í 31 kauptúni og þorpi búa 17/427 manns. — Karlmenn eru nú fleiri en konur. Myndabók fyrir börn KOMIÐ er í verslanir mynda- heftið ,,Dýrin“. Er það ætlað börnum og hefir inni að halda myndir af ýmsum villidýrum. Fylgir hverri mynd vísubrot eftir Freystein Gunn- arsson, skólastjóra og einnig bókstafur hvers dýrs fyrir sig, svo sem L fyrir Ljón, T fyrir Tígrisdýr og H fyrir Hljebarði. Er sennilegt, að þetta kenni börnum að þekkja stafina og opni kannski um leið fyrir þeim nýja heima um tilveru einkenni legra dýra út um víða veröld. Heftið er ljósprentað hjá Litho- prent. Gromyko etjórnar. MOSKVA — Þar sem Grom- yko, varautanríkisráðherra fer ekki á allsherjarþing S. Þ. í New York, er talið, að hann veiti utan- ríkisráðuneyti Rússlands for- stöðu á meðan Vishinsky skrepp ur til Ameiíku. Kaupstaðirnir. Fjplmennustu kaupstaðirnir eru: Reykjavík með 53.384 íbúa, Akureyri með 6.761 íbúa, Hafn- arfjörður 4.699, Vestmannaeyj- ar 3.501, Siglufjörður 3.103, ísafjörður 2.830, Akranes 2.500, Neskaupstaður með 1293 íbúa, Sauðárkrókur með 992 íbúa, Ólafsfjörður 938 og Seyðis- fjörður 763 ibúa. Fjölmcnnustu sýslurnar. Gullbringu- og Kjósarsýsla er fjölmennasta sýsla landsins og telur 7793 íbúa, þá kemur Þingeyjarsýsla 5758, Árnes- sýsla með 5508, Eyjafjarðar- sýsla 4369, S. Múlasýsla með 4139, ísafjarðarsýsla ^70, Húnavatnssýsla 3417 og Snæ- fellsnessýsla með 3150 íbúa. Á árinu 1948 var Keflavík fjölmennasta kauptúnið á land inu, en það öðlaðist ekki kaup- staðarjettindi fyrr en á þessu ári sem kunnugt er. — íbúar í Keflavík eru 2.067 talsins. —- Næst fjölmennast er Húsavík með 1.213 ibúa. — Hin kaup- túnin og þorpin telja flest milli 300 og 400 íbúa. Á Þingeyri í Dýrafirði búa 319 manns en fá- mennasta þorpið telur 314 í- búa og er það Hnífsdalur. í Hagtíðindunum segir svo In. a.: Við bæjarmanntölin í Reykja vík voru alls skrásettir 53.836 manns árið 1947 og 55.037 árið 1948, en þar af voru taldir eiga lögheimili annarsstaðar 2.146 árið 1947 og 1.653 árið 1948. Þegar þeir eru dregnir frá, kem ur fram heimilisfastur mann- fjöldi í Reykjavík! Þegar borin eru saman árs- manntölin 1947 og 1948, þá sjest, að mannfjölgun á öllu landinu árið 1948 hefur verið 2.567 manns eða 1,9%. Er það mun minni fjölgun heldur en árið á undan, 1947. Þá var hún 3.185 manns eða 2,4%, en 1946 var hún aðeins 1.8% og 2.0% árið 1945. Árið 1948 hefur fólki í kaup- stöðum fjölgað um 2.269 manns eða um 2.9%. En í sýslunum hefur fólki fjölgað um 298 manns eða um 0.5%. í Reykja- vík hefur fólki fjölgað um 1 694 manns eða 3.3%. í 8 af hinum 1 kaupstöðunum hefur fólki fjölg að, en fækkað í 2, ísafirði og Seyðisfirði. BERLÍN — Mjög þykir ábóta- vant öryggisútbúnaði í námum þeim í Slesíu þar sem Rússar láta Þjóðverja vinna nauðungarvinnu við uraníumgröft. Nýlega hrundi námuveggur og gróf inni 27 fanga. Rússar mófmæla inn- göngu ífala í A.-banda- lagið MOSKVA, 21. sept. — Rúss- neska stjórnin hefur sent stjórn um ítalíu, Bretlands, Frakk- lands og Bandaríkjanna orð- sendingu, þar sem hún lýsir því yfir, að hún telur inngöngu Ítalíu í Atlantshafsbandalagið brot á friðarsamningum. Þeir hafa áður sent líka orðsendingu og er þetta ítrekun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.