Morgunblaðið - 22.09.1949, Page 11
Fimmtudagur 22. sept. 1949.
MGRGL'MiLAÐlÐ
11
s
Skrilstoluslúlka
vel fær, getur fengið atvinnu nú þegar.
VíNNUFATAGERÐ ISLANDS H.F.
SW 11 ^ 1 y II :
Vonduð husgogn ;
Vegna burtfarar eiganda af landi, hefi jeg verið j
beðinn um að selja: verulega falleg og vel með farin ■
borðstofuhúsgögn, úr norðurlandabirki ekki ljósu. |
Borð útdregtð 8 stólar þar af 2 með örmum, hlað- ;
borð, búningsborð (anrette) og tauskáp — einnig :
bægindastól í stíl. Ennfremur borðlampa útskorinn l
með silkiskermi, gullgylltann. Skrautborð útskorið gull- ■
gyllt með marmaraplötu. Skatthol mahogny með skáp- ■
um og leynihólfum. Tvöfaldan klæðaskáp, Kuban- j
mahogny með útdregnum hillum og spegli. Kúmstæði, :
einföld og tvöföld með eða án dýna. Dragkistu, fornan :
grip innlagðan. Skrifborð — mahogny og borð. Hvít •
svefnherbergishúsgögn. *
Komið til mín ef þjer viljið borða og sofa við ódýr, •
en verulega vönduð húsgögn. :
SIGBJÖRN ÁRMANN
Varðarhúsinu. l
16—18 óra piltur
■
■
getur fengið atvinnu við verslunarstörf. Umsóknir send- j
ist afgr. blaðsins fyrir 27. sept. merkt: ,Vers]unarslarf j
695“. j
Leikflokkurinn „Sex í híl“ j
■
■
sýnir sjónleikinn :
■
Candído
■
■
eftir G. B. Shaw :
■
í Iðnó í kvöld kl. 8,30. — Aðgöngumiðar seldir í Iðnó :
frá kl. 4—7 í dag, sími 3191.
V jelsög
(málmsög) í góðu standi til sölu. Upplýsingar í
JJ.f. Stidir
Jgfnstraumsmótorar 220 volt
Til sölu eru tvö stk- I ha. með mótstöðu, 1 stk. þó 1ia-
og tvö stk. % ha. Upplýsingar í síma 3599. •
Koiia til þess ú veita forstöðu i
fæðisáþlu, til starfánianna Landspítalans vantar frá 1. j
okt. næstkomandi. Umsóknir ásamt upplýsingum og ;
meðmælum sendist skrifstofu ríkisspítalanna fyrir ;
mánaðamót. I
Þjóðleikhúsið ve rður til-
búið um næstu áramót
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ ER að verða
tilbúið. Allri vinnu miðar þar
nú örugglega áfram. Allt efni
til þess að fullgera það er nú
komið og verið er að ganga frá
smíði leiksviðs og raflögnum.
Hörður Bjarnason skipulags-
stjóri, sem er form. byggingar-
nefndar þjóðleikhússins skýrði
blaðinu svo frá í gær, er það
leitaði tíðinda hjá honum um
þessar framkvæmdir, að húsið
Slæsileg bygging sem
injög er vnndnð til
Samtal við Hörð Bjarnasen skipulagssfjóra,
formann byggingarnefnsfar
myndi verða afhent til rekstrar
um næstu áramót ef engir ó-
fyrirsjáanlegir atburðir hiadr-
uðu vinnu við það.
Fagurt fordyri.
Jeg átti þess kost að h'tast
um í sölum þjóðleikhússins í
gær með formanni byggingar-
nefndarinnar og sjá, hversu
framkvæmdum er þar langt
komið. Jafnskjótt og inn er
komið blasir við fagurt fordyri,
rúmgott og bjart, klætt „íslensk
um marmara“, sem húsameist-
ari ríkisins hefur valið þar til
veggskreytingar og fyrstu til—
raunirnar voru gerðar með í
anddyri Háskólans. Eru það
gljáfægðar steinplötur, settar
silfurbergi og fleiri íslenskum
bergtegundum. Gólfið er lagt ís-
lenskum grásteinsflísum, en allt
er þetta unnið og steypt í hús-
inu sjálfu.
í anddyri er lokið við máln-
ingu í loftinu og í öllum göng-
um hússins og fatageymslum.
Verið er að koma fyrir hurð-
um og dyraumbúnaði. í fordyr-
inu verður komið fyrir högg-
myndum af ýmsum elstu og
þekktustu leikritahöfundum
okkar, svo sem Indriða Einars-
syni og Jóhanni Sigurjónssyni.
En Indriði Einarsson var eins
og kunnugt er einn aðalhvata-
maður að byggingu þjóðleik-
hússins.
Á veggjum og stiga
verður komið fyrir höggmynd-
um úr íslenskum þjóðsögum og
táknmyndum leik-, dans- og
sönglistar.
Áhorfendasalur.
Þegar komið er inn í áhorf-
endasalinn, virðist þar lítið
vanta nema sætin. Búið er að
þilja hann í hólf og gólf, mjög
fögrum viðarþiljum, er fengn-
ar voru í Danmörku. Verið er
að ganga frá gólfi og dúkleggja
það, annars verða þykk teppi á
göngum, stigum og sal.
Unnið er að því að gljáfægja
þiljur á veggjum, og hin sjer-
kennilega og fagra lofthvelfing,
sem formuð hefir verið eftir ís-
lensku stuðlabergi, hefir feng-
ið á sig þau litbrigði, er húsa-
meistarinn hefir ætlað henni,
og mun án efa verða einhver
mesta prýði þessa vandaða og
fagra húss.
Einnig hefir verið gengið frá
þiljum og málningu hins rúm-
góða forsalar á efri hæð, þar
sem leikhúsgestum er ætlað að
fá sjer hressingu milli þátta og
í hljeum'.
■ í hinum einstöku vistarver-
urn leikhússins, sem þiljaðar
eru viðarplötum, er efni marg-
breytilegt að lit og áferð.
" Strax og lokið er við að
fægja veggi í sal verður sætum
komið fyrir, en þau eru hin
vönduðustu, þægileg og rúm.
Voru sætin öll keypt í Svíþjóð,
og að sjálfsögðu gerð sjerstak-
lega fyrir húsið.
Sjerstakt leiksvið á efri hæð
hússins, með áhorfendasal fyrir
rúml. 200 manns, er enn í smíð-
um. Verður það þiljað innan
með birkiplötum, en sætin svip-
uð að gerð og í aðalsal.
Bak við ,,járntjaldið“.
Heljarmikið járntjald skilur
leiksvið frá sal, en því er ein-
ungis ætlað það hlutverk að
verja gegn eldi, ef upp kæmi á
sviði. Er það hin voldugasta
smíði, en Landssmiðjan hefir
sjeð um gerð þess ásamt öllum
öðrum útbúnaði leiksviðsins.
Annars er fortjaldið einnig kom
ið til landsins og verður sett
upp undir lckin.
Leiksviðið virðist eiga all
langt í land, og erfitt fyrir Jeik-
menn að átta sig á því völund-
arhúsi. Formaður byggingar-
nefndar vill auðsjáanlega gæta
allrar varúðar í svörum um
þennan hluta smíði hússins, en
álítur þó, að áætlanir sjerfræð-
inganna fái þar staðist.
Frágangi við herbergi leikara
og öðrum vistarverum að tjalda
baki, miðar vel áfram og greini
lega svo langt komið, að fylgt
getur áætlun. Húsgögn, skápar
og borð í þennan hluta hússins
eru tilbúin.
Rafmagnsútbúna'ður.
Allur rafmagnsútbúnaðui í
leikhúsið er fenginn frá Strand
Electric Company í London og
áhöld öll munu komin heim fyr
ir áramót, en hin fyrstu þegar
komin til landsins. Tæki þessi
verða eins fullkomin og frekast
er völ á fyrir leikhúsljósatækni
yfirleitt. Sakir gjaldeyrisörðug-
leika hefir orðið nokkur töf á
að ganga frá samningum við
hið erlenda fyrirtæki, en á sl. 1.
sumri tókst formanni ásamt
öðrum nefndarmanni, Jónasi
Jónssyni alþingismanni og með
aðstoð sendiherrans í London,
að fá mjög hagstæða greiðslu-
skilmála, sem annars var búið
að synja um af hálfu breskra
gjaldeyrisyfirvalda. — Hefir
Landsbankinn og Fjárhagsráð
gert það sem unnt hefir verið
til fyrirgreiðslu, svo ekki stæði
á fullsmíði hússins þess vegna,
segir Hörður Bjarnason.
Jakob Gíslason raforkumála-
stjóri er ráðinn framkvæmdá-
Stjóri og ráðunautur nefndar-
; ihnar um rafmagnsútbúnað all-
ari, en Joh. Rönning sjer um
lagnir, og er það mikið og kostn
aáarsamt starf, en þó standa
: ýonir til að því geti verið lok-
ið á tilsettum tíma.
Veitingasalir.
Lííið hefir undanfarið verið
unriið að því að ganga frá veit-
ingasal á neðstu hæð, enda er ;
þar mestu lokið, svo sem vegg-
þiljun og eldhúsinnrjetting
langt komin. Verða það áu efa
hin fegurstu salarkynni. Þiljur
á veggjum eru keyptar í Sví- ;
þjóð, en húsgögn í Danmörku.
Löng byggingarsaga.
Þótt saga byggingarmálsins
sje löng, rúm 20 ár, þá hefir
raunverulegt byggingarstarf við
húsið ekki verið lengra en tæp
sex ár, er því verður lokið á
næsta ári.
í meira en 15 ár var smíði
hússins stöðvuð ýmist af hálfu
ríkisvaldsins eða af styrjaldar-
ástæðum.
Þjóðleikhúsnefndin starfar
lögum samkvæmt án launa, og
í henni hafa jafnan átt sæti 3
menn, tilnefndir af stjórnmála-
flokkunum,og heyrt undir
menntamálaráðuneytið.
Frá byrjun hafa þessir menn
átt þar sæti:
Indriði Einarsson, rithöfund-
ur, formaður.
Einar H. Kvaran, rithöfund-
ur.
Jakob Möller, sendiherra, fcr -
maður.
Martha Indriðadóttir, leik.-;
kona.
Jónas Jónsson, fyrv. ráð-
herra.
Ingimar Jónsson skólastjóri.
Hörður Bjarnason, skipulags-
stjóri, formaður,
og eru hinir þrír síðast nefndu
núverandi húsbændur í Þjóð-
leikhúsinu, þar til þeir afhenda
það fullsmíðað á næsta ári, rík-
isstjórn og hinni nýkjornu
stjórn leikhússins.
Guðjón Samúelsson, húsa-
meistari ríkisins, hefir eins og
kunnugt er teiknað húsið, og
verið jafnframt yfirfram-
kvæmdastjóri alls byggingar-
starfsins.
Glæsilegt musteri
fagurrar listar.
Þegar nú er gengið um for-
dyri og sali þessa húss, seru
margt hefur verið sagt um og
ýmsum ágreiningi valdið, verð-
ur það ekki lengur dregið í efa
að íslensk leiklist sje í bann,
mund að eignast glæsilegt must
eri. En hin langa byggingarsaga
þess og deilurnar, sem risið
hafa um það, verða aðeins auka
atriði, þegar byggingin sjálf
stendur fullbúin. Þá vcrður
starfið. sem þar er unnið,,þión-
ustan við listina, kjarni máls-
ins. En húsið, byggingin, er og
verður jafnan fagur yottur um
menningarþorsta og stórhug íá-
mennrar þjóðar.
S. Bj.