Morgunblaðið - 24.02.1952, Síða 14
Framhaldssagan 15
Mark fann kveikjarann og
kveikti á peru í loftinu.
Hann sá Morey greinilega fyrst
nú. Hann lá á hnjánum fyrir
framan skáp og dró út hverja
fötuna á fætur annarri.
„Fyllið þær við vaskinn", sagði
hann. „Við verðum að væta vegg
inn og halda honum votum. Því
í ósköpunum kemur ekki slökkvi-
liðið?“
„Hvað er langt síðan Perrin
....??“ byrjaði Mark.
„Eg veit það ekki .... fleiri ár
eða mínútur .... ég hef ekki hug
mynd um það“. Þeir fylltu föt-
urnar og skvettu úr þeim á vegg-
inn og dyrnar. Hreyfingarnar
voru ornðar eins og sjálfkrafa.
„Ég er alltaf að hugsa um að ég
hefði ef til vill getað gert eitt-
hvað .... en það var orðið eins
og bí karofn, þegar ég kom að
Þeir heyrðu mannamál í húsa-
garðinum. Perrin kom inn með
tvo menn. Hár hans var sviðið og
andlitið svart.
„Þeir eru með eitthvað af
slökkvitækjum", sagði hann.
„Þeir ráðast að eldinum frá glugg
unum. Það er bezt að við byrjum
hérna megin“.
Mark horfði á mennina, þegar
þeir tóku til starfa. „Er ekkert
fast slökkvilið hér?“ spurði hann
Morey.
„í Bear River, en það eru fimm
mílur þangað. Þeir komast aldrei
alla leið hingað. Þetta eru bænd-
ur hérna úr nágrenninu. Þeir
vita hvað á að gera“.
Perrin stóð við eldhúsborðið og
blandaði lyfjadufti í vatn ....
meðal við brunasárum. Perrin
var eins rólegur og bændurnir.
,jÉg held að það versta sé yfir-
staðið“, sagði hann. „Það er und-
arlegt, en eldurinn virðist ekki
breiðast út“.
Perrin kinkaði kolli. „Já, það
versta er yfirstaðið“, sagði hann.
Einn mannanna kom inn. Hann
var ungur, með rautt hár og
freknótt andlit. „Það er eins og
eldurinn sé bara í einu herbergj-
anna“, sagði hann við Morey.
„Litla herberginu fyrir endanum.
Það var skrítið, en þeir lyftu mér
upp svo að ég sá inn. Hin her-
bergin voru svo að segja ó-
sködduð. Líklega hefur herberg-
ið á milli bjargað þeim. Og svo
steinveggirnir“.
„Gerið allt sem þið getið“,
sagði Morey. Mark snéri sér að
Perrin. „Frú Lacey var þar inni“,
sagði hann. „Vissuð þér það
ekki?“
„Jú“, sagði Perrin.
„Hefðuð þér ekki getað ....
fyrirgefið, ég veit að þér hafið
reynt allt, en.... “ Hann gat ekki
lokið við setninguna.
„Það var árangurslaust", sagði j
Perrin og snéri sér burt.
Þrem stundum síðar var öllu
lokið. Læknirinn og lögreglu-
stjórinn höfðu komið og voru
farnir aftur. Þeir höfðu tekið með
sér jarðneskar leyfar frú Lacey.
Florrie og Violet sváfu í einu
gestaherbergjanna. Perrin svaf á
bekk, sem hafði verið settur upp
í eldhúsinu. Hann var ekki illa
brenndur. Anne og Ivy höfðu
sofið alla nóttina og ekki orðið
varar við neitt. Svo var fyrir að
þakka hljóðeinangrun í barna-
herberginu. Jafnvel Stoneman
var sofnaður. Mark hafði ekki
séð neitt til frú Morey aftur.
Hann og Morey sátu í bóka-
herberginu með viskýflösku á
milli sín. Það var eins og hvor-
ugur gæti komið sér af stað upp.
Hann var að hugsa um Wilcox,
lækninn, sem hafði tekið að sér j
pðiróp!':* '”:u.T.ar. Þæ. 'il'Xö.u yer
ið vissar um að allt væri þeim
að kenna. Ef þær aðeins hefðu
verið heima .... Wilcox hafði
líka hughreyst Amos Partridge,
en það hafði engum öðrum tek-
ist. Amos hafði unnið með sjálf-
boðaliðunum látlaust fyrir utan
húsið og þegar þeir höfðu ráðið
niðurlögum eldsins, hafði hann
skyndilega orðið óður og þrifið
gaffal úr hlöðunni. Hann hafði
ruðst inn í húsið og ætlað að æða
upp á loftið. Enginn gat gefið
nokkra skýringu á þessu fram-
ferði hans, fyrr en Wilcox kom.
„Hann var á biðilsbuxunum.
Hafði alltaf verið ástfanginn af
frú Lacey, en missti hana þegar
hún giftist Billy .... Svo var
hann byrjaður að gera sér vonir
aftur“.
Mark lauk úr glasinu. „Vel-
kominn til Crestwood", sagði
hann. „Fagur bæj og friðsæll.
Einkar friðsæll. Ein dauð og
annar í ástarsorg“.
„Fáið yður aftur í glasið",
sagði Morey.
„Nei, takk .... klukkan er hálf
fjögur .... ég man ekki lengur
hvað ég hef drukkið úr mörgum
glösum.... “
„Ég veit ekki einu sinni, hve-
nær þetta byrjaði“, sagði Morey.
„Perrin segir að klukkan hafi
verið hálf tólf, en hún getur vel
hafa verið meira. Hann sefur
fyrir ofan bílskúrinn og er það
dálítinn spöl frá húsinu. Það er
hár veggur á milli og mörg tré.
Það var hreinasta hending að
hann vaknaði við lætin í hestun-
um í hesthúsinu og leit út“.
„Atti hún nokkra aðstandend-
ur?“
„Ég veit það ekki. Ég held að
hún hafi átt heima hér alla sína
ævi. Ég verð að athuga það. Ég
mun auðvitað sjá um allan undir-
búning og standa kostnað af öll-
um útgjöldum .... Annars átti
ég i_ fullu fagni með Joe“.
„Ég var búinn að gleyma hon-
um“, sagði Mark. „Hann var ekki
beinlínis burðugur, þegar hann
heyrði hringinguna. En konan
yðar tók við honum. Hún sagði
mér líka hvar ég mundi finna raf-
magnsleiðsluna inn í húsið. „Hún
....“ Hann ætlaði að segja að
hún hafi jafnvel þá verið viss !
um að einhver var dáinn, en hann
hætti við það. „Hún var mjög
róleg“, sagði hann.
„Hún getur verið það, þegar
hún vill. Hún lét Joe taka eina
af svefnpillunum sínum. Hann
segir að hún hafi troðið henni
upp í hann. Cummings, læknir,
gaf honum deyfandi meðal til
vonar og vara. Hann reyndi að
bíta Cummings, en nú verður
hann rólegur, að minnsta kosti
næstu fimmtán stundirnar".
„Hvernig kviknaði í?“ spurði
Mark. „Veit nokkur það?“
„Ég get mér þess til“. Morey
var þreytulegur á svip. „Menn-
irnir frá tryggingarfélaginu koma
fyrir morgunverð, ef ég þekki
þá rétt. Mér er sama hvaða úr-
skurð þeir feila. En sá sem sök-
ina á með réttu, er Davenport".
Mark rak upp stór augu. „Dav-
enport? Ég hélt að hann væri á
ferðalagi*í Evrópu? Ég skil ekki
hvað þér eigið við?“
„Nei, það er ekki von. Ég get
ekki útskýrt það fyrir yður núna
.... Jæja, það er bezt að fara að
hvíla sig. Þér getið setið hér í
alla nótt, ef yður langar til. En
ég verð að vera hress í fyrra-
málið“. Hann reyndi að brosa,
en Mark fannst það ekki vera
annað en grettur.
Hann kenndi í brjósti um hann.
Hann skellir skuldinni á sjálfan
sig, hugsaði hann með sér, þegar
Morey var farinn. Morey hafði
þó gert allt, sem hægt var að
gera. En hvað átti hann við?
Hann hafði sagt að Davenport
ætti sökina? Hvernig gat það
verið úr-því hann var í Evrópu?
Bull og vitleysa.
ÆVINTÝRI MIKKA IV.
GíiraSdl
Eftir Andrew Gladwin
18.
— Góði Gíraldi, byrjaði hann, komdu nú með mér....
Þetta fannst Mikka þó ekki hljóma vel, svo hann sagði:
— Gíri, Gíri, Gíri... .!
En nú gat Mikki ekki stillt sig um að hlæja, því þetta
fannst honum svo framúrskarandi kjánalegt og hlægilegt
ávarp! Og því miður fyrir Mikka, þá fannst Gíraldanum
þetta líka mjög kjánalegt og móðgaðist ákaflega af þessum
fíflalátum og hlátri Mikka. Og svo skeði það furðulegasta
sem Mikki hafði séð til Gíraldans. Gíraldinn snéri sér þótta-
lega frá Mikka og stökk léttilega yfir háu girðinguna — og
inn á næsta engi!
Mikka brá heldur betur í brún.
— Hann hefði auðveldlega getað orðið methafi í hástökki,
tautaði Mikki við sjálfan sig, loks þegar hann fékk málið.
Síðan lagði hann af stað meðfram girðingunni til þess að
finna hliðið. I
Þegar hann svo fann hliðið eftir stutta stund og var kom-
inn í gegnum það, gat hann hvergi komið auga á Gíraldann. 1
í einu horni engisins var stór heystakkur og Mikki var sann-
færður um það að Gíraldinn feldi sig á bak við hann. Mikki
sá engan mann neins staðar og hann þorði ekki að fara að
sækja hjálp af ótta við það að missa þá alveg af Gíraldanum.1
Hann yrði að ná honum einn og hjálparlaust. Öruggur og
vonglaður hélt Mikki svo af stað til heystakksins. S
— En ég má alls ekki hlæja núna, sagði hann ávítandi við
sjálfan sig. — Það gerir Gíraldann bara reiðan. Ég verð að
reyna að hugsa um eitthvað alvarlegt.... en það er nú ekki
svo gott þegar maður stendur andspænis Gíralda!
-
Sunnudagur 24. febr. 1952
á0a!íundnr i
Slysavðmadeiidar Ingólfs \
í REYKJAVÍK, verður haldinn þriðjudagskvöldið 3
26. febrúar klukkan 20,30 í fundarsal Slysavarna- »
félagsins að Grófin 1. ”1
3
1. Venjuleg aðlfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á 6. landsþing Slysa- 3
- ar
varnafélags ’íslands. 3
STJÓRNIN
FVRBR ELHAVELAR
NYKOMIN — Henta jafnt fyrir heimili og skip.
Handhæg og ódýr.
Helgi Magnússon & (o.
Hafnarstræti 19 — Sími 3184.
O. J. O L S E N
talar í Aðventkirkjunni sunnu-
daginn 24. febrúar kl. 8,30 síðd.
um eftirfarandi efni:
Viðurstyggð eyðileggingarinnar
á helgum stað.
Er kristindómurinn manninum
hindrun í sjálfsbjargarvið-
leitni hans?
ALLIR VELKOMNIR!
HEILDSALAR — IÐNFYRIRTÆKí — KAUPMENN «
s
SöSumaður
m
Duglegur og ábyggilegur sölumaður fer hringferð um S
■k
landið næstkómandi mánaðamót, vill taka að sér sölu S
—f n
á allskonar góðum vörum. — Tilboð er greini vöruteg- »
undir og sölulaun, óskast send Morgunblaðinu fyrir n.k. 3
n
þriðjudagskvöld merkt: „SALA —103“. 2
IJMBUÐAPAPPIR
brúnn, 57 cm.
ICRAFTPAPPÍR
brúnn, 90 cm.
Höfum vér nú fyrirliggjandi.
EGGERT KRISTJANSSON & Co. hi :
m