Morgunblaðið - 30.08.1953, Síða 12
12
Sunnudagur 30. ágúst 1953
i
MORGUNBLAÐIÐ
\
Magnús Sigurðsson
Bryðjuholti 50 ára
HINN 1. júlí s.l. varð Magnús
Sigurðsson bóndi í Bryðjuholti í
Hrunamannahreppi fimmtugur
að aldri. Um þær mundir og fram
að þessu hefi ég verið úti á sjó
og því ekki getað heimsótt hann.
Eg vil því nú, þótt seint sé minn-
ast hans nokkrum orðum í til-
efni þessa heiðursdags hans.
Það er nú fullsnemt að telja fram
afreksverk manna á miðjum
starfsaldri þeirra, enda verður
það ekki gert hér um Magnús.
Samt finnst mér margt um hann
þess vert að staldrað væri við
þenna áfanga á æfi hans og því
gaúmur gefinn.
Magnús er einn þeirra manna,
er þurft hafa að heyja sína lífs-
baráttu án forréttinda og smíða
sér vopnin sjálfur. Hann er næst
elztur 15 barna hjónanna Sigurð-
ar Magnússonar og Helgu Eiríks-
dóttur er lengst af bjuggu í
Stekk, fyrir sunnan Hafnarfjörð.
Á fermingaraldri lagði Magnús
út í heiminn fótgangandi sem leið
lá austur í Hreppa. Drýgsta vega-
nesti hans úr föðurhúsum mun
vafalaust hafa verið óbilandi
þrek og dugnaður. Hann hefur
lengst af síðan haldið tryggð við
þá fögru sveit, Hrunamanna-
hreppinn og er nú þar í góð-
bændatölu. Þrítugur að aldri
kvæntist Magnús Sigfíði Guð-
mundsdóttur frá Dalbæ. hinni
ágætustu konu og reistu þau bú
saman. Nokkrum árum síðar
keypti Magnús jörðina Bryðju-
holt. Þá jörð hefir hann á hálfum
öðrum áratug hýst upp og bætt
svo mjög að ég tel það til afreks-
verka. Þó hafa þau hjón eignast
6 börn, sem óðum eru að komast
á legg.
Eg læt nú þessi fáu orð nægja
að sinni um Magnús bónda Sig-
urðsson. Hann er á bezta starfs-
aldri og önnum kafinn við að
yrkja sitt starfsljóð í mold þeirr-
ar sveitar, er hann tók ungur ást-
fóstri við. Seinna gefast nóg tæki-
færi til að birta það Ijóð.
Osk mín til hans og konu hans
við þessi tímamót er sú, að heill
og gifta megi fylgja starfi þeirra
eftirleiðis, sem hingaðtil.
Haraldur Björnsson.
Lögreglumeim á
járnbrautarsföð
RÚÐUBORG, 28. ágúst — Vopn-
aðir lögreglumenn tóku upp
vinnu á járnbrautarstöðinni í
Rúðuborg í gær, eftir að 4000
jarnb'rautarstarfsmenn höfðu lagt
niður vinnu og þannig stöðvað
líma miklu járnbrautarumferð
sem um borgina er.
Höfðu starfsmennirnir hafið
Vinnu eftir verkfallsölduna miklu
er lauk á mánudag, en hættu
Vinnú aftur á þriðjudag, vegna
þess að þeir töldu að 3 vinnu-
félagar þeirra hefðu verið mij-
fall þeirra stóð í 24 stundir.
íétti beittir. Þetta mótmælaverk-
—Reuter-NTB.
LILLU-
kjarnadrykkjar-
duft.
Bezti og ódýrasti
gosdrykkurinn.
EnfagcrS Reykjavíkur.
HJÁLPRÆÐISHERINN
* heldur helgunarsamkomu kl. 11
f. h. í dag. Kl. 4 verður útisam-
koma og-kl. 8,30 hjálpræðishers-
samkoma. Stjórnandi verður major
Svava Gísladóttir. — Allir eru
velkomnir á samkomur þessar.
Framhald af bls 11
Kvöldskólann. Kveðst fræðslu-
málastjóri líta svo á, að skólinn
l væri viðurkennd menntastofnun
, innan þeirra takmarka, sem
hann hefði sett sér, og kvaðst
; telja mikilvægt, að þangað leit-
I uðu fræðslu þeir unglingar, er
væru um og yfir 15 ára og ekki
j hygðust halda áfram dagskóla-
námi að lokinni fræðsluskyldu.
j Mun þessi umsögn fræðslumála-
j stjóra verða mörgum ungmenn-
| um og foreldrum þeirra gleðiefni,
enda vitna þau um góðvild og
j víðsýni.
, Tryggið ykkur skólavist
nú þegar.
Umsóknum um skólavist í
Kvöldskóla KFUM verður eins
og áður veitt móttaka í nýlendu
vöruverzluninni Vísi á Lauga-
vegi 1 frá 1. sept. og þar til
skólinn er fullskipaður að því
marki, sem hið mjög svo tak-
markaða húsrúm setur honum. Er
fólki eindregið ráðlagt að tryggja
sér skólavist sem allra fyrst, því
ólíklegt er, að unnt verði að sinna
öllum inntökubeiðnum, en um-
sækjendur eru teknir í þeirri röð,
sem þeir sækja. Fólk er að gefnu
tilefni áminnt um, að mæta við
skólasetningu 1. okt. kl. 8,30 síðd.
stundvíslega. Þeir umsækjendur,
sem ekki koma þangað eða senda
annan fyrir sig, mega búast við,
að fólk, sem venja er að skrá á
biðlista, verði þá tekið í skólann
í þeirra stað. Kennslun mun hefj-
ast mánudaginn 5. október.
Símasamband við A.-Þýzkaland
Lundúnum — 21. ágúst s..l var
opnað símasamband milli Bret-
lands annars vegar og Austur-
Berlínar og Austur-Þýzkalands
hins vegar.
Mjólkurframleiðsla
Lundúnum — Mjólkursala á
Engiandi og í Wales nam í júlí-
mánuði 626 milljónum lítra. Er
það 10% meira en á sama tíma í
fyrra.
50 ára:
Hialti Jónsson verkstjóri
Hjalti Jónsson verkstjóri, til
heimilis að Bræðraborgarstíg 23A,
er fimmtugur í dag, fæddur árið
1903, í vesturhluta höfuðstaðar
Islands, og búið í þeim hluta all-
an aldur sinn.
Ég verð að játa, að ég trúði
því varla, er einn vinur minn
tjáði mér nýlega, að Hjalti Jóns-
son væri nú í þann mund að skila
hálfri öld að baki sér og væri þar
með búinn að klífa hinn hæsta
tind mannlegs lífs, því svo mjög
er hann enn unglegur og spræk-
ur í öllu fasi. Má því trúlega ætla,
að hann muni ná hárri elli.
Mun ég ekki hirða .um að rekja
ætt eða uppruna vinar míns, enda
ekki þess umkominn, en mun að-
eins með þessum línum mínum,
senda afmælisbarninu kveðju
Guðs og mína ásamt allra vinanna
og kunningjanna.
Mér er ekki grunlaust um að
Hjalta Jónssyni muni þykja mið-
ur að skrifað skuli vera um hann
þótt fimmtugur sé, svo lítt er
honum um að flíkað sé með hugðar
efni hans. En hann verður nú
samt sem áður að taka á þolin-
mæði sinni og drenglund og
afsaka það þó ég dirfist að taka
mér penna í hönd og hripa nokkur
orð í hans garð í tilefni dagsins.
Það væri margt gott hægt að
segja um Hjalta Jónsson, bæði
sem vin og starfsmann, en ekki
mun ég fara ýtarlega út á þá
braut að sinni. Hins má þó geta
og er það í rauninni nógu mikið
lof til handa Hjalta Jónssonar,
að um aldarfjórðugs skeið hefir
hann unnið hjá stórfyrirtækinu
O. Johnson og Kaaber, og hefir
vaxið að virðingu og áliti hjá því
fyrirtæki, eftir því sem árin hafa
liðið í aldanna skaut. Er mér kunn
ugt um, að starfsfólk þessa fyrir-
tækis unir vel sínum hag í sam-
starfi við Hjalta, enda er hann
trúr því starfi er hann tekur sér
fyrir hendur.
Sem vin myndi ég vsrt kjósa
mér annan betri en Hjalta, því
að hann hefir flesta þá kosti sem
prýða mega góðan dreng. Er
traustur og tryggur í lund, stillt-
ur vel og ærist aldrei þó í móti
blási. Hefur óbilandi trú á lífið,
og kappkostar að færa til betri
vegar það sem aflaga fer í hinu
daglega lífi.
Hjalti er með afbrigðum rólynd
ur maður, hvorki dettur af honum
né drýpur hvað sem á gcngur, Jió
á hann til létta lund, og beitir
henni ávallt, þegar það á við. —
Hrókur alls fagnaðar á mann-
fundum og gleðst þá með glöðum,
en gætir ávallt hófs í því tilliti
sem öðru.
Hjalti Jónsson er vel greindur,
enda notar hann hverja þá stund
sem hann á aflögu, til að þroska
hugann. í því tiíliti tekur hann j
sér oft góða bók í hönd, því hann j
er mikill bókamaður, og velur séi*|
þá. helst þær bækur, sem veita
mikinn fróðleik og innsýn hins
daglega lífs. Skákmaður mikill er
Hjalti, og er mér kunnugt um að
í þeirri íþrótt er hann vel heima. i
Hafa nánustu kunningjar .Hjalta j
tjáð mér, að þá þeir sækja Hjalta
heim, standi taflborðið ávallt til
reiðu og þá er ekki um annað að
gera en að taka eina skák. Um
úrslitin þarf vart að ræða.
Eg hefi þekkt Hjalta í fjölda
mörg ár, og þó að við höfum ekki
átt samleið í sambandi við hin
daglegu störf, þá hefur vináttan
ætíð haldist og vonast ég til að
svo megi vera um langan dag.
Hjalti er kvæntur Jóhönnuj
Baldvinsdóttur, ættaðri frá Stykk
ishólmi, hinni beztu konu.
Er heimili þeirri annálað fyrir
rausn og gestrisni til handa þeim
sem þyggja vilja.
Allir vinir Hjalta senda honum
sínar beztu heillaóskir í tilefni
dagsins.
Vhiur.
KOMIN er á markaðinn bók um
Áfenga drykki og er höfundur
hennar Hinrik Guðmundsson.
Bókin er 176 blaðsíður að stærð
Og veitir fræðslu og upplýsingar
um öl og víntegundir, framleiðslu
þeirra, uppruna, um ótalmargar
vínblöndur og fleira. Bókinni
sem er hið þarfasta þing er skipt
í 4 kafla: Öl, Vin, Brenndir
drykkir og Vínblöndur. — í for-
mála bókarinnar segir svo:
íslendingar hafa.ekki alizt upp
við áfengismennt eins og aðrar
hvítar þjóðir, sem hafa alda-
gamla sögu og reynzlu að baki
sér í þessum efnum, enda ekki
við því að búast af landfraeðileg-
um orsökum og vegna brýnustu
lífsnauðsynja. Þá mátti segja að
það skipti ekki miklu máli, hvort
fólk kunni nokkur skil á áfeng-
um drykkjum eða ekki. En hin
öra framvinda í þessum efnum.
Samskipti íslendinga við erlend-
ar menningarþjóðir eru einnig
orðin svo mikil og náin, að það
verður ekki talið vanzalaust að
umgangast áfenga drykki af tak-
markaðri háttvísi eða jafnvel
eins og óvitar. Það er tilgangur
þessarar bókar að veita fólki al-
mennar, ábyggilegar upplýsingar
um áfenga drykki, meðferð
þeirra og notkun frá sjónarmiði
þeirra, sem vilja hafa þá um
hönd eins og það tíðkast meðal
annarra menningarþjóða.
ÖKUMAÐUR einn í Norwich í
Englandi var fyrir nokkru sekt-
aður fyrir að hafa ekið öfugu
megin niður einstefnuaksturs-
stræti. — Hinn ákærði svaraði
því til, að hann hafi misst af
umferðarmerkinu vegna þess að
froskur hefði komizt inn í bílinn
og orsakað slíkt uppnám meðal
farþega í aftursætinu, að athygli
hans beindist frá bílstjórninni,
er hann reyndi að stilla til frið-
kápuvika ■
Við höfum aldrei áður haft
jafn fjölbreitt úrval afhaust-
og vetrarkápum.
GtiLLFOSS Aðalstræti 9
<—^ M A R K tJ S Eftlr Ed Dodd
WABANAW6, I KHOW
WHO GOT BIG HEARTS ) WHY,
CONPES5IONÍ ^MARK-
Morgunblaðið
er stærsta og f jölhreyttasu
blað landsins.
ÍHOBOCr/ WOULD HAVE
fAO'/BD FRAHklES EMPTV
SHELLS BUT A TPADE
PAT Af-!D HF‘S THE UTTLE
RASCAL WHO GOT THC
COHTESSIONt
I OH, MARK, W WELL, IT ISN'T i
* !T J/yeT... IF HE GOT
SCUNDS L.THE C.ONFE53ION.
WOf >SSFULMWE'LL I!AVE
. - v vo
1) — Valborg. Nú veit ég hver Franklín hefir verið að ala önn
tók játningarskjalið. , fyrir.
— Hvað meinarðu? | 3) — Það er augljóst, að eng-
2) — Það er íkorninn, sem. inn annar en íkorninn hefir tek-
ið skothylkin hans Franks. Og
sömuleiðis hefir þessi litli ,,þorp-
ari“ tekið skjaiið. ‘
4) — Getur það átt sér stað.
— Ef svo hefði verið, verðum
við að komast að því hvar hann
hefir holað því niður.