Morgunblaðið - 21.04.1954, Blaðsíða 1
16 síður
41. árgangur.
90. tbl. — Miðvikudagur 21. apríl 1954
Prentsmiðja Margunblaðsint
Sendimenii Rússa uppvísir að fáheyrðum
fanfabrögðum í Vestur Klerlín og Ástralíu
Rændu kunnum andkommún-
isfa í Berlínarborg
Berlín, 20. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
ÞAÐ er nú Ijóst orðið að útsendarar rússnesku öryggislögregl-
unnar hafa fyrir nokkrum dögum numið mann á brott úr
Vestur-Berlín með ofbeldi. Hefur
Berlín, Oliver hershöfðingi, sent
stjórans vegna þessara atburða.
FORU STUMADUR
ÚTLAG4-RÚSSA
: Maður sá sem brottnuminn var
er rússneskur flóttamaður og
heitir dr. Truchnovich. Hann
flúði land kringum 1930 og hefur
síðan verið forustumaður í félagi
útlaga Rússa. Setti hann upp skrif
stofu í Vestur-Berlín og hefur
staðið fyrir mikilii andkommún-
ískri baráttu. Hefur hann jafnan
verið svarinn andstæðingur
kommúnista.
FRÉTT AD AUSTAN
Truchnovich hvarf frá skrif-
stofu sinni fyrir viku og hefur
hann ekki komið fram síðan, en
í austur þýzkum blöðum birtist
skyndilega frétt um það að hann
hefði flúið Vestur-Berlín og leit-
að sér hælis í Austur-Þýzkalandi.
Allir þeir sem til dr. Truchno-
vich og baráttu hans þekkja vita
ofur vel að slíkur hatursmaður
kommúnista hefði aldrei gefið
sig þeim á vald. Hefur lögregl-
'an í borginni því tekið málið til
rannsóknar.
IBÚÐIN MANNLAUS
Við þá rannsókn hefur komið
í ljós að dr. Truchnovich fór síð-
ari hluta dags af skrifstofu sinni
brezki hernámsstjórinn í Vestur-
mótmæli til rússneska hernáms-
til íbúðar manns eins að nafni
Gláske, sem er formaður í félagi
þýzkra hermanna, sem fengið
hafa að hverfa heim til sín úr
fangabúðum í Rússlandi. Mun
hann hafa ætlað að afia sér upp-
lýsinga hjá stríðsföngum um
ástandið í Rússlandi.
En þegar frú Gláske kom heim
nokkrum klukkustundum síðar
var hvorki maður hennar né gest-
ur hans lengur í íbúðinni. Voru
ummerki, sem sýndu að valdi
hefði verið beitt.
BORINN BROTT
MEÐVITUNDARLAUS.
Lögreglan yfirheyrði íbúa húss
ins og kom þá í ljós að tveir
íbúanna höfðu orðið varir manna
ferða. Höfðu þeir mætt nokkru
fólki í gangi hússins, sem báru
meðvitunarlausan mann á milli
sín. Lýsing á fötum hins með-
vitunarlausa manns er í samræmi
við klæðnað dr. Truchnovich.
Vitnunum virtist að Gláske fylgd
ist hinsvegar með af frjálsum
vilja. Bar hann samvafið ullar-
teppi undir handlegg og er talið
að dr. Truchnovich hafi verið
hulinn í teppið, er út á götuna
kom.
Kaus frelsið
Vladimir Petro-y, sendiráðsritari
við rússneska sendiráðið í Can-
berra, ákvað í s.l. vikn að beið-
ast landvistarleyfis i Ástralíu
sem pólitískur flóttamaður. —
Kona hans, Svokija Petrov, hefur
nú ákveðið að fara að dæmi
manns síns. Hún starfaði sem dul
málslesari í rússneska sendiráð-
inu og er því talið að hún verði
þýðingarmikið vitni í njósnara-
rannsóknum, sem nú eru hafnar
í Ástralíu. M.a. er talið að hún
geti lesið úr allmiklu af dulmáls-
skeytum, sem Petrov afhenti
áströlsku lögreglunni, en skeyti
þessi hafa inni að halda þýðingar
miklar upplýsingar.
Barátta gegn MeCarthy
hafin í kjördæmi hans
Vanfar lífið á að kjósendur aisegi hann
Washington 20. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
SÍÐUSTU vikur hefur andúð á McCarthy og aðferðum hans farið
vaxandi í Bandaríkjunum. Þykir öldungadeildarþingmaðurinn
hafa reist sér hurðarás um öxl og hafa verið stofnuð samtök til að
draga úr áhrifum hans í stjórnmálum Bandaríkjanna.
KJÓSENDUR AFSEGJA
McCARTHY
Leroy Gore nefnist ritstjóri
nokkur í Wisconsin, heimaríki
McCarthys. Hann hefur byrjað
herferð- gegn McCarthy af mikl- (
um móði. Blað hans ,,Sauk Pra-,
irei Star“ hefur verið lítið og
óþekkt. En fyrir þremur vikum ^
skoraði hann á lesendur að senda j
inn bréf þar sem þeir lýstu þvL
yfir að þeir teldu McCarthy hafa |
brotið þingmannsskyldu sína við
kjósendur.
Á einni viku komu inn 200 þús-
und mótmælabréf. Og bréfunum
fjölgar stöðugt svo að ekki skort-
ir mikið á að fyrir hendi séu bau
403 þús. mótmælabréf, sem nauð
synleg eru til þess að hægt sé
að bera fram opinbera kröfu um
að McCarthy 'segi af sér þing-
mennsku.
Jafnframt hefur farið fram
fjársöfnun í Wisconsin og komið
inn um 100 þúsund krónur, sem
verður varið til að auglýsa í
sveitablöðum í Wisconsin, þar
sem kjósendur eru hvattir til að
afsegja McCarthy. En þetta vek-
ur allt sérstaka athygli vegna
þess að bæði Goren og blað hans
voru fylgjendur McCarthys við
síðustu kosningar.
SAMTÖK GEGN McCARTHY
Goren hefur nú falið samstarfs
manni sínum ritstjórn blaðsins
um stundarsakir. Gerir hann
þetta vegna þess að hann ætlar
að verja öllum tíma sínum til
þess að knésetja McCarthy. Sér-
stök nefnd hefur verið stofnuð í
baráttunni, sem skipuleggur þess
ar aðgerðir. í henni eiga sæti
bæði demokratar og republikan-
ar.
Stjórn
jtEÍnaðar-'
nsanna
á Belgíu
BRÚSSEL, 20. apríl — í dag
var mynduð ný stjórn í Belgíu.
Er það samsteypustjóm Jafn-
aðarmanna og Frjálslyndra
undir forsæti Jafnaðarmanns-
ins Van Ackers. Paul Henri
Spaak verður utanríkisráð-
herra. Hvor stjórnarflokkur-
inn hefur átta ráðherra, en
Jafnaðarmenn hafa allar þýð-
ingarmestu ráðherrastöðurnar.
—Reuter.
Aukið fluSlið
Rússa
PARÍS, 20. apríl — Höfuðstöðv-
um Atlantshafsbandalagsins í
París hafa borizt nýjar upplýs-
ingar um flugstyrk Rússa. Sam-
kvæmt þeim hafa Rússar þrefald-
að á skömmum tíma tölu full-
kominna þrýstiloftsflugvéla og
munu þeir eiga 9 þúsund her-
flugvéla af fullkomnustu gerð.
Vitað er að Rússar hafa 22 her-
fylki í Austur-Þýzkalandi og 5
þúsund skriðdreka. —Reuter.
Og ætluðu að flyfja konu
með ofbeldi frá Astralíu
Canberra 20. apríl. Einkaskeyti frá Reuter.
IMORGUN var eiginkonu Petrovs, rússneska sendisveitarritarans
er fyrir nokkru bað um griðastað í Ástralíu, bjargað úr klóm
tveggja rússneskra sendimanna er ætluðu að flytja hana með valdi
nauðuga til Rússlands. En þessir atburðir hafa vakið hrylling um
heim allan, hvernig opinber rússnesk yfirvöld leika saklausa ein-
staklinga og beita þá lygum, ofbeldi og hvers konar brögðum.
LEYSIR FRÁ SKJÓÐUNNI
Menzies forsætisráðherra
Ástralíu tilkynnti fyrir viku að
Petrov sendisveitarritari Rússa
hefði beiðst hælis sem pólitískur
flóttamaður. Skýrði hann um leið
frá því að Petrov hefði starfað í
leyniþjónustu Rússa og hefði á-
kveðið að leysa frá skjóðunni um
njósnir Rússa.
HIN FALSKA YFIRLÝSING
Rússneska sendiráðið svaraði
því þá til að ástralska lögreglan
hefði Petrov í haldi sem fanga.
Gaf rússneska sendiráðið út yfir-
lýsingu, sem það sagði að kona
Petrovs hefði gefið um það, að
Petrov hefði alltaf verið tryggur
föðurlandsvinur. — Hann hefði
aldrei getað svikizt undan merkj
um og frásagnir Menzies um það
að hann væri pólitískur flótta-
maður væru því uppspuni. Sagði
frúin þá, að honum hlyti að hafa
verið rænt.
UNDARLEG HEGÐUN
f gærkvöldi var það upp-
víst að rússneska sendiráðið
hafði keypt þrjá farmiða með
flugvél brezka flugfélagsins
BOAC til Evrópu. Þessir mið-
ar voru fyrir frú Petrov og
tvo fylgdarmenn hennar. —
Hegðun þeirra er þau stigu
um borð í flugvélina í Sydney
vakti nokkra furðu, því að
sendimennirnir tveir vöktuðu
Fyrsta
njósnamáliði
OSLÓ, 20. apríl — í dag hóf-
ust réttarhöld í fyrra njósna-
málinu norska. Var Edvin
Bernhardovich Hansen leidd-
ur fyrir rétt í Vardo, en hann
var handtekinn í júlí s. 1. er
hann ætlaði að fara með ólög-
legum hætti yfir landamærin
frá Rússlandi. —NTB.
Öflugt
varnarsvæði
HANOI, 20. apríl — Varnar-
svæðið í Dien Bien Phu er nú
aðeins þrír kílómetrar í þver-
mál. En á því eru nú 12 þús.
franskir hermenn til varnar
og þeir ætla ekki að gefast
upp fyrr en í fulla hnefana.
Fréttamenn skýra svo frá að
allt svæðið hafi verið skipu-
lagt sem eitt samanhangandi
varnarnet, með gaddavírsgirð-
ingum, skotgröfum og sand-
pokavirkjum. — Flugvellirnir
við borgina eru nú orðnir al-
gerlega ónothæfir og liggur
varnarlína yfir annan þeirra.
frúna stranglega og gættu
þess að hún hefði ekki sam-
band við neinn.
SKEYTI TIL FLUGSTJÓRA
Er þessar fregnir bárust til
eyrna Menzies forsætisráðherra,
sendi hann skeyti til flugstjóra
flugvélarinnar, þar sem hann bað
hann um að reyna að komast að
raun um, hvað frú Petrov vildi
í raun og veru. Flugstjóri sendi
alllöngu síðar skeyti, þar sem
hann svaraði að ljóst væri að frú
Petrov liði illa í návist fylgdar-
manna sinna, sem vörnuðu henni
algerlega máls.
Hefði henni þó tekizt að
hvísla að einum farþega flug-
vélarinnar að fylgdarmenn
hennar væru vopnaðir.
Á FLUGVELLINUM
í DARWIN
Þá sendi Menzies stjórnarfull-
trúanum í Norður-Ástralíu skeyti
um að taka á móti frúnni á flug-
vellinum í Darwin sem er nærri
3000 km leið frá Sydney, en þar
átti flugvélin að koma við.
Layden stjórnarfulltrúi gerði
eins og hann var beðinn um, en
er hann vildi fá að tala við frúna,
ætlaði annar rússneski sendiboð-
inn að taka upp skammbyssu, en
nærstaddir ástralskir lögreglu-
menn brugðu þá skjótt við og af-
vopnuðu Rússana, sem báðir voru
með skammbyssur.
VAF, DULIN
SANNLEIKANUM
Frú Petrov sagði að rúss-
neska sendiráðið hefði skýrt
henni frá því að Petrov væri
dauður. Hafði hún ekkert
heyrt um það að hann hefði
beðið um liæli, sem pólitískur
flóttamaður. Vildi hún varla
trúa því að hann væri á lífi.
Var hún þá sett í símasam-
band við hann. Talaði hún
lengi við eiginmann sinn og
eftir það samtal ákvað hún
einnig að beiðast hælis sem
pólitískur flóttamaður.
Hún skýrði svo frá, að eftir
hinar upplognu frásagnir um
dauða manns hennar hefði
hún sjálf viljað hverfa heim.
Þó var það svo að eftir að
flugferðin hófst varð hertni æ
ljósara að hún var fangi fylgd
armanna sinna og skildi hún
þá, að hún myndi ekki eiga
sældardaga fyrir höndum, er
hún kæmi heim til Rússlands.
AF FRJÁLSUM VILJA
Menzies forsætisráðherra '
Ástralíu gaf opinbera yfirlýsingu
um þetta mál. Tók hann það sér-
staklega fram að ástralskir em-
bættismenn hefðu á engan hátt
viljað skerða ákvörðunarfrelsi
frúarinnar. Það eina sem þeir
hefðu gert hefði verið að segja
henni sannleikann, sem hún hafði
verið duljn með svo furðulegum
hætti í rússneska sendiráðinu.