Morgunblaðið - 21.04.1954, Qupperneq 16
Yeðurúliif í dag:
SA og S kaldi. — Rigning með
köflum.
Réffarsfaða
íslendinga í Grænlandi. Sjá frétt
á blaðsíðu 9.
Þrxr íslenzkir togar-
ar tekrdr ■ landhelgi
ÞRÍR íslenzkir togarar, Sólborg frá ísafirði, Skúli Magnússon frá
Reykjavík og Hafliði frá Siglufirði voru teknir aðfaranótt s.l.
föstudags að veiðum í landhelgi. Voru togararnir fluttir til Reykja-
víkur. Stóðu yfirheyrslur yfir föstudag og laugardag, en á mánudag
Var dómur upp kveðinn í Sakadómi Reykjavíkur og voru allir
.skipstjórarnir dæmdir í 74 þúsund króna sekt og afli og veiðarfæri
ííerð upptæk.
VESTUR AF
VESTMANNAEYJUM
Eitt af íslenzku varðskipunum
kom aðfaranótt föstúdags að tog-
aranum Sólborgu frá ísafirði,
fcar sem hann var að veiðum
Vestur af Vestmannaeyjum. Var
T.taða skipsins mæld og reyndist
J^að vera 2,4 sjómílur innan land-
%elgi. Lagði varðskipið af stað
jmeð togarann.
En rétt í sama mund sáust tveir
aðrir íslenzkir togarar, Skúli
Magnússon frá Reykjavík og Haf
ilði frá Siglufirði að veiðum
Skammt frá. Voru þeir rétt hjá
)ivor öðrum og lagði varðskipið
út dufl milli þeirra. Var síðan
beðið birtingar til þess að mæla
.stöðu duflsins nákvæmlega og
yeyndist það vera 1,6 sjómílur
innan landhelgi. Síðan var farið'
íheð alla togarana til Reykjavík-
úr. —
í réttarhöldum rengdi skip-
Stjórinn á Sólborgu ekki staðar-
tívöldvaka Fósl-
liræðra að Hlégarði
I kvöld
í' KVÖLD klukkan 9 efna Fóst-
Uræður til kvöldvöku að Hlé-
garði í Mosfellssveit. Kvöldvökur
kórsins í Reykjavík og á Suður-
Jtesjum hafa átt feikimiklum vin-
hældum að fagna og ávallt farið
Iram fyrir fullu húsi. Er ekki að
♦*fa að Mosfellssveitarmenn noti
}>etta tækifæri til skemmtunar
Þg upplyftingar.
Umsóknirnar
skipla morguni
hundniðum
1 GÆRDAG var útrunninn frest-
tlr sá, er veittur var til þess að
sækja um gjaldeyris- og inn-
ilutningsleyfi til bílakaupa. —
Miklum mun fleiri umsóknir
inunu hafa borizt, en búizt hafði
vérið við og í gærdag var lát-
Jaus straumur í skrifstofu inn-
í lutningsdeildarinnar með um-
sóknir, svo vafalítið munu um-
fóknir skipta mörgum hundruð-
4>m. —
ákvörðun, en skipstjórarnir á
Skúla Magnússyni og Hafliða
töldu að bæði hefðu skipin rekið
nokkuð innar eftir að þeir námu
staðar áður en duflinu var kast-
að og sömuleiðis hefði duflið
rekið innar um nóttina og töldu
að þeir hefðu ekki verið fyrir
innan landhelgislínu, þótt dufiið
hefði um morguninn verið svo
innarlega.
Allir skipstjórarnir kváðust
hafa haldið sig vera fyrir utan
landhelgislínu, en mælingar
þeirra voru ekki nákvæmar, mið-
uðu þeir við Radiovitann í Vest-
mannaeyjum og hafdýpi.
Skipstjórarnir kváðust allir
hafa verið að kasta, veiðarfæri
þeirra rétt komin í sjóinn. Þeir
kvörtuðu og yfir því að það væri
mjög erfitt að gera staðarávarð-
anir á þessum stað við veiðar svo
að öruggt væri að dregið væri
utan línu, og sögðu að það gerði
sérlega erfitt fyrir að vitinn á
Eyrarbakka væri bilaður, svo að
við lítið væri að miða.
Allir skipstjórarnir hafa áfrýj-
að dómunum.
DÓMARNIR
Sakadómur taldi sannað að
þeir hefðu allir verið að veiðum (
fyrir innan landhelgislínu og
dæmdi þá hvern um sig í 74 þús.
kr. sekt til landhelgissjóðs. Afli
og veiðarfæri voru gerð upptæk.
Sigurjón Á. Ólafsson
fyrrv. alþm. láfinn
AÐFARANÓTT skírdags lézt í
sjúkrahúsi Hvítabandsins hér í
bæ Sigurjón Á. Ólafsson fyrrum
alþingismaður og formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur.
Um nónbil á miðvikudaginn
var Sigurjón staddur í klæðskera
verkstæði hér í bænum, er hann
skyndilega fékk aðsvif. Var hann
fluttur í Hvítabandið og lézt Sig-
urjón þar aðfaranótt skírdags.
Hann var á sjötugasta aldursári.
Sigurjón Á. Ólafsson var þjóð-
kunnur maður. — Sæti átti hann
á Alþingi allmörg kjörtímabil,
ýmist sem þingmaður Reykvik-
inga eða landkjörinn, fyrir Al-
þýðuflokkinn. Hann var form&f*
ur Sjómannafélags Reykjavíkur
í 32 ár og sæti átti hann í stjórji
Slysavarnafélags íslands, en hann
var varaforseti félagsins. Þá md
og geta þess, að hann átti sæti í
byggingarnefnd Dvalarheimilis
sjómanna.
Lögreglumenn meiðast í á-
t5 C>
tökum við ölvaða íiermenn
LÖGREGLUSTJÓRINN á
Keflavíkurvelli, Björn Ingvars
son, hefur skýrt Mbl. svo frá,
að til átaka hafi komið milli
íslcnzkra lögreglumanna og
hermanna úr varnarliðinu á
Keflavíkurflugvelli og hafi
lögreglumennirnir hlotið
meiðsl í þeim átökum.
Atburður þessi gerðist þar
syðra á páskadagskvöld, er
lögreglan á flugvellinum var
beðin að senda lögreglumenn
til að sækja íslenzkar stúlkur
er væru ofurölvi á samkom'i-
stað óbreyttra varnarliðs-
manna og undirmanna í varn-
arliðinu.
Þrír íslenzkir lögreglumenn
fóru á vettvang til að sækja
stúlkurnar. Er þeir voru að
leiða þær út, réðust a þeim
mjög margir ölvaðir varnar-
liðsmenn, börðu þá og grýttu
flöskum og öðru Iauslegu. Lög
reglumennirnir komust út en
hlutu allir nokkur meiðsli,
enginn þeirra er þó talinn al-
varlega meiddur.
Samkomustaðnum var síðan
lokað og er mál þetta í rann-
sókn.
LanfciSyr af fiski í Veslrca;ir.a2yji3.7i
Beigíumaður
i
i
Landburður af fiski var í Vestmannaeyjum í síðustu viku, svo
mikill að frí var gefið í gagnfræðaskólanum þar og efstu bekkjum
barnaskólans og nemendurnir settir til framleiðslustarfa. — Efri
mynin sýnir nokkra unglinga, sem unnu að fiskstöflun, en á þeirri
neðri sést nokkuð af hinum mikla fiskúrgangi, er fiskimjölsverk-
smiðjhn fékk til vinnslu. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.
dæmdur '
SKIPSTJÓRINN á belgíska tog-
j aranum Belgian Skipper er séð-
ur var að ólöglegum veiðum í
landhelgi við Ingólfshöfða og elt-
ur uppi með fallbyssuskothríð 65
sjómílur til hafs, var s.l. mið-
I vikudag dæmdur af sakadómi
! Reykjavíkur í 74 þús. kr. sekt.
Afli og veiðarfæri skipsins voru
gerð upptæk til landhelgissjóðs.
Dregið í A-flokki
í GÆRDAG var dregið í A-
flokki Happdrættisláns ríkissjóðs
bg komu hæstu vinningarnir á
þessi bréf: 75 þús. króna vinning-
urinn á miða 29086 og 15 þús.
kr. á nr. 118,016. Tíu þús. kr.
vinningar þrír komu á happ-
drættisbréf númer: 107,395,
120,126 og 133,849 og fimm 5 þús.
kr. vinningar komu á þessi bréf:
43,331, 65.282, 80,982, 120,674 og
128,453______________
Haftiarfjarðarbáfa r
öfluSu vel í gær
HAFNARFIRÐI — Línubátarnir
öfluðu frá 8—20 skipd. í gær.
Netabátarnir hafa aflað frekar
vel að undanförnu, og hafa marg-
ir þeirra komið inn síðustu daga.
— Togarinn ísólfur var hér s. 1.
laugardag, og var hann með 186
tonn, sömuleiðis Júní. Hafliði var
hér í gær, og var landað úr hon-
um 92 tonnum af fiski. Surprise
kom af veiðum í morgun, og
Röðull er væntanlegur í viku-
lokin. —G. E.
Flestallir íbúnr Vestmannfieyja
unnu í liski yfir bænudapinna
Afiinn eins mikill eða
meiri en nokkru sinni
Vestmannaeyjum 20. apríl.
GÍFURLEGT aflamagn hefur undanfarna daga borizt á land í
Vestmannaeyjum. „Hin venjulega páskahrota“ eins og sjómenn
segja, hófst á þriðjudaginn og náði hámarki á skírdag. Þann dag
bárust á land um 2400 smálestir fisks (vigtað upp úr bátum). —
Kennarar, iðnaðarmenn, skólabörn, unglingar, húsmæður og allir
er vettlingi gátu valdið hafa alla bænadagana staðið við fiskaðgerð.
Afköstin voru geysimikil. Hraðfrystistöð Vestmannaeyja frysti á
skírdag 2300 kassa. Mun það vera ísl. met. Mikið af aflanum fer og
í salt og nokkuð til herzlu.
61 SMÁLEST í RÓÐRI
Er bátarnir komu að á skírdag
varð þegar þröngt fyrir í höfn-
inni, því löndunin tók svo lahgah
tíma vegna hins mikla aflamagns.
Hefur líklega aldrei hér við land
komið jafn mikill afli upp úr
einum bát eftir eina nótt eins og
þá. Úr vélbátnum Björgu, sem er
63 brúttólestir var landað 8200
fiskum — 61 smálest. Skipstjóri
’á bátnum er Einar Guðmundsson.
AFLINN MINNKAR
Á laugardaginn fyrir páska var
Drengur verður fyrir
bíl í Keflavík
KEFLAVÍK, 20. apríl — Um kl.
10 á páskadagskvöld, vildi það
slys til á Vatnsnesstorgi að 15 ára
drengur, Guðm. Ólafsson, varð
fyrir jeppabíl, A-871, og meiddist
hann töluvert á fæti. — Hann
var á hjóli með hjálparvél, og
skemmdist það töluvert.
—Ingvar.
aflinn svipaður. Á 2. páskadag er
róið var aftur var aflinn nokkru
minni en þó mjög góður. í dag
hefur dregið úr honum og var
afli rýr hjá sumum bátum. Má
geta þess að bátar sem í gær
fengu 4000 fiska fengu í dag að-
eins 4—500 fiska.
ERFIÐLEIKAR
Þetta geysilega aflamagn or-
sakaði mikil þrengsli í höfninni
eins og áður segir. Tók löndunin
svo langan tíma að bátar er komu
að á laugardag höfðu ekki lokið
löndun fyrr en um hádegi á
páskadag. Skortur var og á bif-
reiðum til að taka fiskinn frá
skipi. Voru dæmi þess að skips-
höfnin yrði að bíða 4—5 tíma
eftir að fá bíla svo að löndun
gæti hafizt.
Annríkið í fiskvinnslustöðvun-
um var gífurlegt, þótt svo að
segja allir bæjarbúar legðu sig
fram um að bjarga verðmætun-
um og var lögð nótt með degi.
Var unnið í aðgerð báða helgi-
dagana, föstudaginn langa og
páskadag, að meira eða minna
leyti. — Bj. Guðm.
<$>—-------------------
Minningarguðsþjén-
úsfa um krónprins-
essu Norðmanna í
Démkirkjunni
í DAG fer fram í Osló útför
Márthu krónprinsessu Norð-
manna. Hér í Reykjavík gengst
félag Norðmanna, Nordmanns-
laget, fyrir minningarguðsþjón-
ustu um hina ástsælu krónprins-
essu, sem Norðmenn skoðuðu sem
drottningu sína. — Minningar-
guðsþjónustan fer fram í Dóm-
kirkjunni og hefst kl. 11 árdegis.
Séra Bjami Jónsson, vígslu-
biskup, flytur minningarræðuna
og dómprófastur Jón Auðuns
þjónar fyrir altari.
Skákeinvígið !
KKISTNES
VÍFH.SST AÐIR
10. leikur Kristness:
«—o