Morgunblaðið - 23.11.1954, Page 10

Morgunblaðið - 23.11.1954, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 23. növ. 1954 I TIL SÖLII 5 : | Borðstofuhúsgögn (dönsk, sem ný) borð, sex stólar og ; 16 3 skápar. — Ennfremur uppþvottavél (Westinghouse), : ■ radiogrammófónn (Philips), ottoman og stoppaður stóll. ■ Tækifærisverð. — Upplýsingar á Ránargötu 19 (2. hæð) ■ ■ í dag og á morgun. : Arbækur Reykjavðkur 1786-1936 eftir dr. theol. JÓN HELGASON biskup Orfá eintök af þessari stórmerku bók fást nú hjá bóksölum Árbækur Reykjavíkur skýra frá öllu því markverðasta, sem gerðist í Reykjavík um 150 ára skeið. Enginn, sem þekkja vill sögu höfuðborgarinnar, getur verið án þessar- ar bókar. — Bókin er hátt á 5. hundrað bls. í stóru broti. I henni er fjöldi mynda af Reykjavík í „gamla daga“. H.f. Leiftur s ■ ■ ■ í BÚÐARMAÐUR ■ óskast strax eða um áramót til kaupfélags á Vestur- i % landi. — Starfinu getur fylgt góð 4ra herbergja íbúð. ; ■ Nánari upplýsingar hjá 5 s—.! Deild 1 i Þetta er merkið, sem ávallt tryggir yður hreint og ómcngað |:ÍBESrj I *>. xxxx I I | nnuCTiEpngf ÚRVAL.SHVEITI < 1 lokuðsim umhúrtDTni Baksturinn tek^t best með PiUsburys BEST IIVEITI (efnabætt). — Ræðo Gunnars Gu nnnrssonar Frí.mh. af bls. 9 illa skrifaðar, fremur en t.d. bækur Dostojevskis eða Dreis- ers, en hún er útstreymi voldugs persónuleika.... “ Og á bls. 97 í sömu bók: „Sé barátta mann- kynsins álitin heilög hvar scm hún er háð, þá hafa ýms:r vitr- ingar nútímans rétt fyrir sér. sem telja þá menn helga, er draga saman í einn brennipunkt örlagaeinkenni kynkvíslanna, þjáningar þeirra og gleði, ham- ingju þeirra og böl, líf þeirra og dauða. Rammíslenzkari en nokkru sinni fyrr Það er í senn gleðilegt og virð- ingarvert hve trúarlegri alvöru Gunnar Gunnarsson lítur höfundarkall sitt. . . “ Og enn í sömu bók: ,,í Kirkjunni lætur Gunnar lífið hugleiða sjálft, barnið, móðurina, ættina og fólk- ið á bænum og á næsta bæ, — hið upprunalega og eilífa fólk náttúrunnar. óupplýst, óveraldar- vant, óleitið á hótfyndna speki og heldur ekki uppnæmt fyrir aðkasti lífsins, en hyggið sam- kvæmt eðlisávísun, þrungið ilmi fjallajurta og fjörugrasa. Persón- urnar koma manni ekki lengur fyrir sjónir sem bóklegar, upp- diktaðar og óverulegar heilavof- ur, sem eigi, hvað sem tautar, að troða uppá okkur hinum heim- spekilegu hrossleggjum höfund- arins, heldur hrökkva þær ljós- lifandi framúr penna skáldsins alveg eins og af sjálfu sér, án þess að eiga nokkurt erindi við okkur annað en að vera til. Og maður finnur að þær hafa lifað árum saman inni í honum sjálf- um og bara ekki fengið tækifæri fyrr til að sleppa út. Sú stað- reynd að þær eru að jafnaði stíl- færðar og stundum afskræmdar, breytir ekkert þeirri tilfinningu lesandans, að þær séu veruleg- ar“. Og á bls. 102: „í Kirkjunni ber búningur hans með sér full- komna samsömun við stjúpland- ið, hin tindilfætta danska kýmni er öll komin inn í stil hans, ekki þannig, að íslendingurinn í hon- um hafi spilzt, þvert á móti: Það er aðeins um að ræða nýja radd- setningu við hinn þunga, íslenzka undirtón, sem alltaf hlýtur að verða grundvöllurinn i verkum hans. Þrátt fyrir hina leikandi dönsku sina er Gunnar Gunnars- son rammíslenzkari undir niðri en nokkru sinni fyrr. Aðeins sjá- um vér þennan íslenzka höfund alít í einu sem fjölkunnan list- leikara hins tízkasta óbundins máls, gæddan meistarakunnáttu, sem aðeins er sambærileg við út- förnustu samtjmasnillinga þess- arar listgreinar. Stil-jarðvegur- inn er allt í einu orðinn svo frjór, að upp af hverjum lófastórum bletti, útúr hverri handfylli af efni, vex nú ypparlegasti gróð- ur, höfugur af þroska og frjó- semd. Þar sem fyrri bækurnar bera víða svip af ógurlegum erfiðismunum, þreytu, sjálf- styptun, þá er í Kirkjunni hver pennadráttur orðinn töfraþrung- inn leikur, öll ummerki erfiðis og átaka eru horfin, en smjör drýpur af hverju strái“. Ummæli Kristins Andréssonar í bókmenntasögu Kristins E. Andréssonar, íslenzkar nútíma bókmenntir 1918—1948 stendur þetta: „Um Kirkjuna á fjallinu er ekki ofmælt, að hún er eitt unaðslegasta skáldverk, sem rit- að hefir verið af íslenzkum höf- undj....“ Og ennfremur: „Eftir Kirkjuna á fjallinu varð Gunnari Gunnarssyni vegur skáldfrægð- arinnar greiður, bæði hafði list- gófa hans og still náð háum þroska og hann hafSi fundið liíi sínu og yerkum tilgang, sem lá út fyrir persónuleg takmörk, en varð jafnframt til að hefja per- sónuleik hans í hærra veldi. — Hann stóð með íslenzka arfleifð, sem bakhjarl sinn érlendis og fann styrk sinn. Upp úr þessu ræðst hann í stóran bálk skáld- sagna úr sögu íslands, og kom fram, eins og Halldór Laxness segir í formála fyrir íslenzkri út- gáfu á Aðventu“, sem sterkur og virðulegur fulltrúi fornrar bók- menntalegrar hámenningar nor- rænnar eins og hún hefir eflzt og þroskast með því lífi, sem lif- að var á „ey sagnanna“ í þúsund ár“. Ók heilum vagni heim í formálanum að Aðventu seg- ir H.K.L. ennfremur: ,,Þó munu engir nema íslendingar sjálfir fá metið Gunnar Gunnarsson að verðleikum þegar frá líður, né skilið eðli hans til fullnustu, enda munu þeir' varðveita nafn hans óafmáanlega". Og hér koma lokaorðin: „í Aðventu, síðustu bók hans á erlendu máli áður en hann kveður Danmörku, lýsir hann ferðalagi íslenzks sveita- manns, sem ásamt foruatusauði og hundi leitar heim í skamm- degishríðum öræfanna. Viðlíka þrekraun er íslenzku skáldi að dveljast langdvölum fjarri ætt- landi sínu og rita erlendum þjóð- um bækur á þeirra tungu, og verða þó ekki úti sem íslending-. ur í þeirri hríð, heldur aka heil- um vagni heim. Andlit Gunnars fékk aldrei svipmót útflytjand- ans, hins vegalausa, áttavilta og upprætta manns, í þessari löngu hríð, heldur vissi hann allt af veðurstöðuna; hann hafði ævin- lega af íslandi bæði fugl og hval, eins og segir um farmenn á göml- um bókum; kynfestan var sterk- ari en svo, að hann ætti í sér að afrækja uppruna sinn, orðaval hans var að vísu erlent um skeið, röddin allt af íslenzk. Það eru óskir vorar, að það land, sem vakað hefir í vitund hans, og kallar hann nú heim á hádegi ævinnar til meiri starfa, megi verða honum sá vinur og sú ráðning fagurra drauma, sem hann sjálfur var landi þessu í fjarlægðinni“. Vopnin skulu tala Að sinni verður ekki tekið fleira hér af ummælum vinstri fylkingarinnar um Gunnar Gunn- arsson. Væri þó á margan hátt enn fróðlegra að taka glefsur uppúr Tímariti Máls og menn- ingar og „þjóðviljanum", en allt ber það að sama brunni. Það má víst telja útséð, að G.G. verður hér eftir óþarfari kommúnist.um en þeir höfðu von- að og trevst, og ekki er nú vand- séð hvaða hugsun hefir legið að baki hinum miklu lofsorðum, sem „þjóðviljinn“ hefir ausið skáldið á undanförnum árum. Það átti að reyna með góðu að beygja hann, en fyrst það ekki tókst, skulu vopnin tala. Orð- sendingarnar í Þjóðviljanum undanfarna daga til G.G. mættu samkvæmt fordæmi að austan vel hitta fleiri menn, og þá ekki sizt H.K.L. En kannske er ein- hver smuga í lögum Sovétríkj- anna, sem heimila að þyrma einum þó annar sé tekinn. Barátta upp á líf og dauða íslenzka þjóðin stendur nú á erfiðum tímamótum, þar sem hún er nú, í raun og veru í fyrsta sinn, alopnum augúm að ganga inn i samfélag hinna frjálsu, vest- rænu þjóða, með þeim skyldum, sem henni hafa í svipinn verið lagðar á herðar. Aldrei hefir hún fremur en nú þurft að horfast í augu við þær staðreyndir að hinn vestræni heimur berst uppá líf og dauða fyrir því að fá tryggt frelsi sitt og lífsöryggi. Viðbrögð kommúnista við ræðu G.G. sýna okkur betur en nokkuð annað, hvað það er sem þeir óttast, og hvernig þeim er innanbrjósts núna, á örlagatím-: um vestrænnar menningar. Þeir vita vel að ef þeim tekst ekkj núna að leggja hana í rúst, koma henni undir járnhæl kommún- ismans eins og í Eystrasaltslöndr unum og leppríkjunum, þá hafa þeir beðið þann ósigúr, sem þeir þola ekki. Boðberi siðmenn- ingar og mann- göfgi Gunnar Gunnarsson hefir æv- inlega verið boðberi siðmenning- ar og manngöfgi, þeirrar háu sið- menningar, sem lýsti sér í að- gerðum Friðþjófs Nansens eftir fyrri heimsstyrjöldina, og nú er uppistaðan í samtökunum, sem þjóðirnar komu á fót eftir síðari heimsstyrjöldina, Sameinuðu þjóðunum, og lyft hafa því Grettistaki t.d. í flóttamanna- vandamálunum, sem ef til vill er stærra átak en sjálf styrjöldin var meðan hún stóð yfir. Rússar, sem þó eíga að heita meðlimir Sameinuðu þjóðanna, hafa mjög aukið á þetta vandamál. Mikið í húíi Hinn mikli mannvinur Al- bert Schweitzer, hefir sagt að það væri manngöfgin ein, sem komið gæti á varanlegum friöi. Hún hefir skapað sið- menninguna, hún er grund- völlur ailrar framþróunar, sem orðið hefir. Vér verðum að treysta á hana, annars för- umst vér. Siðleysi kommún- ismans ætti að vera svo aug- Ijóst hverju mannsharni með heilbrigða sál, að óþarft væri að rifja upp hefndarverk þeirra cg viilimannlega grimmd, en hér er mikið í húfi, sjálf siðmenningin, sú manngöfgi og mar.nást, sem kynslóðirnar hafa smám sam- an drukkið í sig og orðið þeim blessun og Iífssvölun. Ræða Gunnars Gunnarsson- ar er ein af þeim aðvörunum, sem mannkyninu hafa alltaf borizt á elleftu stundu. Lestrarfébg kvenna vill banna sorprifin EFTIRFARANDI tillaga var sam- þykkt á fundi Lestrarfélags kvenna: „Fundur Lestrarfélags kvenna í Reykjavík, haldinn 4. nóv. 1954, ályktar að lýsa andúð sinni á þeim fjölda blaða og tímarita um glæpi- og kynferðismál, sem nú er veitt í stríðum straumum inn á bókamarkaðinn. Flest tilgreina rit þcf si hvorki ritstjóra né ábyrgðarmann, og talar það sínu máli um álit út- gefenda á þessari útgáfu sinni. Lesendurnir eru gjarnan ungling ar, jafnvel börn, og stórspillir slíkur lestur smekk þeirra. Að sögn gæslukonu barnalesstofu L.F.K.R., reyndist oft erfitt að fá unglinga, sem byrjað höfðu lest- ur slíkra rita, að taka sér góða bók til lestrar. Vill fundurinn taka undir til- lögur þings framhaldsskólakenn- ara, sem nýlega var haldið hér í höfuðstaðnum, og skorar á hið háa Alþingi að hlutast til um að stöðva ósóma þennan hið fyrsta“. X BEZT AÐ AVGLÝSA A T 1 MORGVJSBLAÐim T

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.