Morgunblaðið - 05.01.1955, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.01.1955, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 5. jan. 1955 AhnuTrlP IHKWATH; HEATING ^ Fullkomnustu og beztu olíukynditæki sem völ er á. Einkaumboð: Glsli Jónsson & Co. h.f., Ægisgata 10, sími 82868. I Eiofuii tii sölu Dodge Weapon ■ ■ bifreiðar með eða án yfirbygginga, kerrur fyrir Dodge Weapon og jeppa bifreiðar, vatnstanka, er taka 870 lítra og eru úr ryðfríu efni og vandaða sleða, er bera allt að tveim tonnum. S)ala óetuli(L ílzi óei^na nteLómó Sími 4944 milli kl. 10—Í2 f. h. ! Innheimtumaður Duglegur og reglusamur óskast strax. I i Má vera sem aukastarf. Upplýsingar í dag kl. 1—3 MjfHíötiNN Miðstöðvarofnar Skolprör — W.C. skálar og kassar, nýkomið Pantanir óskast sóttar. Vatnsvirkinn h.i. Skipholti 1 — Sími 82562 AIR WICK - AIR WICK Lykteyðandi — Lofthreinsandi Undraefni Njótið ferska loftsins innan húss allt árffl AIRWICK ER ÓSKAÐLEGT NOTIÐ AIR-WICK — AIR WICK Hliðsföðvarofnar Þeir, sem pantað hafa hjá okkur miðstöðvarofna, vin- samlega talið við okkur. sem fyrst. A. Jóhannsson & Smith h.f. Bergstaðastræti 52 — Sími 4616. Engin eldfæri hnfn fengið jafn Iongn cg öruggn reynslu hér á landi eins og S C A l\! DI A-eldavélar Svendborgar þvottapottar Höfum venjulega nægar birgðir fyrirliggjandi af þessum eldfærum. Einnig rör og ristar þeim tilheyrandi. H. BIERIIMG Laugaveg 6. Sími 4550. (Einkaumboð fyrir L. Lange & Co. A/S. Svendborg). 6<2<SrCr<a<2<S*2<S<S<S<3<a<3<S<3<a*2<»<S<a*3<S<5<a<3<a<3<a<5<5*»<a»2<S*2<S<2<S*Sí>5K>«S-«>e>'5>K>S;«>'S>S>«>S>®'«>‘5>2>5>S^5>C-«>C-5>«>t TJARNARBÍÓ „GLEÐIDAGUR í RÓM“ heitir kvikmyndin, sem Tjarnarbíó sýnir um þessar mundir, með þeim Gregory Peck og Audrey Hepburn í aðalhlutverkunum. Er þetta með beztu myndum, sem hér hafa verið sýndar um langt skeið, listræn að gerð, efnið bráð- skemmtilegt og leikurinn frábær. Og ekki dregur það úr ánægj- unni að atburðirnir gerast í Rómaborg, þar sem fyrir augu áhorfendanna ber söguríkar byggingar og minjar. Mynd þessi hefur hlotið mikla frægð og mikið verið um hana rætt og ritað, enda látið í veðri vaka að efni hennar sé að nokkru leyti til orðið með hliðsjón af ævikjörum ungrar og tiginbor- innar konu, er heimsblöðin láta sér jafnan tíðrætt um, einkum í sambandi við væntanlega gift- ingu hennar. Fjallar myndin um unga og fagra prinsessu, ríkiserfingja í ónefndu ríki, sem er sárleið á hinu hefðbundna og formfasta hirðlífi, en þráir að mega njóta unaðar hins frjálsa lífs eins og annað fólk. í opinberri heimsókn sinni til Rómaborgar, þar sem henni er tekið með kostum og kynjum eins og tign hennar sæmir, tekzt henni þrátt fyrir vökul augu siðameistara og hirð- kvenna, að laumast eitt kvöld á brott úr sendiherrabústaðnum, þar sem hún hefur aðsetur sitt, út í iðandi mannþröngina á göt- um og torgum hinnar miklu borgar. Og þar hittir hún amer- ískan blaðamann, ungan og glæsilegan, og greinir myndin frá samveru þeirra einn sólar- hring. — Ber þá margt skemmti- legt við, en frá því verður ekki greint hér. Hina ungu prinsessu, Önnu, leikur Audrey Hepburn, ung og fögur leikkona, er hlaut Óskars- verðlaunin og heimsfrægð fyrir leik sinn í þessu hlutverki. Er hún heillandi í útliti og allri framkomu, og sameinar á frá- bæran hátt yndisþokka hinnar ungu stúlku og tigið fas prins- essunnar. Blaðamanninn, Joe Bradley, leikur Gregory Peek, prýðisvel, ýkjulaust og eðlilega. — Auk þessara tveggja leikenda ber að nefna gamanleikarann Eddie Albert, sem leikur þarna bráð- skemmtilegan náunga af mikilli snilld. Það er óhætt að mæla með þessari mynd, því að jafnframt því sem hún er skemmtileg, er yfir henni allri fágaður og heill- andi blær. AUSTURRÆJARBIO Kvikmyndin „Á girndarleið- um“, sem Austurbæjarbíó sýnir nú er gerð eftir hinu fræga leik- riti „A Streetcar named Desire“, eftir ameríska rithöfundinn Tennessee Williams. Er höfund- urinn kunnur hér, því að Þjóð- leikhúsið sýndi haustið 1953 leik- rit hans „Sumri hallar". Wiliiams fékk á sínum tíma hin merku Pulitzer-bókmenntaverðlaun fyr- ir leikritið „A Streetcar named Desire“, en þrír af leikendunum í kvikmyndinni fengu verðlaun fyrir leik sinn þar, þau Vivian Leigh, er fer með aðalhlutverkið Blanche Du Bois, og Kim Hunter og Karl Malden, er fara með minni hlutverk. En allir þessir leikendur vissulega vel að verð- laununum komnir, því að leikur þeirra allra er afbragðsgóður, en leikur Vivian Leigh þó mestur og beztur, enda beinlínis „genial“. Myndin gerist í franska bæjar- hiutanum í New Orleans, í um- hverfi þar sem handalögmál og drykkjuæði er daglegt brauð. Fjallar hún um unga stúlku, fín- gerða og viðkvæma, sem á vafa- sama fortíð, en dreymir um betra og fegurra líf. Hún kemur í heim- Framh. a bls. 11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.