Morgunblaðið - 22.03.1955, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. marz 1955 ]
Samræming á fasieignamati
táknar ekki almenna fiækkun
gpida, heldur r éft
Óffi Jörundar ialinn ásfæðufaus
MIKLAR umræður urðu í Neðri deild Alþingis í gær vegna
frumvarps fjármálaráðherra um samræmingu á fasteigna-
matL Jörundur Brynjólfsson réðist harkalega á frumvarpið. Tald;
hann bæði að hætt yrði við að landsnefnd í Reykjavík væri illa
faér um að endurskoða fasteignamat um allt land vegna ókunnug-
leika og svo hitt að hætta væri á, þegar fasteignamat væri hækkað
að ýmis gjöld sem grundvallast á fasteignamatinu myndu hækka.
Fjármálaráðherra og Jón Pálmason þingmaður Húnvetninga svör-
vðu og töldu að ýmislegt sem Jörundur sagði væri á nokkrum
misskilningi byggt.
f ræðu sinni minntist Jörund-
ur á það að skv. frumvarpinu
væri að vísu ekki ætlazt til að
allsherjarfasteignamat færi fram,
héldur ætti viðfangsefnið að vera
afj meta hinar nýrri umbætur og
háeta matsverði þeirra við.
Þegar slíkt ætti að meta taldi
hann þó að alveg eins þyrfti við
staðþekkingar og persónulegrar
könnáttu. Landsnefndin hefði
hana ekki. Að vísu væri í frum-
varpinu ákvæði um að nefndin
mætti leita upplýsinga hjá Bún-
aðarfélaginu um ræktunarfrkv.
o. fl., en jafnvel þetta taldi Jör-
undur að væri ekki nóg, því að
ekki þýddi að vita kostnaðar-
v^rð, heldur hið raunverulega
vérðgildi og gagn af jarðabótun-
nm. Engri átt næði að taka með
í matið ýmsar jarðræktarfram-
kyæmdir eins og framræslu, sem
gætu ekki farið að gefa arð fyrr
en eftir þrjú ár.
Enginsi póstur
SKIPSPÓSTUR verður ekki af-
greiddur meðan á vex'kfallinu
stendur, og tvö skip liggja nú Hér
í höfninni rrieð póst, sem ekki fæst
afgreiddur til póststjómarinnar.
Það er erlendur póstur með Gull-
fossi um hálft áttunda tonn og
svo innanlandspóstur með Herðu-
breið.
I dag mun pósthúsið geta af-
greitt póst til Norðurlandsins, þar
eð Noiðurleiðir mun senda vagn
til Akurevrar. Póstur, sem bílar
taka hefur verið hægt að afgreiða,
því honum skila bílstjórarnir
siálfir. —
HÆKKUN ÝMISSA GJALDA
Þá réðist Jörundur harkalega
að þeim ákvæðum þar sem talað
er um, hve mikið fasteignamats-
vei'ð megi hækka, eða allt að
400%. Sagði hann að hætt væri
við að fasteignamatið yrði al-
mennt hækkað svo mikið, og ef
svo yrði, þá mjmdi mörgum
þykja þröngt fyrir sínum dyr-
um. 'Því að fjöldi gjalda grund-
vallást á fasteignamatinu, t. d.
heimtaugagj ald, sýslu vegag j ald,
sem er í sumum héruðum mörg
hundruð þúsund krónur, sýslu-
sjóðsgjald sem er t. d. í Arnes-
sýslu hálf milljón, gjald til fjall-
skila og einnig hefur fasteigna-
niatið áhrif á útsvör. Ef þetta
allt hækkaði í sambandi við
hækkun fasteignamats, þá yrði
erfitt að lifa, sagði Jörundur.
SÝSLUNEFNDIR
ÁKVEÐA GJÖLDIN
Eysteinn Jónsson, fjármálaráð-
herra taldi að ótti Jörundar værx
ástæðulítill. Því að sjálfsögðu
myndu þessi gjöld sem nefnd
voru ekki hækka í sama hlutfalli
•og hækkun fasteignamats. Að
sjálfsögðu yrðu gerðar ráðstaf-
anir til að þessi gjöld yrðu áfram
sem líkust því sem þau hafa ver-
ið. Sýslunefndirnar ákveða sum
þessara gjalda, þær gætu hækk-
að þau án þess að fasteignamat-
ið sé hækkað, en væntanlega
myndu þær taka til greina þá
hreytingu sem verður við þetta
millimat.
SAMRÆMING —
RÉTTLÁT SKIPTING
Jón Pálmason sagði að með
frumvarpi þessu væri aðeins ver-
ið að samræma fasteignamatið.
í lögum er ákveðið að millimat
fari fram, en því hefur ekki ver-
ið framfylgt alls staðar. Slíkt
ósamræmi hefur valdið ranglátri
skiptingu t. d. á greiðslu heim-
taugargjalds, þar sem millimat
hefur farið fram í sumum hrepp-
um og sumum sýslum. Þótt þessi
samræming fari fram á fasteigna
mati um allt land, þá þýðir það
ekki að heimtaugagjaldið hækki
almennt um allt land sem því
nemur. Eina breytingin er að
skiptingin' verður réttlát, þegar
fastéignama'tið alls staðar er
hyggt á sömú forsendum. Sama
gilti væntanlega um önnur gjöld
sem grundvallast á fasteigna-
matinu.
— iKopavomir
F’-ítmh. af Ws. I
scm þessi fjöltli er yfirgnæf-
andi meirihluti atkvæðisbærra
íbúa hreppsins, og þar með
fullnægt skilyrðum þeim, sem
sett voru fram í samþykkt
sýslunefndar Kjósarsýslu um
þetta mál þann 7. þ. m., þá
ályktar hreppsnefnd að vísa
frá framkominni tillögu odd-
vita o. f 1., um frekari at-
kvæðagreiðslu, þar sem það
yrði aðeins til þess að tefja
máiið og gengi í berhögg við
vilja meirihluía kjósenda,
sem óska að breytingin sé
gerð á yfirstandandi Alþingi.
Mælir hreppsnefnd nú, með
tilliti til vilja meirihluta at-
kvæðisbærra íbúa í hreppn-
um, með því að Kópavogur
verði gerður að sérstöku lög-
sagnarumdæmi með kaupstað-
arréttindum".
VÍRÐA AÐ VETTUGI
VILJA ÍBÚANNA
Eins og þessi tillaga minni-
hluta hreppsnefndar ber með sér
hefur meirihluti atkvæðisbærra
íbúa hreppsins undirritað áskor-
unina. 750 af 1400 kjósendum. En
kommúnistar virtu það ekki við-
lits, heldur samþykktu þeir frest-
unartillögu sína. Þannig ganga
þeir algerlega í berhögg við yfir-
lýstan vilja íbúanna í hreppn-
um.
Ewfeinn skiraði
S.L. SUNNUDAG fór fram við
Skíðaskálann í Hveradölum
Firmakeppni, sem Skíðaráð
Reykjavikur stóð fyrir. Hófst
keppnin kl. 2 e. h. og var keppt
í svigi. Sólskin var en gekk á
með mjög hvössum vindsveipum
og gerði það keppendum og
starfsmönnum erfitt fyrir. Frost'
var 10 stig.
Keppt var í brekkunni fyrir
ofan hverina skammt frá Skíða-
skálanum og var skíðafærið hart
og grófst því bi-autin lítið. Var
brautin um 300 m löng með 38
hliðum og 90 m fallhæð. Braut-
arstjóri var Þórir Jónsson. 35
fvrirtæki tóku þátt í keppninni.
Hátalari var notaður til þess að
lýsa keppninni, sem fór vel fram
og var spennandi.
Úrslit í keppninni urðu þau
að Eysteinn Þórðarson, Í.R.
sigraði og fékk 74.0 stig, en
hann keppti fyrir Klæðaverzl-
un Braga Brynjólfssonar. —
Annar var Stefán Kristjáns-
son, Á., 76.5 stig, fyrir Skó-
verzl. Stefáns Gunnarssonar
og þriðji Ásgeir Eyjólfsson, Á.
76.7 stig fyrir ísafoldarprent-
smiðju.
Að lokinni keppni var kepp-
endum, starfsmönnum og full-
trúum þeirra fyrirtækja, sem
þátt tóku í keppninni, boðið til
sameiginlegrar kaffidrykkju í
Skíðaskálanum. Þar flutti ræðu
j formaður Skíðai'áðs Reykjavíkur
Jóh. Óskar Guðmundsson. Af-
henti har.n sigurvegurum 1., 2.
og 3. verðlaun, sem voru þrír
fagrir silfurbikarar (farandbik-
arar) og að auki var þeim Ey-
steini, Stefáni og Ásgeiri afhent-
ir til eignar litlir silfurbikarar.
Að lokum hélt Stefán Björnsson
skrifst’ofustj. ræðu.
Öll úrslitin verða birt síðar hér
í blaðinu.
ZONTAKLÚBBURINN Á AKURETRI
HELDUR „N0NNASKEMMTUN“
Akureyri 21. marz.
IGÆR efndi Zontaklúbburinn hér í bæ til skemmtunar í ágóða-
skyni fyrri minjasafn er hann hyggst koma upp til minningar
um pater Jón Sveinsson (Nonna).
Samkoman hófst með því að'^
norski fiðluleikarinn Ivan Knut-
sen lék einleik á íiðlu með að-
stoð Jakobs Tryggvasonar skóla-
stjóra. Þá flutti frú Svava Jóns-
dóttir leikkona ávarp. Ræddi hún
tilgang skemmtunaarinnar og gat
þess að félagskonur Zontaklúbbs-
ins vonuðust til þess að geta gert
Nonnahúsið við Aðalstræti 54 B,
hér í bæ, að safni til minningar
um þennan víðfræga íslending.
í húsi þessu er Nonni fæddur og
uppalinn til 12 ára aldurs. Var
það gefið klúbbnum af þeim
hjónum frú Sigríði Davíðsdóttur
og Zophoníasi Árnasyni yfirtoll-
verði árið 1952.
—Chiirthill
Framh. af bls. 1
á möguleikana á að halda fjór-
veldaráðstefnu áður en samning-
arnir væru endanlega samþykkt-
Frú Svava kvað þetta menn-
ingarmál snerta alla Akureyringa
og væri framgangur þess undir
velvild og skilningi þeirra kom-
ið. Klúbburinn þyrfti fjármagn
til þess að endurbæta húsið og
safna í það bókum Nonna, í sem
flestum útgáfum og þeim tungu-
málum sem þær hafa verið þýdd-
ar á. Ennfremur myndum, er
skýi'ðu sögu þessa merka manns.
Auk þess er fyrirhugað að safna
í húsið heimilismunum og hús-
gögnum frá miðbiki 18. aldar,
sem gætu gefið sem gleggsta hug-
mynd um útlit heimilis Sveins
Þórðarsonar föður Nonna.
★
Gísli Jónsson menntaskóla-
kennari flutti fróðlegt og
skemmtilegt erindi um Jón
Sveinsson, en Árni Kristjánsson
menntaskólakennari las upp úr
dagbókarblöðum Sveins Þórar-
inssonar hallærislýsingu frá ár-
inu 1869, en þá var Nonni 11 ára.
Ennfremur las hann upp úr bók-
inni „Nonni“.
Happdrætti var á skemmtun-
inni og var þar margt góðra
muna. Smárakvartettinn söng
undir stjórn Jakobs Tryggvason
ar.
Félagskonur gera sér vonir um
að geta verið búnar að koma
Nonnasafni upp fyrir árið 1957,
en þá er aldarafmæli hans.
— Vignir.
EKKI EINS OG A STENDUR
Churchill svaraði m. a á þessa
leið: — Ég hef um tíma verið
þess fýsandi að binda beint og
persónulegt samband við hina
nýju valdhafa Sovétríkjanna,
sem myndi leiða til fjórveldaráð-
stefnu og ég er enn þeirrar skoð-
unar, að ýmislegt myndi vinnast
við slíka ráðstefnu. En eins og
nú stendur get ég þó ekki séð að
hún yrði til neins gagns.
Ég og samráðherrar mínir er-
um ákveðið þeirrar skoðunar að
ekki sé rétt að halda fjórvelda-
ráðstefnu fyrr en samningarnir
um landvarnarsamtök Vestur-
Evrópu hafa verið samþykktir af
öllum aðildarríkjum. — Stjórn
Bandaríkjanna er sammála okk-
ur um þetta. Það er engin von
til að við fáumst til að breyta
afstöðu í þessu máli.
T
FP AKKAR UTAN GÁTTA?
Ég er jafnvel hræddur um,
sagði Churchill, að ef mál
þetta verður tafið með enda-
lausum þrætum og frestum, þá
neyðumst við til að grípa til
annarra ráðstafana, sem
n'”nc',5 hvði hað að Frakklanð
vrði ekki áfram samstarfsað-
ili um landvarnir. Myndi þctta
hafa í för með sér stórvægi-
legar breytingar bæði stjórn
málalegar og hernaðarlegar.
Að lokum sagði ChurchiIU
— Ég her ást og umhyggju
fyrir frönsku þjóðinni. Það
myndi þess vegna valda mér
miklum harmi ef samstarf við
hana ætíi að rofna og hún ætti
að standa eioangruð og missa
áhrif sín meðal frjálsra þjóða.
Sigurvegarar í Firmakeppninni: Stefán, Eysteinn, Ásgeir.
Skíðabrekkan í Hveradölum.
(Ljósm. Har. Teits.)
HÓTEL BORG
Almennur dunsleibur
í kvöld til klukkan 1.
— Ókeypis aðgangur. —
Rhumba-sveit Plasidos skemmtir.
Hljómsveit Þorvaldar Steingrímssonar leikur.
Boðsmiðar afhentir við aðaldyr kl. 8,30.
Borð aðeins tekin frá fyrir matargesti.
■ i ■■■■*■■
■■■■■■■■■
■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■
Húnvetningafélagið
heldur
danskemnfiun
í Tjarnarcafé, niðri, föstudaginn 25. þ. m.
klukkan 9 e.h.
Félagar, fjölmennið.
Skemmtincfndin.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
BEZAR
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunar heldur bazar í Góð-
templarahúsinu í dag, 22. marz, og hefst hann kl. 2 e. h.
Á bazarnum verður fjöldi gagnlegra og góðra muna,
bæði fyrir börn og fullorðna, auk ýmislegra annarra
muna. Allt verður selt við mjög lágu verði.
Nefndin.
ua